

Hollywood
Fréttir af fræga fólkinu úti í hinum stóra heimi.

Kröfu Britney um að flýta réttarhöldum um forræði hennar hafnað
Beiðni tónlistarkonunnar Britney Spears um að réttarhöldum um forræði föður hennar yfir hennar málefnum hefur verið hafnað. Dómari úrskurðaði í gær að réttarhöldin muni hefjast þann 29. september, eins og áður stóð til.

Joe Exotic segist búa sig undir dauðann vegna krabbameins
Dýrahirðirinn og dæmdi glæpamaðurinn Joe Exotic segist ekki hafa fengið neina læknisþjónustu svo mánuðum skipti og nú sé hann að búa sig undir dauðann. Exotic afplánar nú 22 ára fangelsisdóm fyrir að hafa skipulagt morðtilraun á helsta óvini sínum.

Suicide Squad-stjarna fær nálgunarbann gegn fyrirsætu sem sakar hann um nauðgun
Sænski leikarinn Joel Kinnaman hefur fengið tímabundið nálgunarbann gegn sænsku fyrirsætunni Bella Davis, sem sakað hefur hann um að hafa nauðgað sér. Kinnamann sakar hana á móti um að hafa ætlað að kúga sig.

Kraftmikill niðurgangur varð rennibrautarþætti að falli
Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hefur endanlega hætt við framleiðslu á leikjaþættinum The Ultimate Slip N’ Slide. Kraftmikil niðurgangspest varð framleiðslu þáttarins að falli.

Faðir Britney segir enga ástæðu til að fella niður forræði sitt yfir dóttur sinni
Jamie Spears, faðir Britney Spears, segir enga ástæðu til að fella niður forræði hans yfir henni. Hann fer með forræði yfir fjármálum hennar en söngkonan vill losna við föður sinn úr lífi sínu.

Britney Spears vill losna undan valdi föður síns strax
Britney Spears er orðin leið á því að bíða eftir að losna undan valdi föður síns, Jamie Spears. Jamie hefur farið með forræði yfir fjármálum Britney um nokkurn tíma.

Rihanna orðin milljarðamæringur og þar með ríkasta tónlistarkona í heimi
Eignir tónlistarkonunnar og frumkvöðulsins Rihönnu eru metnar á 1,7 milljarða Bandaríkjadala, eða um 212 milljarða íslenskra króna, sem gerir hana efnamestu tónlistarkonuna í heiminum. Tónlistin er þó ekki hennar helsta tekjulind samkvæmt tímaritinu Forbes.

Yljar sér enn við að hafa pissað upp á jökli á Íslandi
Game of Thrones stjarnan Kit Harrington er sannkallaður Íslandsvinur eftir að hafa eytt dágóðum tíma hér á landi við gerð þáttanna ofurvinsælu. Hann segir að eitt augnablik hér á landi nýtist honum alltaf þegar hann verður pirraður í vinnunni.

Kathy Griffin er með lungnakrabbamein
Grínistinn Kathy Griffin hefur greinst með lungnakrabbamein á fyrsta stigi. Griffin deildi fréttunum á Instagram-síðu sinni fyrr í dag og kveðst hún vera bjartsýn.

Bob Odenkirk fékk „lítið hjartaáfall“
Leikarinn Bob Odenkirk hné niður við tökur á þættinum Better Call Saul á dögunum. Hann tilkynnti í gær að hann hefði fengið „lítið hjartaáfall“ og að hann væri á batavegi.

Amanda Knox segir Matt Damon vilja græða peninga á harmi þrunginni ævisögu hennar
Hin bandaríska Amanda Knox heldur því fram að kvikmyndin Stillwater sé byggð á ævisögu hennar og að saga hennar hafi verið notuð, án hennar samþykkis, til að græða peninga.

Lady Gaga snýr aftur á hvíta tjaldið
Söng- og leikkonan Lady Gaga sem fór með stórleik í Hollywood-kvikmyndinni A Star is Born, snýr aftur á hvíta tjaldið í kvikmyndinni House of Gucci.

Stolt af dóttur sinni fyrir að koma út sem transstelpa
Leikkonan Jamie Lee Curtis greindi frá því í viðtali á dögunum að yngsta barn hennar hafi komið út sem transstelpa.

Emma Watson á Íslandi
Leikkonan og aðgerðasinninn Emma Watson er stödd á Íslandi og sást til hennar á röltinu í miðbæ Reykjavíkur í dag.

Svarta ekkjan í hart við Disney
Leikkonan Scarlett Johansson hefur höfðað mál gegn Disney vegna dreifingar kvikmyndarinnar um Svörtu ekkjuna. Hún segir ákvörðun Disney að hafa birt myndina einnig á streymisveitunni Disney+ vera brot á samningi hennar við Marvel.

X Factor búið að vera eftir 17 ára göngu
Raunveruleikaþættirnir X Factor eru búnir að vera eftir 17 ára göngu. Sjónvarpsmaðurinn Simon Cowell, sem hefur verið dómari í þáttunum frá upphafi er sagður hafa ákveðið að seríurnar verði ekki fleiri.

Lopez og Affleck kyssast á lúxussnekkju
Tónlistarkonan Jennifer Lopez deildi í gær myndaseríu á Instagram í tilefni af 52 ára afmæli sínu sem hún hélt upp á í gær. Meðal myndanna er ein af henni og leikaranum Ben Affleck kyssast.

Kim mætti óvænt í hlustunarpartý Kanye
Raunveruleikastjarnan og viðskiptakonan Kim Kardashian mætti óvænt í hlustunarpartý fyrrverandi eiginmanns síns, Kanye West, vegna plötunnar Donda sem átti að koma út í dag. Ekkert bólar þó á plötunni.

13 Reasons Why leikari kemur út sem transkona
Leikarinn Tommy Dorfman, sem vakti athygli í hlutverki Ryans Shaver í Netflix-þáttaröðinni 13 Reasons Why, er kominn út sem transkona.

Þriggja ára dóttir Kylie Jenner gefur út eigið vörumerki
Hin þriggja ára gamla Stormi Webster, dóttir viðskiptamógúlsins og raunveruleikastjörnunnar Kylie Jenner, mun feta í fótspor móður sinnar og gefa út sitt eigið vörumerki von bráðar.

Carrie Bradshaw og vinkonur sameinaðar á ný
Þessa dagana standa yfir tökur á þáttunum And Just Like That...! sem eru framhald af hinum geysivinsælu þáttum Sex and the City. Sautján ár eru síðan þættirnir hættu í sýningu og ellefu ár eru síðan seinni Sex and the City kvikmyndin kom út og því ríkir mikil eftirvænting eftir nýju þáttunum.

Love Island-stjarna sögð eiga leynilegan kærasta
Love Island-stjarnan Lucinda Strafford er sögð eiga í ástarsambandi við fótboltamanninn, Aaron Connoly, sem bíður hennar heima á meðan hún tekur þátt í stefnumótaþættinum.

Britney ætlar ekki að spila á tónleikum á meðan faðir hennar stjórnar ferlinum
Söngkonan Britney Spears segist ekki ætla að spila aftur á tónleikum á meðan faðir hennar stjórnar ferli hennar. Faðir hennar, Jamie Spears, hefur farið með forræði yfir söngkonunni frá árinu 2008 og hefur Britney lýst því að hún hafi engin völd yfir eigin lífi.

Fyrrverandi eiginmaður Britney Spears opnar sig
Jason Alexander, fyrrverandi eiginmaður stórstjörnunnar Britney Spears, tjáði sig nýlega í hlaðvarpsþættinum „Toxic: The Britney Spears Story“. Hann segir teymið á bak við Britney hafa platað hjónin til þess að skilja.

Antonio Banderas, Harrison Ford og Pheobe Waller-Bridge í nýrri Indiana Jones
Næsta ævintýri fornleifafræðingsins Indiana Jones verður stjörnum prýtt en tilkynnt hefur verið að Antonio Banderas muni fara með hlutverk í næstu mynd, þeirri fimmtu í kvikmyndaseríunni.

Irina Shayk vill ekki samband með Kanye West
Ofurfyrirsætan Irina Shayk er ekki sögð vilja fara í samband með tónlistarmanninum Kanye West. Hún kunni þó vel við hann sem vin.

Britney vill kæra pabba sinn fyrir misnotkun
Tónlistarkonan Britney Spears hefur lýst því yfir að hún vilji kæra föður sinn, Jamie Spears, fyrir að hafa misnotað vald sitt yfir henni en hann hefur haft forræði yfir henni, ásamt öðrum, undanfarin 13 ár. Þetta sagði stjarnan í yfirlýsingu fyrir dómi í gær.

Britney fær að velja sér lögmann
Dómari í Los Angeles í Bandaríkjunum úrskurðaði í nótt að poppstjörnunni Britney Spears sé heimilt að ráða sér lögmann.

„Mér er sama þó brjóstin nái niður að nafla“
Leikkonan Gillian Anderson hefur hlotið mikið lof á samfélagsmiðlum fyrir að hafa lýst því yfir í beinni útsendingu á Instagram að hún sleppi brjóstahöldurum alfarið þessa dagana. Anderson, sem er 52 ára gömul, er þekktust fyrir leik sinn í The X-files, The Crown og Sex Education.

Tiger King þættir Amazon hættir í framleiðslu?
Svo virðist vera sem ekkert verði úr þáttum í framleiðslu Amazon um dýrahirðinn og dæmda glæpamanninn Joe Exotic, sem vakti mikla athygli í Netflix-heimildaþáttunum Tiger King. Leikarinn Nicolas Cage hafði tekið að sér aðalhlutverkið, sem Joe Exotic, en hann hefur ýjað að því að hann muni ekki fara með hlutverkið.