

Körfubolti
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.

Popovich í hóp með Wilkens og Nelson
Gregg Popovich hefur fyrir löngu skráð sig á spjöld sögunnar í NBA körfuboltanum og hann komst í hóp merkra þjálfara í nótt.

Clippers hafði betur í stórleik helgarinnar
Tvö af bestu liðum NBA deildarinnar um þessar mundir mættust í Los Angeles í nótt þegar Los Angeles Clippers tók á móti Philadelphia 76ers.

Sigurganga Utah Jazz heldur áfram og meistararnir aftur á sigurbraut
Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt þar sem meistarar Los Angeles Lakers komust aftur á sigurbraut og Utah Jazz hélt áfram að styrkja stöðu sína á toppi Vesturdeildarinnar.

Fór yfir „hlutabréfamarkað“ Dominos-deildarinnar og hvaða leikmenn hafa hækkað mest
Benedikt Guðmundsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins og sérfræðingur Dominos Körfuboltakvölds, fór yfir hvaða „hlutabréfamarkaðinn í Dominos-deildinni“ eins og hann kallar það á Twitter-síðu sinni í dag.

NBA dagsins: Refurinn skaut nýbólusetta Warriors leikmenn á bólakaf
De'Aaron Fox er á góðri leið að komast í hóp stórstjarna NBA-deildarinnar eftir frammistöðu sína í síðustu leikjum. Hann hefur aldrei skorað meira í einum leik en á móti Golden State Warriors í nótt.

Tvo leiki vantar í Olís-deild karla en mótin telja í körfuboltanum
Fram og KA þurfa að leika einum leik meira í Olís-deild karla í handbolta til að keppni á þessari leiktíð telji. Deildarmeistarar verða krýndir í Dominos-deildunum og Olís-deild kvenna jafnvel þó að ekki verði meira spilað á leiktíðinni.

Vilja safna milljarði fyrir húsi handa Aþenu
Brynjar Karl Sigurðsson og stelpurnar sem hann þjálfar í körfuboltaliði Aþenu komu að læstum dyrum víðast hvar í Reykjavík áður en þau fengu æfingaaðstöðu á Kjalarnesi. Nú vilja þau kaupa húsnæði fyrir einn milljarð króna.

„Yfirvöld þurfa líka að vinna með íþróttahreyfingunni allri og öðrum í landinu“
Hannes S. Jónsson, formaður körfuknattleikssambands Íslands, segir það ekki boðlegt að banna afreksíþróttafólki að æfa sína íþrótt. Hann segir yfirvöld þurfa að standa með íþróttahreyfingunni og saman þurfi þau að vinna lausn á vandanum.

Rondo er kominn aftur til LA og Orlando Magic sá á eftir þremur stjörnum
Lokadagurinn til að skipta á leikmönnum í NBA deildinni í gær og það er óhætt að segja að mikið hafi gengið á undir lokin.

Ekki svo gamall liðsfélagi var Lakers liðinu erfiður í enn einu tapinu
Það er ólíkt komið með Los Angeles liðunum í NBA deildinni í körfubolta þessa dagana. Clippers er komið á flug á meðan Lakers tapar öllum leikjum sínum án þeirra LeBron James og Anthony Davis. De'Aaron Fox átti magnaðan leik á móti Golden State í nótt.

Vucevic til Bulls | Rondo á leið til Clippers og Lou Williams til Atlanta Hawks
Í dag er síðasti dagurinn þar sem lið geta skipt á leikmönnum í NBA-deildinni í körfubolta.

Einn sá efnilegasti áfram í Þorlákshöfn
Styrmir Snær Þrastarson hefur samið við uppeldisfélag sitt Þór Þorlákshöfn og mun leika með liðinu næstu tvö árin allavega. Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag.

NBA dagins: Bauluðu á gömlu hetjuna sína en fengu bara skell í andlitið
Kawhi Leonard var aðalmaðurinn þegar San Antonio Spurs varð síðast NBA-meistari í körfubolta en það voru engar hetjumóttökur sem kappinn fékk í San Antonio í nótt.

Drungilas dæmdur í tveggja leikja bann
Adomas Drungilas, leikmaður Þórs Þ. í Domino's deild karla, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir að gefa Mirza Saralilja olnbogaskot í leik gegn Stjörnunni 18. mars.

Áttundi sigurinn í röð hjá Giannis og félögum en litlu munaði
Leikmenn Milwaukee Bucks er á mikilli sigurgöngu í NBA deildinni í körfubolta en voru næstum því búnir að henda frá sér sigrinum í nótt.

Ekki leikið í kvöld
Ekki verður leikið í Domino's deild kvenna í körfubolta og Olís-deild karla í handbolta í kvöld.

NBA dagsins: Harden landaði sigri án Durant og Irving og líka án þessa að hitta
James Harden hélt uppi leik Brooklyn Nets í fjarveru stórstjarnanna Kevin Durant og Kyrie Irving. Það er óhætt að segja að Nets-liðið sé að breytast í liðið hans Harden.

„Spilling og valdníðsla af hálfu ÍSÍ“
„Ég bara trúi því ekki að stofnun með þetta vald skuli segja svona í fjölmiðlum,“ segir Vésteinn Sveinsson, körfuboltaþjálfari hjá Aþenu, um þær ástæður sem framkvæmdastjóri ÍSÍ gaf fyrir því að ekki væri búið að staðfesta lög félagsins.

KR-ingar sagðir vera að fá „Túrbó“ liðsstyrk frá Bandaríkjunum
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson gæti klárað þetta tímabil með KR í Domino´s deildinni í körfubolta ef marka má nýjustu fréttir.

Lakers tapar og tapar án LeBrons James og tólfta þrenna Jokic
Það gengur ekkert hjá NBA meisturum Los Angeles Lakers eftir að liðið missti LeBron James í meiðsli í viðbót við það að missa Anthony Davis.

Tryggvi Snær tók sjö fráköst er Zaragoza tapaði sínum öðrum leik í Meistaradeildinni
Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í spænska körfuknattleiksliðinu Zaragoza hafa átt góðu gengi að fagna í Meistaradeild Evrópu það sem af er tímabili. Það er þangað til í kvöld er liðið steinlá gegn Bamberg frá Þýskalandi, lokatölur 117-76.

NBA dagsins: Einn af skemmtilegustu leikjunum á ferlinum
Ein löng sigurganga og ein miklu lengri taphrina enduðu í NBA deildinni í körfubolta í nótt.

Meistaraliðin mætast í bikarnum
Fimm úrvalsdeildarslagir verða í 16-liða úrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta. Aðeins Tindastóll og Grindavík sleppa við að mæta úrvalsdeildarliði. Bikarmeistarar Skallagríms mæta Íslandsmeisturum Vals í VÍS-bikar kvenna.

Átti sinn langbesta leik í vetur eftir gönguferð upp að gosinu í Geldingadal
Bandaríski bakvörðurinn Calvin Burks var óstöðvandi í Grindavík í gær þegar topplið Keflavík rúllaði upp nágrönnum sínum.

Einn sá besti í NBA sögunni lést í gær
Heiðurshallarmeðlimurinn Elgin Baylor er látinn 86 ára gamall. NBA fjölskyldan minnist hans og sendir aðstandendum hans samúðarkveðjur.

Dagný Lísa með að minnsta kosti eitt af öllu en Kúrekastelpurnar eru úr leik
Það var bara einn dans hjá fulltrúa Íslands í Marsfárinu í bandaríska háskólakörfuboltanum í ár.

Houston tókst loksins að vinna leik eftir tuttugu töp í röð
Houston Rockets vann langþráðan sigur í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og Los Angeles Clippers endaði átta leikja sigurgöngu Atlanta Hawks með magnaðri endurkomu í seinni hálfleik.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Keflavík 82-115 | Keflvíkingar niðurlægðu nágranna sína
Keflvíkingar fóru illa með Grindvíkinga á heimavelli þeirra síðarnefndu í Domino´s deildinni í kvöld. Lokatölur 115-82 þar sem gestirnir léku við hvern sinn fingur.

Ólafur: Vorum sjálfum okkur til skammar
Ólafur Ólafsson ræddi við Svala Björgvinsson að leik loknum í kvöld og var hreinskilinn um slaka frammistöðu Grindvíkinga í tapinu gegn grönnunum í Keflavík.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Þór Þ. 98-105 | Þór frá Þorlákshöfn endurheimti 2. sætið eftir kaflaskiptan leik
Þór Þ. vann ÍR í leik sem best er lýst sem kaflaskiptum en á endanum skiptir máli að skora fleiri stig en andstæðingurinn og það gerði Þór Þ.