Eik fær ekki að áfrýja dómi Landsréttar í málinu gegn Andra Má Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Eikar fasteignafélags um að fá leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í máli félagsins gegn Andra Má Ingólfsson, fjárfesti og fyrrverandi aðaleiganda Primera Air. Málið varðaði kaup félagsins á Hótel 1919 af fjárfestinum árið 2016. Innherji 17. desember 2021 15:51
Arion er hástökkvari ársins eftir hartnær tvöföldun á genginu Arion banki og Eimskip eru kauphallarfélögin sem hafa á þessu ári hækkað langsamlega mest í verði en frá byrjun árs hafa hlutabréfaverð beggja félaga hækkað um meira en 90 prósent. Innherji 17. desember 2021 10:15
Orðrómur á fjármálamörkuðum Það er alkunn staðreynd að fjármálamarkaðir búa öllum stundum við ófullkomnar og óstaðfestar upplýsingar. Oft er vísað til slíkra upplýsinga sem „orðróms“ þó svo að rökréttara væri að lýsa upplýsingunum sem „óstaðfestum“ enda eru þær það í huga fjárfesta. Umræðan 17. desember 2021 08:32
Icelandair flýgur til Norður-Karólínu Icelandair hefur bætt áfangastaðnum Raleigh-Durham í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum við leiðarkerfi sitt. Flogið verður þangað fjórum sinnum í viku næsta sumar á tímabilinu 12. maí til 30. október. Viðskipti innlent 16. desember 2021 16:34
Arion banki hækkar arðsemismarkmið sitt upp í 13 prósent Arion banki hefur hækkað arðsemismarkmið sitt úr 10 prósentum upp í 13 prósent en bankinn greindi frá uppfærðum fjárhagslegum markmiðum í tilkynningu til Kauphallarinnar. Innherji 16. desember 2021 15:47
Gerðu húsleit vegna rannsóknar á sölu tveggja skipa Eimskips Embætti héraðssaksóknara gerði í dag húsleit á aðalskrifstofu Eimskipafélagsins. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaskóknari í samtali við Vísi. Embættið fékk úrskurð til húsleitar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og óskaði eftir afmörkuðum gögnum vegna sölu skipanna Goðafoss og Laxfoss á árinu 2019 sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara 2020. Viðskipti innlent 16. desember 2021 14:13
Forstjóri PLAY: „Við höfum séð að það er bara verðið sem skiptir máli“ Bandaríkjaflug PLAY, sem hefst í vor, gjörbreytir viðskiptalíkani íslenska flugfélagsins og leiðir til þess að umsvifin aukast gríðarlega. Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, segir félagið í góðu færi til að sækja markaðshlutdeild á tengimarkaðinum yfir Norður-Atlantshafið með lágum verðum. Verðið sé það sem skipti mestu máli þegar upp er staðið. Innherji 16. desember 2021 11:27
Play hefur miðasölu vestur um haf Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til bandarísku borganna Boston og Washington D.C. Fyrsta flugið til bandarísku höfuðborgarinnar Washington verður 20. apríl næstkomandi og til Boston 11. maí. Viðskipti innlent 16. desember 2021 11:04
Hagnaður af sölu óvirku innviðanna 6,5 milljarðar króna Uppgjör Sýnar hf og bandaríska framtaksfjárfestingafélagsins DigitalBridge Group Inc., áður Colony Capital Inc., í tengslum við sölu á óvirkum farsímainnviðum félagsins fór fram í dag. Viðskipti innlent 14. desember 2021 14:14
Ríkisábyrgðin hefur verið mikilvægur öryggisventill að mati Icelandair Ríkisábyrgð á lánalínu til Icelandair hefur verið mikilvægur öryggisventill fyrir íslenska flugfélagið þrátt fyrir að félagið hafi ekki þurft að draga á línuna. Þetta kemur fram í svari flugfélagsins við fyrirspurn Innherja um hvort það hafi þurft eða muni hugsanlega þurfa að draga á lánalínuna áður en ríkisábyrgðin rennur út næsta haust. Innherji 14. desember 2021 12:01
Gróa Björg hættir hjá Skeljungi Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnarhátta og gæðamála hjá Skeljungi, hefur sagt starfi sínu lausu. Viðskipti innlent 13. desember 2021 20:22
Alvotech, Kerecis og öll hin – ekki líta fram hjá Kauphöll Íslands Áhugaverðir tímar eru framundan á Íslandi og sérstaklega fyrir fjárfesta, bæði einstaklinga og fagfjárfesta. Ef marka má nýjustu fregnir stefna nokkur fyrirtæki á hlutabréfamarkað á næstunni, meðal annars Alvotech, Kerecis, Arctic Adventures og fleiri þegar fram líða stundir. Umræðan 11. desember 2021 14:00
Vilja fella niður ríkisábyrgð á lánalínum Icelandair Félag atvinnurekenda leggur til að heimildin til að veita Icelandair Group sjálfskuldaraábyrgð ríkissjóðs á lánum verði felld út úr fjárlagafrumvarpinu. Þetta kemur fram í umsögn félagsins. Innherji 10. desember 2021 13:30
Innherjaupplýsingar á ólíklegustu stöðum og miðlun þeirra Þegar ég heyri orðin innherjaupplýsingar og innherjasvik hugsa ég oft til kvikmyndarinnar Wall Street frá árinu 1987 með Charlie Sheen og Michael Douglas sem hinn ógleymanlegi Gordon Gekko („greed is good“). Umræðan 10. desember 2021 11:06
Tekur við markaðsmálunum hjá Origo Lóa Bára Magnúsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Origo. Viðskipti innlent 10. desember 2021 09:04
Markaðsvirði Controlant nálgast óðum 100 milljarða Ekkert lát er á verðhækkunum á gengi óskráðra hlutabréfa íslenska hátæknifyrirtækisins Controlant, sem hefur meðal annars verið í lykilhlutverki við dreifingu á bóluefni gegn COVID-19 fyrir lyfjarisann Pfizer, en markaðsvirði félagsins hefur hækkað um nærri fimmfalt á aðeins um einu ári. Innherji 10. desember 2021 07:01
Flugvélar Play með besta nýja útlit ársins Útlit flugvéla flugfélagsins Play hlaut verðlaun TheDesignAir fyrir besta nýja útlit ársins í flugheiminum. Viðskipti innlent 9. desember 2021 19:04
Verðmetur Sjóvá 15 prósentum yfir markaðsgengi Verðmatsgengi Sjóvár, samkvæmt greiningu Jakobsson Capital, er 43,4 krónur á hlut en það er tæplega 15 prósentum yfir markaðsgengi tryggingafélagsins. Þetta kemur fram í nýju verðmati Jakobsson Capital. Innherji 9. desember 2021 14:33
Fossar markaðir að verða fjárfestingabanki Íslenska verðbréfafyrirtækið Fossar markaðir eru að færa út kvíarnar í starfsemi sinni og stefna nú að því að verða fjárfestingabanki. Samkvæmt heimildum Innherja skilaði félagið þannig nýlega inn umsókn til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands þar sem óskað var eftir því að fá starfsleyfi sem fjárfestingabanki. Innherji 9. desember 2021 08:22
Guðmundur kaupir þrjú þúsund bækur Forstjóri Brims segir fyrirtæki landsins ekki gera nóg til að efla íslenskukunnáttu starfsfólks síns. Hann er uggandi um stöðu tungumálsins og var að enda við að gefa eina stærstu bókagjöf á Íslandi um langt skeið. Innlent 9. desember 2021 07:01
Þjóðarsjóður Kúveit kominn með um tveggja milljarða hlut í Arion Þjóðarsjóður Kúveit, einn stærsti fjárfestingasjóður í ríkiseigu í heiminum, hefur nýlega aukið verulega við eignarhlut sinn í Arion banka og nemur markaðsvirði bréfa sjóðsins í bankanum nú um tveimur milljörðum króna. Innherji 8. desember 2021 19:19
Fyrstur sjóða á Íslandi til að hljóta hæstu ESG-einkunnina frá MSCI Sjóðurinn Stefnir – Scandinavian Fund ESG hefur hlotið AAA-einkunn MSCI, þá hæstu sem veitt er og er hann fyrstur íslenskra sjóða til að hljóta þessa einkunn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðastýringarfyrirtækinu Stefni. Innherji 8. desember 2021 17:00
Skyldurækni gagnvart heimamarkaðinum Í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum árið 2012 steig Barack Obama, sem sóttist þá eftir endurkjöri, upp á svið í Virginíuríki og flutti ræðu sem átti eftir að lita kosningabaráttuna. Umræðan 7. desember 2021 10:06
Ætla að sækja allt að 10 milljarða fyrir skráningu í Svíþjóð eða Bandaríkjunum Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Kerecis vinnur nú að því að sækja sér samtals um 40 til 80 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 5 til rúmlega 10 milljarða íslenskra króna, í nýtt hlutafé í tengslum við áform félagsins um skráningu á hlutabréfamarkað í Svíþjóð eða Bandaríkjunum snemma á næsta ári. Innherji 7. desember 2021 07:01
Icelandair á enn langt í land Icelandair flutti um 170 þúsund farþega í innanlands- og millilandaflugi í nóvember. Áfram sést mikil aukning milli ára en um 13 þúsund flugu með flugfélaginu á sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 6. desember 2021 19:04
Icelandair harmar slysið á Keflavíkurflugvelli Icelandair harmar slys sem átti sér stað á laugardag þegar eldri maður féll á flugstæði á Keflavíkurflugvelli á leið úr flugvél félagsins. Icelandair segir að öllum verkferlum hafi verið fylgt í aðdraganda óhappsins en farþegarnir voru að koma frá Orlando í Flórída. Innlent 6. desember 2021 17:54
„Þetta hefði getað verið banvænt ef því er að skipta“ Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá heildsölunni Kemi, segir mikla mildi að eldri maður hafi ekki slasast alvarlega við komuna til Íslands frá Orlando í Flórída. Hann kallar eftir meiri þjónustu við farþega að vetri til sem gangi úr flugvélunum niður brattar tröppur sem geti verið hálar og stórhættulegar. Innlent 6. desember 2021 11:12
Strangari reglur hjá Seðlabankanum en ráðuneytinu í útboði Íslandsbanka Engum starfsmanni Seðlabanka Íslands var heimilt að taka þátt í hlutafjárútboði Íslandsbanka en langflestum starfsmönnum fjármála- og efnahagsráðuneytisins var heimilt að kaupa bréf í útboði bankans, að því gefnu að þær byggju ekki yfir innherjaupplýsingum. Þetta kemur fram í svari stofnananna við fyrirspurnum Innherja. Innherji 6. desember 2021 10:01
Heimilt að selja hvenær sem er á opnum markaði eða í gegnum lokað útboð Bankasýslunni, sem heldur utan um 65 prósenta eignarhlut ríkissjóðs í Íslandsbanka, er heimilt að selja hlutabréf sín í bankanum hvort heldur sem er á opnum markaði eða í gegnum lokað útboð til fagfjárfesta hvenær sem er eftir að tímabili sölubanns lýkur síðar í þessum mánuði. Innherji 6. desember 2021 07:00
Töluverðar raskanir á flugsamgöngum vegna óveðursins Óveðrið í dag hefur haft töluverð áhrif á flugsamgöngur en aðeins ein vél lenti á Keflavíkurflugvelli frá því í morgun og þar til seinnipartinn í dag. Innlent 5. desember 2021 16:50