Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Kristján Már Unnarsson skrifar 28. júlí 2026 23:26 Harpa Birgisdóttir, bóndi á Kornsá í Vatnsdal. Fyrir aftan er Kattaraugað, tjörnin fræga með fljótandi eyjunum. Egill Aðalsteinsson Kattarauga nefnist friðlýst tjörn í Vatnsdal í Húnaþingi sem þykir sérstök sökum þess að á henni eru tvær fljótandi eyjar. Þjóðsagan segir að þar sé falin gullkista.
Í kvöldfréttum Sýnar var farið í Vatnsdal. Náttúruvættið er um tólf kílómetra frá hringveginum og er í landi Kornsár. Kattaraugað er örskammt frá veginum um dalinn. Harpa bóndi á Kornsá fylgir fréttamanni að tjörninni Kattarauga.Egill Aðalsteinsson Harpa Birgisdóttir bóndi, sem er fædd og uppalin á Kornsá, segir að heimamönnum þyki Kattaraugað ekki sérlega merkilegt. „Nei, við svo sem pælum ekkert oft í þessu sko. Þetta er bara hérna,“ segir Harpa og rifjar upp að það hafi verið leikvöllur krakkanna í sveitinni. „Já, það var alveg svona stemmning í því að hoppa út á stærri eyjuna ef þær voru nálægt landi. Það var bölvað bras að ætla að fara á minni eyjuna, af því að hún gaf svo mikið eftir,“ segir hún hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Hún tekur fram að þetta sé núna harðbannað, enda Kattaraugað friðlýst vegna fljótandi eyjanna. „Eyjarnar eru ekki botnfastar þessar tvær, heldur reka þær undan vindi. Ef það er búið að vera stíf norðanátt þá liggja þær þarna megin. Og ef það er stíf sunnanátt þá liggja þær þarna megin,“ segir hún um leið og hún bendir á tjarnarbakkana. Eyjarnar tvær fljóta á tjörninni.Egill Aðalsteinsson Tjörninni fylgir gömul sögn. „Það á víst að vera gullkista hérna einhvers staðar á botninum. En ég veit ekki alveg í hvaða holu hún ætti að vera.“ -Þú hefur ekki reynt að skutla þér út í og synda? „Nei, þetta er nefnilega drjúgdjúpt sko,“ segir Harpa og giskar á að tjörnin sé þriggja til fjögurra metra djúp. Upplýsingaskilti um Kattaraugað.Egill Aðalsteinsson „Og mér hefur verið sagt að í gamla daga, ef það voru vandræði með vatn, þá fraus ekki hér. Þannig að það var hægt að ná í vatn til að brynna skepnum og slíkt í tjörnina.“ -Er mikið um ferðamenn sem koma hingað? „Nei, það eru ekki oft bílar hérna. Svona annað slagið einhverjir bílar. En kannski oftar íslenskir ferðamenn heldur en erlendir,“ segir Harpa Birgisdóttir, bóndi á Kornsá.
Húnabyggð Ferðalög Umhverfismál Tengdar fréttir Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla. 17. júní 2026 07:22 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira
Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla. 17. júní 2026 07:22