Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Samúel Karl Ólason skrifar 27. maí 2026 09:54 Ævintýrum Geralts frá RIvíu er greinilega ekki enn lokið. Forsvarsmenn pólska leikjafyrirtækisins CD Projekt RED hafa opinberað nýjan aukapakka fyrir leikinn Witcher 3: Wild Hunt, sem kom út árið 2015. Aukapakki þessi ber titilinn Songs of the Past og á að koma út á næsta ári, um tólf árum á eftir leiknum vinsæla, sem selst hefur í að minnsta kosti sextíu milljónum eintaka.
Áður hafa verið gerðir tveir aukapakkar fyrir leikinn. Hearts of Stone (2015) og Blood and Wine (2016). Leikirnir í söguheimi Witcher eru mjög vinsælir og þá sérstaklega sá þriðji í þríleiknum um Geralt frá Rivia. Þeir leikir gerast í söguheimi þar sem nokkrar víddir skullu saman. Við það strönduðu allskonar skrímsli, menn, dvergar, álfar og alls kyns verur saman í einum heimi með tilheyrandi deilum og átökum. Stökkbreyttir stríðsmenn flakka um heiminn og drepa skrímsli fyrir peninga. Geralt er einn af þeim. Witcher 3 er af mörgum, undirrituðum meðtöldum, talinn einn af bestu leikjum heims. Í yfirlýsingu segir að unnið sé að aukapakkanum í samstarfi við fyrirtækið Fool´s Theory en tiltölulega stutt er síðan opinberað var að það fyrirtæki væri einnig að vinna að endurgerð á Witcher 3 í Unreal Engine grafíkvélinni. Margir starfsmanna Fool‘s Theory unnu áður hjá CDPR og við gerð Witcher 3 á sínum tíma. Upprunalega stóð til að segja frá aukapakkanum á morgun en sögusagnir um aukapakkann hafa lengi verið á kreiki. Á meðan starfsmenn Fool‘s Theory eru að eiga við Witcher 3 eru starfsmenn CDPR að vinna að fjórða leiknum í seríunni. Sá leikur fjallar um Ciri, fósturdóttur Geralts, sem flakkar eins og hann um söguheiminn og gengur frá skrímslum.
Leikjavísir Tengdar fréttir Leikirnir sem beðið er eftir Jólin eru liðin og grámyglulegur hverdagsleikinn er tekinn aftur við. Við Íslendingar munum væntanlega ekki fá almennilegt veður aftur í allavega fjóra mánuði og ekkert nema fullar vinnuvikur framundan. Við höfum þó enn tölvuleiki, það er eitthvað. 12. janúar 2026 08:02 Gera nýja Witcher og Cyberpunk leiki Forsvarsmenn leikjafyrirtækisins CD Projekt Red tilkynntu í gær fjölmörg verkefni sem eru í vinnslu hjá fyrirtækinu. Þrjú þeirra snúa að söguheimi Witcher og þar á meðal nýr þríleikur. Þá þróun framhalds Cyberpunk 2077 einnig tilkynnt og framleiðsla nýs leiks í nýjum söguheimi. 5. október 2022 16:09 Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Fleiri fréttir Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Sjá meira
Leikirnir sem beðið er eftir Jólin eru liðin og grámyglulegur hverdagsleikinn er tekinn aftur við. Við Íslendingar munum væntanlega ekki fá almennilegt veður aftur í allavega fjóra mánuði og ekkert nema fullar vinnuvikur framundan. Við höfum þó enn tölvuleiki, það er eitthvað. 12. janúar 2026 08:02
Gera nýja Witcher og Cyberpunk leiki Forsvarsmenn leikjafyrirtækisins CD Projekt Red tilkynntu í gær fjölmörg verkefni sem eru í vinnslu hjá fyrirtækinu. Þrjú þeirra snúa að söguheimi Witcher og þar á meðal nýr þríleikur. Þá þróun framhalds Cyberpunk 2077 einnig tilkynnt og framleiðsla nýs leiks í nýjum söguheimi. 5. október 2022 16:09