Gæsluvarðhald vegna heimilisofbeldis fellt úr gildi Landsréttur felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tvítugum karlmanni sem var handtekinn á sunnudag grunaður um heimilisofbeldi. Innlent 4. júní 2020 23:20
Gagnrýna rannsókn á meintu kynferðisbroti nágranna gegn þriggja og sex ára systrum Lögmaður gagnrýnir rannsókn lögreglu á meintu kynferðisbroti gegn þriggja og sex ára systrum. Grunur leikur á að teknar hafi verið kynferðislegar myndir af stúlkunum en málið var látið niður falla eftir rúmlega ár í rannsókn. Fjölskyldan hefur kært málið til Ríkissaksóknara. Innlent 4. júní 2020 19:00
Óskar eftir skýringum á framgöngu sérsveitarinnar í útkalli í Kjósinni Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur óskað eftir skýringum á handtöku sérsveitar ríkislögreglustjóra á eldri manni í Kjós á sunnudaginn og sagt var frá á forsíðu Fréttablaðsins í gær. Innlent 4. júní 2020 14:22
Töldu meiri smithættu af því að vísa fólki af samstöðufundinum Smithætta hefði aukist hefði fólki, sem viðstatt var samstöðufundi á Austurvelli í gær vegna ástandsins vestanhafs, hefði verið vísað af Austurvelli. Lögreglumenn sem staddir voru á fundinum töldu það ekki þjóna markmiðum sóttvarna og að betra væri að láta fundinn klárast en um þrjú þúsund manns voru viðstaddir þegar hæst lét. Innlent 4. júní 2020 13:53
Fundu 30 kíló af kannabisefnum í uppsveitum Árnessýslu Lögreglumenn á Suðurlandi fundu fyrir nokkrum dögum síðan tæp þrjátíu kíló af kannabisefnum tilbúnum til þurrkunar og pökkunar. Innlent 4. júní 2020 12:16
Þrír náðust þar sem þeir stálu eggjum undan æðarkollum Þrír karlmenn voru staðnir að því að stela eggjum undan æðarkollum í varplandinu Stafnesi við Sandgerði fyrr í vikunni. Innlent 4. júní 2020 09:08
Einn í haldi í tengslum við þrjú innbrot Einn er í haldi lögreglunnar á Norðurlandi vestra í tengslum við innbrot á þremur stöðum á Blönduósi í nótt þar sem verðmætum var stolið. Innlent 3. júní 2020 19:47
„Það á að vera þungt, þetta er ekki auðvelt“ Talið er að yfir þrjú þúsund manns hafi komið saman á samstöðumótmælum á Austurvelli síðdegis í dag. Mótmælin eru skipulögð vegna ástandsins vestanhafs þar sem mótmælt hefur verið í öllum ríkjum Bandaríkjanna vegna dauða George Floyd. Innlent 3. júní 2020 19:06
Bandaríkjamaður ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þremur drengjum Bandarískur karlmaður á fertugsaldri sem hefur verið í varðhaldi síðan í lok janúar hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þremur drengjum. Innlent 3. júní 2020 18:22
Hlaupbjarnabófi játaði sök Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn á Suðurnesjum í gær vegna gruns um að hann hefði selt hlaupbangsa sem innihéldu fíkniefni. Innlent 3. júní 2020 17:08
Kviknaði í gröfu skammt frá Flúðum Eldur kom upp í beltagröfu við námu í Núpstúni í Hrunamannahreppi nú fyrir skömmu. Grafan er alelda og dökkan reyk leggur frá henni. Innlent 3. júní 2020 13:00
Telur viðurlög við árásum á lögreglumenn allt of væg Formaður Landssambands lögreglumanna segir að ofbeldi í garð lögreglumanna sé allt of algengt og gagnrýnir hann dómstólana fyrir að nýta ekki refsiramma laganna. Innlent 3. júní 2020 08:42
Öllum hjólbörðunum stolið undan bílaleigubíl Að undanförnu hefur borið á því að brotist hafi verið inn í bílaleigubíla á Suðurnesjum og verðmætum stolið. Ljósabúnaður bílanna hefur einnig verið fjarlægður. Innlent 3. júní 2020 08:39
„Oft er þetta bara frekja í ökumönnum“ Pétur M. Urbancic, íbúi í miðbæ Reykjavíkur, birti á dögunum Twitter-þráð þar sem hann sagði frá raunum sínum í samskiptum við ökumenn sem ætluðu sér að keyra Laugaveginn. Í gegn um tíðina hefur þótt lítið tiltökumál að taka Laugavegsrúnt eða tvo, en nú er staðan sú að Laugavegurinn er göngugata í allt sumar. Innlent 3. júní 2020 06:26
Rannsaka árás á starfsmann rakarastofu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um mann í annarlegu ástandi sem ráðist hafði á starfsmann rakarastofu á Laugavegi síðdegis í gær. Innlent 3. júní 2020 06:13
Var á botni laugarinnar í sjö mínútur Eldri karlmaður sem lést í sundlauginni á Selfoss í gær hafði verið á botni laugarinnar í sjö mínútur þegar hann fannst. Slysið gerðist á vaktaskiptatíma sundlaugarvarða. Innlent 2. júní 2020 18:30
Efri hæðin alelda þegar að var komið Fjölskylda slapp heil þegar eldur kom upp í tvílyftu einbýlishúsi í Lundareykjardal í Borgarfirði snemma í morgun. Efri hæð hússins var gott sem alelda þegar slökkvilið kom á vettvang. Innlent 2. júní 2020 12:00
Telja brunann í Hrísey af mannavöldum Lögreglan á Akureyri hefur nánast útilokað að bruninn sem varð í frystihúsi Hríseyjar Seafood í Hrísey á fimmtudagsmorgun hafi komið til vegna rafmagnsbilunar. Nú er unnið með tvær kenningar. Bruninn hafi verið af mannavöldum, en óljóst er hvort um slys eða íkveikju hafi verið að ræða. Innlent 2. júní 2020 10:48
Handtekinn þegar hann reyndi að fara af vettvangi Ökumaður sem valdið hafði umferðaróhappi í Árbæ var handtekinn þegar hann reyndi að koma sér af vettvangi. Innlent 2. júní 2020 06:20
Tvítugur karlmaður úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna heimilisofbeldis: Hlaut dóm fyrir stórfellda líkamsárás í mars Tvítugur karlmaður var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 26. júní eftir að hafa ráðist á nátengdan aðila. Maðurinn var á skilorði eftir að hafa hlotið 12 mánaða dóm fyrir hrottalega líkamsárás á sautján ára unnustu sína. Innlent 1. júní 2020 18:34
Dæmdur öðru sinni fyrir kynferðisbrot gegn barni Anthony Lee Bellere var á föstudag sakfelldur fyrir Landsrétti fyrir ítrekuð kynferðisbrot, tilraun til kynferðisbrots, hótun, áfengislagabrot, brot gegn barnverndarlögum og umferðalagabrot. Innlent 1. júní 2020 15:56
Gestir skemmtistaða keppast við að hella í sig alkóhólinu Styttur opnunartími skemmtistaða virðist ekki skila tilætluðum árangri. Innlent 1. júní 2020 11:50
Konan sem lýst var eftir fundin heil á húfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í gær eftir tuttugu og fimm ára gamalli konu en hún er nú fundin heil á húfi. Innlent 1. júní 2020 10:11
Reyndi að stinga lögreglu af og keyrði á tvo bíla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu reyndi í gærkvöldi að hafa afskipti af ökumanni sem sinnti ekki stöðvunarmerkjum. Innlent 1. júní 2020 07:17
Maður fannst látinn í Laxá í Aðaldal Maður fannst látinn í Laxá í Aðaldal um klukkan 3 í nótt, en hans hafði verið saknað síðan í gærkvöldi eftir að hann skilaði sér ekki til baka úr veiði. Innlent 1. júní 2020 06:01
Strætisvagn og fólksbíll skullu saman við Egilshöll Tveir árekstrar urðu í Reykjavík á ellefta tímanum í kvöld, í Grafarvogi var Strætó viðriðinn en í Safamýri lauk eftirför lögreglu. Innlent 31. maí 2020 23:37
Tveir lögreglumenn sviptir frelsi í útkalli: Annar rotaðist og báðir fluttir á slysadeild Tveir lögreglumenn voru sviptir frelsi og ráðist á þá þegar þeir fóru í útkall vegna hávaða í heimahúsi á Völlunum í Hafnarfirði um síðustu helgi. Annar þeirra rotaðist og þurftu þeir að leita á slysadeild. Innlent 31. maí 2020 18:55
Enn mikill erill hjá lögreglu Rúmlega hundrað mál voru skráð í dagbók lögreglunnar frá fimm í gær til fimm í morgun og ellefu aðilar voru vistaðir í fangageymslu. Innlent 31. maí 2020 07:18
Barði lögreglumann í andlitið Húsráðandi gaf lögreglumanni hnefahögg í andlitið þegar lögregla sinnti útkalli vegna gruns um heimilisofbeldi. Innlent 30. maí 2020 11:02
Lögðu hald á annað hundrað kannabisplantna Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í fyrradag kannabisræktun í íbúðarhúsnæði en búið var að koma upp tveimur tjöldum í svefnherbergjum þar sem plönturnar voru ræktaðar. Innlent 30. maí 2020 11:01