Húnabyggð

Húnabyggð

Mannfjöldi: 1.374 (2025). Flatarmál: 4.488 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Blönduós, Skagabyggð.


Fréttamynd

Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta

Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra leggjast gegn hugmyndum um sameiningu og skipulag lögregluembætta. Að mati starfsmanna hefur ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að fækka lögregluembættum eða að fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Norðurlandi vestra.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf

Það er mikið rætt um að auka þurfi raforkuvinnslu á Íslandi og tryggja orkuöryggi. Það er líka ástæða til að horfa vel á þá innviði sem við eigum og spyrja hvað þurfi að gera til að verja þá. Vatnsstaða Blöndulóns gefur fullt tilefni til þess.

Skoðun
Fréttamynd

Það er líka dýrt að bíða

Sumt er nú þannig að manni verður fyrirmunað að skilja. Við tölum um að það vanti raforku, flutningskerfið hamli atvinnuuppbyggingu og hraða þurfi orkuskiptum.

Skoðun
Fréttamynd

Agnes var meira en bara morðingi

Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja.

Innlent
Fréttamynd

Sér Blöndu­ós eflast með byggðalínu og virkjunum

Oddviti Húnabyggðar vonast til að orka Blönduvirkjunar muni í vaxandi mæli nýtast til atvinnuuppbyggingar á Blönduósi með nýrri byggðalínu. Hann hvetur jafnframt til þess að meira verði virkjað á Blöndusvæðinu sem fyrst.

Innlent
Fréttamynd

Mal­bika í gegnum hólana í Vatns­dal

Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla.

Innlent
Fréttamynd

Hún­vetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa

Framkvæmdir eru hafnar við tvöföldun gagnavers Borealis við Blönduós til að mæta þörfum gervigreindarfyrirtækja og kalla þær á allt að tvöhundruð manns í vinnu á verktíma. Oddviti Húnabyggðar segir að milli þrjátíu og fjörutíu ný varanleg störf séu að verða til í héraðinu vegna gagnaversins.

Innlent
Fréttamynd

Um mögu­lega 20 km styttingu Hring­vegar á Norður­landi vestra

Nú styttist væntanlega mjög í að Alþingi samþykki samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030 auk frumvarps til laga um nýtt innviðafélag sem annist gerð vega og annarra samgöngumannvirkja og innheimti gjald fyrir notkun þeirra.

Skoðun
Fréttamynd

„Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“

Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason og fjölskylda hans týndu „enn og aftur“ tuskudýrinu Sæta Stebba á ferðalagi um Norðurland. Ævintýralemúrinn hefur einstakt lag á að týnast, tvívegis verið grafinn lifandi og varði nokkrum á golfvellinum í Öndverðarnesi.

Lífið
Fréttamynd

Að kjósa af yfir­vegun

Ég man ekki allt úr æsku minni. Minnið virkar sjaldan þannig. Það sem situr eftir eru minningarbrot, í ljóma fortíðar og á stangli.

Skoðun
Fréttamynd

Skíðagöngumennirnir komnir í skjól

Björgunarsveitir hafa nú náð til skíðagönguskíðamanna sem voru á Hofsjökli og óskuðu aðstoðar. Þeir hafa verið flutt í skjól og unnið er að því að ná búnaði þeirra einnig niður af jöklinum.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum með stórt sár á sálinni“

Ellefu manna fjölskylda slapp lygilega vel úr alvarlegu bílslysi á Þverárfjallsvegi á leið sinni úr skírnarveislu á Sauðarkróki. Fjölskyldan sem taldi afa og ömmu, þrjú uppkomin börn þeirra og fjögur barnabörn þeirra ferðaðist á tveimur bílum, einn fyrir framan annan, þegar bíll þveraði veginn og skall á bílunum tveimur með þeim afleiðingum að báðir fóru út af og annar valt.

Innlent
Fréttamynd

Allir bílarnir ó­nýtir og mildi að ekki fór verr

Varðstjóri hjá lögreglunni á Norðvesturlandi segir mildi að ekki hafi farið verr þegar að tvö umferðarslys urðu með um fimmtán mínútna millibili á svæðinu í gær. Aksturskilyrði versnuðu mjög skyndilega. Vegurinn hafði ekki verið hálkuvarinn.

Innlent