„Lýðræðið hefur sigrað“ „Þetta er dagur Ameríku. Þetta er dagur lýðræðis. Dagur sögunnar og vonar,“ sagði Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, við upphaf fyrstu ræðu sinnar eftir að hann sór formlega eið að embættinu við hátíðlega athöfn í dag. „Í dag fögnum við sigri, ekki sigri frambjóðenda, heldur sigri málstaðar. Málstaðar lýðræðis,“ sagði forsetinn ennfremur. Erlent 20. janúar 2021 17:46
Joe Biden er 46. forseti Bandaríkjanna Joe Biden sór rétt í þessu embættiseið og er nú forseti Bandaríkjanna. Kamala Harris er varaforseti, fyrst kvenna og fyrst svartra Bandaríkjamanna. Fráfarandi forseti var ekki viðstaddur athöfnina en varaforsetinn Mike Pence mætti ásamt eiginkonu sinni. Erlent 20. janúar 2021 16:50
Hver verða skilaboð Trump til Biden? Reagan fyrstur til að skilja eftir bréf til næsta forseta Donald Trump hefur yfirgefið Hvíta húsið í hinsta sinn og fregnir þess efnis að hann hafi ekki skilið eftir skilaboð til Biden verið dregnar til baka. Erlent 20. janúar 2021 15:03
Segir ekki hægt að afskrifa valdatíð Trumps sem algjört frávik Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, segir ekki hægt að afskrifa valdatíð Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, sem algjört frávik. Hann hafi sprottið úr jarðvegi sem hafi orðið til jafnt og þétt í Bandaríkjunum allt frá árinu 1970 þegar íhaldsöfl risu upp gegn ákveðinni frjálslyndisbylgju sem þá var. Innlent 20. janúar 2021 12:35
Trump fjarri góðu gamni: Hvað verður um kjarnorkufótboltann og kexið? Ef Donald Trump verður ekki viðstaddur þegar Joe Biden sver embættiseiðinn, hvernig mun þá fara með svokallaðan „kjarnorkufótbolta“, sem á að skiptast um hendur á nákvæmlega sama tíma? Erlent 20. janúar 2021 11:47
Davíð kveður Trump með gráu gríni að hætti hússins „Gunnar Rögnvaldsson bendir á að fréttastofur Sky News og Yahoo veki athygli á „að Wuhanveiran hafði fundist í kínverskum ís sem seldur er í neytendapakkningum innanlands í Kína.“ Innlent 20. janúar 2021 11:15
Vaktin: Innsetningardagur Bidens Joe Biden sór embættiseið og tók við völdum sem 46. forseti Bandaríkjanna í dag. Það gerir hann í skugga gífurlegrar öryggisgæslu vegna árásarinnar á þinghúsið í byrjun mánaðarins og faraldurs nýju kórónuveirunnar. Erlent 20. janúar 2021 11:01
Svona er dagskráin á innsetningardegi Bidens og Harris Demókratinn Joe Biden sver í dag embættiseið sem 46. forseti Bandaríkjanna. Innsetningarathöfnin fer venju samkvæmt fram í Washington-borg en hún verður með nokkuð óvenjulegu sniði, bæði vegna kórónuveirufaraldursins og árásarinnar á þinghúsið í borginni fyrr í mánuðinum. Erlent 20. janúar 2021 09:00
Nefndi Biden aldrei á nafn í síðasta ávarpinu sem forseti Donald Trump, sem lætur af embætti forseta Bandaríkjanna á morgun, segist munu „biðja fyrir velgengni“ Joes Biden, sem tekur við embættinu af honum á morgun. Hvíta húsið birti kveðjuávarp Trumps nú fyrir skömmu. Erlent 19. janúar 2021 21:57
Washington „eins og herstöð“ í aðdraganda embættistöku Washington svipar til herstöðvar vegna aukinnar öryggisgæslu, segir íslensk kona sem er búsett í borginni. 25 þúsund þjóðvarðliðar eru þar við störf vegna embættistöku Joes Biden á morgun. Erlent 19. janúar 2021 18:31
Skilur eftir sig „djúpríki“ Trump-liða Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, mun skilja eftir sig mikinn fjölda opinberra starfsmanna sem voru upprunalega pólitískt skipaðir í störf sín. Erfitt mun vera fyrir ríkisstjórn Joe Biden að koma þessum mönnum frá. Erlent 19. janúar 2021 12:20
Biden hyggst framlengja ferðabannið Joe Biden verðandi Bandaríkjaforseti ætlar að framlengja ferðabann sem hefur hindrað komu nærri allra farþega án bandarísks ríkisfangs sem hafa á síðustu 14 dögum verið í Brasilíu, Bretlandi, Írlandi eða þeim 26 ríkjum sem tilheyra Schengen-svæðinu. Ísland er þeirra á meðal. Erlent 19. janúar 2021 06:35
Rannsaka bakgrunn þúsunda þjóðvarðliða Bandaríska alríkislögreglan, FBI, rannsakar nú bakgrunn þeirra 25 þúsund þjóðvarðliða sem væntanlegir eru til Washington-borgar í vikunni til þess að gæta öryggis þegar Joe Biden sver embættiseið sinn sem forseti Bandaríkjanna. Innsetningin verður á miðvikudag. Erlent 18. janúar 2021 09:05
Vill vinda ofan af embættisverkum Trumps sem fyrst Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, virðist ætla að hefjast handa við það að vinda ofan af ýmsum stefnumálum Donalds Trump, fráfarandi forseta, um leið og hann tekur við embættinu, þann 20. janúar næstkomandi. Erlent 17. janúar 2021 13:38
Facebook bannar vopnaauglýsingar í Bandaríkjunum Facebook hefur ákveðið að banna auglýsingar sem auglýsa aukahluti fyrir vopn og hlífðarbúnað í Bandaríkjunum. Bannið tekur þegar gildi og mun gilda að minnsta kosti þar til á föstudag, tveimur dögum eftir að Joe Biden, verðandi forseti, sver embættiseið sinn þann 20. janúar. Erlent 16. janúar 2021 23:30
Öll fimmtíu ríki Bandaríkjanna búa sig undir óeirðir Öll fimmtíu ríki Bandaríkjanna auk Washington DC eru viðbúin vegna mótmæla sem búast má við um helgina. Talið er að óeirðir geti brotist út en andstæðingar Joe Bidens verðandi Bandaríkjaforseta stefna á götur út til að mótmæla embættistöku forsetans verðandi. Erlent 16. janúar 2021 19:43
Biden vill bæta í bólusetningar Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, lofaði í gær að undir hans stjórn myndu bandarísk stjórnvöld bæta í bólusetningar við kórónuveirunni. Erlent 16. janúar 2021 07:57
Biden verður @POTUS 20. janúar en verður að safna fylgjendum upp á nýtt Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur fengið úthlutað nýjum Twitter-aðgang. Hann mun hins vegar þurfa að byrja upp á nýtt að safna fylgjendum, ólíkt því sem gerðist þegar Obama lét af embætti og Donald Trump tók við. Erlent 15. janúar 2021 15:26
Kynnti 1.900 milljarða dala aðgerðapakka Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, kynnti í gærkvöldi aðgerðapakka sem ætlað er að örva bandarískan efnahag í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Alls er fyrirhugað að verja 1.900 milljörðum Bandaríkjadala til ýmissa verkefna og meðal annars fá allir landsmenn 1.400 dala eingreiðslu, um 180 þúsund krónur. Erlent 15. janúar 2021 07:42
Lady Gaga og Jennifer Lopez syngja fyrir Biden Tónlistar- og leikkonurnar Lady Gaga og Jennifer Lopez munu syngja við innsetningarathöfn Joes Biden þegar hann tekur við embætti Bandaríkjaforseta eftir viku. Frá þessu sagði nefndin sem sér um athöfnina í dag. Lífið 14. janúar 2021 15:54
Burns mun stýra leyniþjónustunni CIA Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, mun tilnefna William Burns sem næsta forstjóra bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Hinn 64 ára Burns hefur áður starfað sem diplómati í bandarísku utanríkisþjónustunni og gegndi embætti aðstoðarutanríkisráðherra á árunum 2011 til 2014. Erlent 11. janúar 2021 12:30
Pence verður viðstaddur embættistöku Biden Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, ætlar að vera viðstaddur þegar Joe Biden og Kamala Harris verða sett í embætti síðar í þessum mánuði. Fjölmiðlar vestanhafs hafa þetta eftir heimildarmanni í Washington, en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sjálfur lýst því yfir að hann muni ekki vera viðstaddur innsetningarathöfnina. Erlent 10. janúar 2021 11:15
Trump verður ekki viðstaddur innsetningu Bidens Donald Trump fráfarandi Bandaríkjaforseti ætlar ekki að mæta á vígsluathöfn Joes Biden þann 20. janúar. Frá þessu greinir Trump á Twitter en nefnir ekki ástæðu þess að hann ætlar ekki að mæta. Erlent 8. janúar 2021 16:03
Sagði atburði gærdagsins afleiðingu valdatíðar Trump Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt viðbrögð lögreglu við árásinni á þinghúsið í gær harðlega. Hann segir óásættanlegt að hugsa til þess að lögregla hefði brugðist við af meiri hörku ef um Black Lives Matter mótmæli væri að ræða. Erlent 7. janúar 2021 21:41
Hverjar verða afleiðingar atburða gærdagsins? Mikill titringur er í Washington D.C. eftir atburðarás gærdagsins og meðal annars rætt óformlega um að koma forsetanum frá. Bandaríska þingið lauk í gær talningu atkvæða kjörmanna og því ekkert sem kemur í veg fyrir að Joe Biden verði forseti 20. janúar nk. Erlent 7. janúar 2021 13:42
Maðurinn sem Obama tilnefndi í Hæstarétt verður dómsmálaráðherra Bidens Dómarinn Merrick Garland, sem Barack Obama tilnefndi sem hæstaréttardómara árið 2016 en þingmenn Repúblikana neituðu að staðfesta í embætti, verður dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Joes Biden. Erlent 7. janúar 2021 09:04
Kjör Bidens staðfest þrátt fyrir innrás í þinghúsið Bandaríkjaþing staðfesti nú rétt í þessu kjör Joe Bidens og Kamölu Harris sem forseta og varaforseta Bandaríkjanna eftir ótrúlega atburðarás í gær þar sem þetta lýðræðislega ferli var hindrað. Erlent 7. janúar 2021 08:48
Fjórir látnir eftir árásina á þinghúsið Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir óeirðirnar við þinghús Bandaríkjaþings í Washington DC í gær. Erlent 7. janúar 2021 07:02
Trump einangraður eftir ótrúlega atburðarás Þingmenn, stórfyrirtæki og stjórnmálaleiðtogar hafa fordæmt Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, fyrir viðbrögð hans við atburðum gærkvöldsins í þinghúsinu í Washington D.C. Twitter ákvað að loka fyrir aðgang hans af ótta við að færslur hans myndu hvetja til ofbeldis og samstarfsmenn hans eru sagðir íhuga að koma honum frá völdum. Erlent 7. janúar 2021 03:25
Obama sakar repúblikana um að afvegaleiða stuðningsmenn sína Atburðarás dagsins verður skráð í sögubækurnar sem hneisa og skömm bandarísku þjóðarinnar. Þetta segir Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, í yfirlýsingu sem hann hefur birt á Twitter. Erlent 7. janúar 2021 02:13
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent