Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Kristján Már Unnarsson skrifar 30. júní 2026 07:08 Ólafur Óskarsson, 72 ára jarðýtustjóri hjá Vörubílstjórafélaginu Mjölni. Egill Aðalsteinsson Sunnlenskur ýtustjóri á áttræðisaldri, sem sinnir vegagerð í Húnaþingi í sumar, segist í upphafi hafa ætlað að vera í þrjár vikur á vinnuvélum. Þær vikur séu núna orðnar 54 ár.
Í hópi tíu karla við vegagerð í Vatnsdal, sem við sögðum frá í kvöldfréttum Sýnar, er aldursforsetinn á stærðarinnar jarðýtu.Hann er úr Landeyjum og samstarfsfélagar hans hjá Vörubílstjórafélaginu Mjölni telja að hann geti verið elsti ýtukarl á Íslandi í vegagerð um þessar mundir. Við fáum hann til að gera stutt hlé á vinnunni og spyrjum hvort það geti verið að hann sé elsti ýtukarl á landinu. „Ja, ég hef ekki skoðað það bara. Ég er búinn að vera nokkuð lengi í þessu,“ svarar Ólafur Óskarsson. Spjallað við ýtustjórann.Egill Aðalsteinsson -Hvað ertu búinn að vera lengi í þessu? „Þetta er 54. árið. Byrjaður 1972.“ Ólafur segist vera orðinn 72 ára gamall. -Eru þeir mikið eldri, karlarnir í vegagerð í dag? „Það eru einhverjir til á þessum aldri.“ -En hvað veldur því að þú endist svona lengi í þessu? „Maður getur bara ekki verið iðjulaus. Og þá er alveg eins gott að vera áfram bara heldur en að finna sér eitthvað annað,“ svarar Ólafur hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Hann segist einnig hafa verið á vegheflum og völturum en mest þó á jarðýtum og gröfum. Við spyrjum hvort ýtan sem hann er á núna sé ekki með stærri ýtum. „Nei, nei, þetta er bara kettlingur, þetta er ekki nema tuttugu tonn, þessi vél.“ -Og dálítið öflug, vænti ég. „Já, já, hún er ágætlega öflug. Hún er góð í svona vinnu, taka hlössin og jafna þeim svo út.“ Ólafur segir sætin núna mun betri í jarðýtum en var þegar hann var að byrja fyrir 54 árum.Egill Aðalsteinsson Verkefnið í Vatnsdal er að endurbyggja þrettán kílómetra kafla og skila honum með bundnu slitlagi. En er þetta gaman? „Það hlýtur að vera. Ég ætlaði að vera í þessu í þrjár vikur þegar ég byrjaði. Og þær eru ekki liðnar enn. Þannig að þetta hlýtur að vera gaman. Enda búinn að kynnast mörgum og lenda í mörgum skemmtilegum verkefnum. Alltaf gaman af að móta eitthvað svona,“ svarar ýtustjórinn. -Er eitthvað gefandi við það að búa til nýja og betri vegi? „Já, það er alltaf gaman að sjá eitthvað liggja eftir sig sem að nýtist öllum. Og þetta fer náttúrulega betur með bíla og öll tæki að geta keyrt á klæddum vegi heldur en svona malarvegi,“ svarar Landeyingurinn Ólafur. „Þetta er bara kettlingur,“ segir ýtustjórinn um tuttugu tonna tækið.Egill Aðalsteinsson
Vegagerð Eldri borgarar Húnabyggð Byggingariðnaður Tengdar fréttir Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla. 17. júní 2026 07:22 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira
Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla. 17. júní 2026 07:22