Laufey fær eigin God of War leik Sony og Santa Monica Studios hafa birt stiklu fyrir nýjan God of War leik, sem fjallar um Laufeyju, eiginkonu Kratorsar, stríðsguðsins gríska. Hún þarf að berjast við nýja stríðsguði og alls konar óvætti á þeirra vegum. Leikjavísir 3.6.2026 10:33
Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Næst hittum við tíu ára strák sem forritaði vefsíðu þar sem finna má upplýsingar um markaðsvirði pókémonspila. Hann segir mjög erfitt að forrita en dýrmætt að vita hvers virði spilin eru og hvetur börn til að prufa forritun. Viðskipti innlent 2.6.2026 20:02
Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Forsvarsmenn pólska leikjafyrirtækisins CD Projekt RED hafa opinberað nýjan aukapakka fyrir leikinn Witcher 3: Wild Hunt, sem kom út árið 2015. Aukapakki þessi ber titilinn Songs of the Past og á að koma út á næsta ári, um tólf árum á eftir leiknum vinsæla, sem selst hefur í að minnsta kosti sextíu milljónum eintaka. Leikjavísir 27.5.2026 09:54
Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Íslenskt par í Kaupmannahöfn bjó nýverið til leikjavefinn Morgunstund.net vegna eigin leikjaáhuga. Þar er hægt að spila fréttaleik þar sem maður giskar á ártal dagblaða og leik þar sem maður finnur tengingar milli ólíkra orða. Til stendur að bæta fleiri leikjum við. Lífið 2. febrúar 2026 11:28
Ólafur Darri verður Þór Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson hefur tekið að sér að leika guðinn Þór í nýjum þáttum Amazon MGM og Sony. Þættirnir byggja á gífurlega vinsælum leikjum um spartverjan og seinna stríðsguðinn Kratos. Bíó og sjónvarp 29. janúar 2026 21:24
Láta reyna á heilasellurnar og samvinnuna Strákarnir í GameTíví ætla að láta reyna á samvinnuna og heilasellurnar til að komast úr honum kröppum. Þeir ætla að spila leikinn Escape Simulator 2. Leikjavísir 12. janúar 2026 19:33
Leikirnir sem beðið er eftir Jólin eru liðin og grámyglulegur hverdagsleikinn er tekinn aftur við. Við Íslendingar munum væntanlega ekki fá almennilegt veður aftur í allavega fjóra mánuði og ekkert nema fullar vinnuvikur framundan. Við höfum þó enn tölvuleiki, það er eitthvað. Leikjavísir 12. janúar 2026 08:02
Skapari Call of Duty lést í bílslysi Vince Zampella, einn skapara hinna vinsælu Call of Duty-tölvuleikja, er látinn eftir að hafa lent í bílslysi í Kaliforníu í Bandaríkjunum á sunnudag. Hann varð 55 ára. Erlent 23. desember 2025 07:53
Stiklusúpa: Allt það helsta sem kynnt var á Game awards Verðlaunahátíðin Game Awards 2025 fór fram með pomp og prakt í gær. Við það tilefni eiga forsvarsmenn leikjafyrirtækja það til að opinbera nýjar stiklur og var gærdagurinn engin undatekning frá því. Leikjavísir 12. desember 2025 11:48
NASCAR25: Hver þarf að beygja meira en til vinstri til að skemmta sér? Boðið er upp á berstrípað, bílræfið og sporöskjulaga fjör í nýjasta NASCAR-kappakstursleiknum. Sannir akstursíþróttaunnendur fá nóg fyrir sinn snúð þótt leikinn skorti mikið af þeim íburði sem einkennir marga aðra kappakstursleiki. Leikjavísir 26. nóvember 2025 09:02
Bjóða til sögulegrar tölvuleikjaveislu Íslenskum tölvuleikjaiðnaði verður gert hátt undir höfði um helgina en á laugardag safnast íslensk tölvuleikjafyrirtæki saman og bjóða áhugasömum Íslendingum að kynna sér leiki, bæði þá sem hafa þegar verið gefnir út og þá sem eru í vinnslu. Samhliða þessu verður íslenskum tölvuleikjum gert hátt undir höfði á Steam sem er stærsti leikjavettvangur í heimi og lykilaðili í dreifingu og sölu tölvuleikja. Lífið 21. nóvember 2025 15:54
Outer Worlds 2: Eitthvað sem vantar í annars fínan leik Outer Worlds 2 er skemmtilegur og góður hlutverkaleikur, sem gerist í semi-áhugaverðum en sérstaklega fyndnum söguheimi. Það er samt eitthvað þarna og leiknum hefur ekki tekist að fanga mig. Leikjavísir 10. nóvember 2025 19:01
Fresta GTA 6 aftur og um hálft ár Útgáfu Grand Theft Auto 6 hefur verið frestað, aftur, og um hálft ár. Nú á leikurinn að koma út þann 19. nóvember á næsta ári en áður var útgáfudagurinn 26. maí. Upprunalega átti leikurinn, sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu um árabil, að koma út á þessu ári. Leikjavísir 6. nóvember 2025 21:34
Spenna á rafíþróttaæfingu fyrir eldri borgara Hópur eldri borgarar hittist vikulega til að iðka rafíþróttir og er stemningin einstaklega góð á æfingum. Lífið 2. nóvember 2025 23:03
Gefa út endurbætta útgáfu af íslenskum leik Íslenska leikjafyrirtækið Myrkur Games gefur í dag út endurbætta útgáfu af leiknum Echoes of the end, einungis nokkrum mánuðum eftir að leikurinn kom fyrst út. Uppfærslan gerir umtalsverðar breytingar á leiknum sem taka mikið mið af uppástungum frá spilurum. Leikjavísir 30. október 2025 15:01
Nýr íslenskur tölvuleikur um lífsgæðakapphlaupið Íslenska leikjafyrirtækið Porcelain Fortress gefur í dag út annan leik sinn, Walk of Life, á tölvuleikjaveitunni Steam. Spilarar leiksins þurfa að taka þátt í farsakenndu lífsgæðakapphlaupi hver við annan. Leikjavísir 24. október 2025 13:36
Battlefield 6: Gamli góði Battlefield er snúinn aftur Þó ég hafi átt mjög mismunandi daga í Battlefield 6 er ég ánægður með leikinn og vongóður um að ég muni spila hann mikið. Starfsmenn EA hafa fangað vel það sem fékk mann til að elska þessa leiki í „gamla daga“. Svo hjálpar til að ég hef ekki einu sinni verið drepinn af Nicki Minaj eða einhverjum skoppandi Múmínálfi. Leikjavísir 17. október 2025 08:47
Ghost of Yōtei: Einhver heimsins fallegasti leikur og skemmtilegur líka Ég var tiltölulega stressaður fyrir Ghost of Yōtei þar sem forveri hans, Ghost of Tsushima, er einn af mínum uppáhalds leikjum. Þessar áhyggjur voru sem betur fer algjör óþarfi. GoY gefur GoT lítið sem ekkert eftir og er hreinlega betri á nánast öllum sviðum. Leikjavísir 9. október 2025 08:46
Borderlands 4: Læti og óreiða par excellence Borderlandsleikirnir hafa um árabil notið góðs orðspors meðal fjölspilunarleikja fyrir að vera skemmtilegir skot og hasarleikir þar sem allt er á yfirsnúningi og fyndnir en misfyndnir þó. Fjórði leikurinn er þar engin undantekning Leikjavísir 21. september 2025 13:02
Prófaðu EVE Vanguard áður en hann kemur út Áhugafólk um tölvuleiki fær í vikunni tækifæri til að prófa EVE Vanguard, nýjasta leik CCP, áður en hann kemur út. Leikjavísir 14. september 2025 13:45
Metal Gear Solid Delta: Snake Eater - Einn besti leikur PS2 öðlast nýtt líf Einn af bestu leikjum PlayStation 2 kynslóðarinnar er, merkilegt nokk, ennþá frekar góður. Hvurn hefði grunað! Metal Gear Solid: Snake Eater hefur fengið góða andlitslyftingu en þrátt fyrir það er andrúmslofti gamla leiksins haldið og það með góðum árangri. Leikjavísir 12. september 2025 10:45
Stiklusúpa: Eins gott að þið spöruðuð frídaga inn í haustið Sólin lækkar sífellt meira á himni og kvöldin verða dimmari og dimmari. Myrkrið er ekki bara úti heldur einnig í hjörtum okkar. Við þessar kringumstæður er mörgum auðvelt að láta þunglyndið taka við stjórn eeen það er alger óþarfi, í rauninni bara bull. Leikjavísir 26. ágúst 2025 08:47
Mafia: The Old Country - Fínasta afþreying, þó þunn sé Mafia: The Old Country er hin fínasta afþreying og hinn ágætasti leikur. Það er þó lítið sem gerir þennan leik framúrskarandi, annað en frekar áhugavert og fallegt sögusvið. Leikjavísir 16. ágúst 2025 08:46
Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Echoes of the End er fyrsti leikur íslenska fyrirtækisins Myrkur Games. Þetta er ævintýra- og hasarleikur og þykir nokkuð augljóst að framleiðendur hans fengu mikla andagift frá God of War leikjunum, sem getur varla talist annað en jákvætt. Leikjavísir 12. ágúst 2025 15:04