Lord of the Rings Online kominn út Einn viðamesti tölvuleikur ársins kemur til Íslands um næstu mánaðamót. Lord of the Rings Online: Shadows of Angmar er kominn út. Leikurinn er netleikur þar sem hægt er að spila sem menn, álfar, dvergar eða hobbitar í Miðgarði Tolkiens. Leikjavísir 1. maí 2007 08:00
Zunepartý skemmir fyrir Xbox 360 Microsoft hefur gefið út árshlutauppgjör fyrir þriðja hluta viðskiptaársins. Afþreyingar og tækjadeild fyrirtækisins hefur ekki gengið nógu vel þrátt fyrir að búið sé að afgreiða yfir 11 miljón eintök af Xbox 360. Viðskipti erlent 28. apríl 2007 11:00
Pabbi fer frá Playstation Ken Kutaragi faðir Playstation leikjatölvunnar hjá Sony hefur sagt af sér. Hann starfaði hjá fyrirtækinu síðan 1975. Sony berst nú fyrir því að ná aftur markaðsforystu á leikjatölvumarkaðnum en samkeppnin hefur harðnað verulega. Leikjavísir 27. apríl 2007 15:11
Myndavél frá Playstation PLAYSTATION®Eye myndavélmyndavélin færir samskipti á PLAYSTATION®3 yfir á næsta stig. Um er að ræða myndavél sem skynjar hreyfingar, reiknar út umhverfið og er með hljóðnema sem getur eytt út umhverfishljóðum. Leikjavísir 26. apríl 2007 11:43
God of War II á toppnum í Bandaríkjunum Playstation 2 leikurinn „God og War II“ sem Sony framleiðir var mest seldi tölvuleikurinn í mars í Bandaríkjunum. Það var markaðsrannsóknafyrirtækið NPD Group sem tók saman sölutölurnar. Leikjavísir 24. apríl 2007 15:51
Uppsagnir í vændum hjá Sony Japanski hátækniframleiðandinn Sony hefur látið í veðri vaka að hann ætli að fækka í starfsliði sínu í Evrópu á næstunni. Svo getur farið að 160 manns verði sagt upp störfum. Leikjavísir 24. apríl 2007 05:30
Sony hættir að selja ódýrari PS3 tölvuna Sony í Bandaríkjunum hefur ákveðið að hætta sölu á 20 gígabita Playstation 3 tölvum. Í ljós hefur komið að öflugri og dýrari 60 gb leikjatölvurnar eru mun vinsælli, þrátt fyrir verðmuninn. Leikjavísir 22. apríl 2007 11:41
Niðurskurðarhnífnum beitt hjá Sony Japanski hátækniframleiðandinn Sony hefur látið í veðri vaka að hann ætli að fækka í starfsliði sínu í Evrópu. Verði það raunin getur svo farið að 160 manns verði sagt upp störfum. Forsvarsmenn Sony segja hagræðingu í Evrópuhluta fyrirtækisins ekki tengjast dræmri sölu á PlayStation 3, nýjustu leikjatölvunni frá fyrirtækinu, sem kom út í enda síðasta mánaðar. Leikjavísir 18. apríl 2007 09:30
GTA: Vice City Stories - Þrjár stjörnur Annar GTA-leikurinn sem kemur upphaflega út fyrir PSP og er fluttur yfir á PlayStation 2. Kemur ekki með neitt nýtt til borðsins, en það sleppur því borðið var alveg ágætt fyrir. Ódýr. Leikjavísir 18. apríl 2007 09:00
Sony hættir sölu á 20 GB Playstation 3 Japanski hátækniframleiðandinn Sony ætlar að hætta að flytja inn og selja ódýrari gerðir PlayStation 3 leikjatölvunnar í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að neytendur hafa meiri áhuga á dýrari gerðum sem eru með stærri harðan disk og meiri aukabúnað. Leikjavísir 13. apríl 2007 15:00
Spá sexföldum hagnaði hjá Sony Gengi hlutabréfa í japanska hátækniframleiðandanum Sony hækkaði talsvert í dag og hefur ekki verið hærra í fimm ár. Ástæðan fyrir hækkuninni er spá japanska viðskiptablaðsins Nikkei að hagnaður Sony muni sexfaldast á árinu. Mikil kostnaður við gerð og markaðssetningu á PlayStation 3 leikjatölvunni setti skarð í afkomutölur Sony á síðasta ári. Leikjavísir 13. apríl 2007 12:14
PS3 misvel tekið Nýja Playstation 3 leikjatölvan kom á Evrópumarkað nú fyrir helgi og var henni víðast hvar vel tekið, tölvan seldist sérstaklega vel í Bretlandi. Hins vegar hefur ekki gengið jafn vel fyrstu dagana í Frakklandi og Þýskalandi þar sem athygli hefur vakið hversu fáir hafa keypt sér þetta nýjasta útspil Sony á leikjatölvumarkaðinum. Leikjavísir 24. mars 2007 18:10
PS3 í verslanir á föstudag PlayStation 3, nýjasta leikjatölvan frá Sony, kemur í verslanir í Evrópu á föstudag. Tölvan fór í sölu í Japan og í Bandaríkjunum um miðjan nóvember í fyrra. Breskir fjölmiðlar segja leikjatölvuunnendur þar í landi jafnt sem annars staðar bíða óþreyjufullir eftir tölvunni. Helst gagnrýna Bretarnir verðið, sem er um 16.000 krónum hærra í Bretlandi en í Bandaríkjunum. Leikjavísir 18. mars 2007 11:00
Sonic and the Secret Rings - þrjár stjörnur Flestir sem hafa spilað tölvuleiki kannast við Sonic, broddgöltinn bláa sem hleypur á ógnarhraða yfir, undir og í gegnum hindranir á leið sinni í gegnum margvísleg borð. Margir hafa jafnvel prófað einhvern af klassísku Sonic-leikjunum sem komu út á Sega Mega Drive forðum daga. Leikjavísir 12. mars 2007 10:00
Nýr þátttakandi í leikjatölvustríðinu Arftaki vinsælustu sjónvarpsleikjatölvu í heimi, PlayStation 2, er á leið til landsins. Þann 23. mars munu landsmenn, sem og aðrir Evrópubúar, geta notið nýju tölvunnar sem heitir því frumlega nafni PlayStation 3. Leikjavísir 10. mars 2007 08:00
Aldrei fleiri þróað tölvuleik Tuttugu þúsund sjálfboðaliðar hafa boðist til að taka þátt í þróun fyrstu persónu skotleiks sem verður spilaður á netinu. Það er sama fyrirtæki og gerði hina geysivinsælu Counter-Strike leiki sem þróar leikinn. Dave Perry aðalhönnuður fyrirtækisins, Acclaim segir að allt að 100 þúsund sjálfboðaliðar verði fengnir til að þróa leikinn og ef 1% þeirra getur eitthvað af viti sé björninn unninn. Aldrei hafa jafn margir tekið þátt í þróun tölvuleiks. Leikjavísir 6. mars 2007 15:00
PS3 í öðru sæti Leikjatölvan PlayStation 3, nýjasta leikjatölvan frá Sony sem kom á markað í Bandaríkjunum og í Japan um miðjan nóvember í fyrra, er í öðru sæti yfir mest seldu leikjatölvur fyrirtækisins í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Stefnt er á að tölvan komi á markað í Evrópu undir lok næsta mánaðar Leikjavísir 28. febrúar 2007 00:01
Mishörð barátta á leikjatölvumarkaði Verðmunur á leikjatölvum hérlendis og í nágrannalöndunum er æði misjafn eftir því hver tölvan er. Xbox 360 er þriðjungi dýrari hér en í löndunum í kring. Nintendo Wii er ekki nema fimm prósentum dýrari hér en í sömu löndum. Leikjavísir 24. febrúar 2007 09:15
Forsala hafin en verðið ekki ákveðið Þeir sem kaupa PlayStation 3 leikjatölvuna í forsölu hjá BT eða Max fá ekki að vita hvað hún mun kosta. Forsala á vélinni, sem kemur til landsins 23. næsta mánaðar, hófst í gær. Leikjavísir 24. febrúar 2007 06:00
PlayStation 3 slær öll met í forsölu Smásalar í Evrópu hafa fundið fyrir gríðarlegri eftirspurn eftir PlayStation 3 á sama tíma og Sony kemur sér í gírinn fyrir "Stærstu útgáfu á leikjavél hingað til", samkvæmt Ray Maguire, Forstjóra Sony Computer Bretlandi. Leikjavísir 21. febrúar 2007 12:22
Afrita auðveldlega af Blue Ray og HD-DVD Það er orðið alþekkt að eftir því sem framleiðendur DVD og geisladiska búa til betri afritunarvarnir finna tölvuþrjótar leiðir til að komast í kringum þær. Nú er þegar kominn í umferð lykill sem fer framhjá afritunarvörnum á bæði Blue-Ray og HD-DVD diskum, öllum. Áður þurfti sérstakan lykil fyrir hvern einstakan Blue-Ray eða HD-DVD disk. Viðskipti erlent 14. febrúar 2007 12:06
Nýr vampíru- og varúlfaleikur í bígerð Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP hefur í bígerð nýjan fjölspilunarleik, sem mun hljóta heitið World of Darkness. Leikurinn verður unninn í samvinnu við bandaríska leikjafyrirtækið White Wolf, sem CCP sameinaðist á seinni hluta síðasta árs. Leikjavísir 10. febrúar 2007 08:00
Zune-stjórinn farinn frá Microsoft Bryan Lee, framkvæmdastjóri afþreyingardeildar bandaríska hugbúnaðarrisans Microsoft, hefur sagt upp störfum. Lee var í forsvari deildar sem hafði umsjón með þróun og sölu á Zune-spilaranum sem kom á markað um miðjan nóvember í fyrra. Viðskipti erlent 7. febrúar 2007 06:00
Nintendo Wii mun vinsælli en Playstation 3 í Japan Nintendo Wii seldist í næstum þrisvar sinnum fleiri eintökum en Playstation 3 frá Sony í Japan í janúar. Þetta kemur fram í stærsta leikjatölvutímariti Japan. Wii seldist í 405 þúsund eintökum á meðan PS3 seldist í 148 þúsund. Leikjavísir 6. febrúar 2007 21:58
Samdráttur hjá Sony Japanski tæknirisinn Sony skilaði tæplega 160 milljarða jena hagnaði á síðasta fjórðungi liðins árs. Það svarar til 90,3 milljarða íslenskra króna. Til samanburðar nam hagnaður Sony fyrir ári 95,4 milljarða króna. Leikjavísir 3. febrúar 2007 00:01
Biðin styttist í PS3 Sala á PlayStation 3, nýjustu leikjatölvunni frá Sony, hefst í Evrópu 23. mars næstkomandi. Leikjatölvan kom á markað í Japan og Bandaríkjunum í nóvember í fyrra. Einungis dýrari gerðir leikjatölvunnar verða í boði fyrst um sinn en ódýrari gerðir hennar koma á markað síðar í Evrópu. Leikjavísir 31. janúar 2007 00:01
Kemur 23. mars Leikjatölvan Playstation 3 verður gefin út í Evrópu 23. mars næstkomandi. Verð tölvunnar er 53 þúsund krónur en endanlegt verð hér á landi hefur ekki verið ákveðið. Leikjavísir 29. janúar 2007 00:01
Playstation 3 kemur 23. mars Tæknifyrirtækið Sony tilkynnti á dögunum útgáfudag leikjatölvunnar Playstation 3 í Evrópu. Hún kemur út hinn 23. mars og mun kosta 599 evrur eða sem samsvarar um 53 þúsund krónum. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Leikjavísir 27. janúar 2007 00:01
PS3 kemur til Evrópu 23. mars Sala á PlayStation 3, nýjustu leikjatölvunni frá Sony, hefst í Evrópu 23. mars næstkomandi. Leikjatölvan kom á markað í Japan og Bandaríkjunum í nóvember í fyrra. Einungis dýrari gerðir leikjatölvunnar verða í boði fyrst um sinn en ódýrari gerðir hennar koma á markað síðar í Evrópu. Leikjavísir 25. janúar 2007 09:00