
Stórt tap í fyrsta leik á EM
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri mátti þola átta marka tap er liðið mætti heimakonum í Rúmeníu í fyrsta leik í kvöld, 41-33.
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri mátti þola átta marka tap er liðið mætti heimakonum í Rúmeníu í fyrsta leik í kvöld, 41-33.
„Við vissum fyrir fram að þetta yrði alvöru verkefni og það hefur ekkert breyst,“ segir Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í handbolta, eftir að dregið var í riðla fyrir HM í dag.
Gísli Þorgeir Kristjánsson er búinn að fara í aðgerð á öxl en hann þurfti að gangast undir hans eftir að hann fór úr axlarlið á úrslitahelgi Meistaradeildarinnar.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta dróst í riðil með Frakklandi, Slóveníu og Angóla, þegar dregið var í riðla fyrir heimsmeistaramótið í dag. HM fer fram í Danmörku, Noregi og Svíþjóð dagana 29. nóvember til 17. desember.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta kemst að því í dag hvaða liðum stelpurnar okkar munu mæta á heimsmeistaramótinu í desember.
TV 2 notaði tálbeitu til að ræða við Dragan Nachevski sem var settur af sem formaður dómaranefndar EHF í maí vegna gruns um hagræðingu úrslita í handbolta. Samtal Nachevskis og tálbeitunnar var sýnt í fyrri hluta heimildamyndarinnar Grunsamlegur leikur sem var frumsýnd í gær.
Ein reyndasta handboltakona landsins var að vonum ánægð þegar í ljós kom að Ísland yrði meðal þátttökuþjóða á HM 2023.
Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, hefur ásamt handknattleikssamböndum Danmerkur og Noregs sent inn óformlegt boð um að fá í sameiningu að halda heimsmeistaramótið í handbolta árið 2029 eða 2031.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta fékk ekki aðeins sæti á HM upp í hendurnar frá IHF á mánudaginn, heldur einnig möguleika á að komast á Ólympíuleikana í París á næsta ári.
Forráðamenn handknattleiksliðs Harðar á Ísafirði telja ÍBV og þjálfarann Carlos Martin Santos hafa brotið reglur með samskiptum sínum varðandi mögulegt brotthvarf Carlosar frá Herði til ÍBV til að gerast aðstoðarþjálfari Íslandsmeistaranna. Samskipti sem Hörður gaf þó upphaflega leyfi fyrir.
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti bestu markvörslu Meistaradeildar Evrópu á síðasta tímabili.
Í kvöld verður fyrri hluti heimildamyndar um hagræðingu úrslita í handbolta frumsýndur á TV 2 í Danmörku.
Ísland fagnaði þriðja sætinu á heimsmeistaramóti U21-árs liða í handbolta um helgina. Leikmaður liðsins segir árangurinn góðan stökkpall fyrir leikmenn liðsins sem allir leika í Olís-deildinni.
Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur tekið af allan vafa um það að lokakeppni Evrópumótsins í handbolta 2026 muni ekki fara fram í Rússlandi.
„Þetta var svo ótrúlega mikið sjokk áðan vegna þess að ég var ekki búin að gera mér neinar vonir,“ segir Sandra Erlingsdóttir, himinlifandi eftir þau tíðindi dagsins að hún sé leiðinni á HM í handbolta í lok nóvember.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta var rétt í þessu að fá staðfest sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer á Norðurlöndum 29. nóvember til 17. desember.
Íslenska handboltagoðsögnin Ólafur Stefánsson fæddist 3. júlí 1973 og heldur því upp á fimmtugsafmælið sitt í dag.
Andri Már Rúnarsson skoraði fimm mörk þegar Ísland vann Serbíu, 27-23, í leiknum um bronsið á HM U-21 árs liða í Berlín í dag.
Þorsteinn Leó Gunnarsson var valinn maður leiksins þegar Ísland tryggði sér bronsverðlaun með sigri á Serbíu á HM U21-árs landsliða í handbolta. Hann sagði liðsframmistöðu hafa skilað sigrinum.
Kristófer Máni Jónasson var valinn í úrvalslið heimsmeistaramóts U21-árs landsliða en liðið var tilkynnt nú rétt áðan.
Hamingjuóskum rigndi yfir strákana okkar í U21-árs landsliðinu á Twitter eftir að liðið tryggði sér bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu. Þetta er jöfnun á besta árangrinum í þessum aldursflokki en einnig vannst bronsið árið 1993.
Þjóðverjar urðu í dag heimsmeistarar U21-árs liða í handbolta eftir öruggan sigur á Ungverjum í úrslitaleik. Þetta er í þriðja sinn sem Þýskaland verður heimsmeistari í aldursflokknum.
Brynjar Vignir Sigurjónsson var ein af hetjum íslenska U-21 árs landsliðsins sem vann til bronsverðlauna á HM í dag.
Benedikt Gunnar Óskarsson, leikstjórnandi íslenska U-21 árs landsliðsins í handbolta var að vonum himinlifandi með að næla í bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu eftir sigur gegn Serbíu í Berlín í dag.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri tryggði sér bronsverðlaun á HM með sigri á Serbíu í dag, 27-23. Ísland jafnaði þar með besta árangur sinn á HM í þessum aldursflokki.
Arnór Atlason hefur hrifist af frammistöðu íslenska landsliðsins á HM U-21 árs í handbolta karla og telur möguleikana í leiknum um bronsið í dag góða.
Arnór Atlason var ánægður með að dönsku strákarnir hans hefðu tryggt sér 5. sætið á HM U-21 árs liða með sigri á Portúgal, 30-25, í dag.
Uppselt er á úrslitaleik heimsmeistaramóts U-21 árs í handbolta karla. Leikið er í Max Schmeling höllinni í Berlín.
Færeyjar tryggðu sér rétt í morgun sjöunda sætið á heimsmeistaramótinu í handbolta skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri. Færeyjar lögðu Króatíu að velli í leiknum um sjöunda sætið en þetta er besti árangur í sögu færeyska U-21 árs landsliðsins.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri getur tryggt sér bronsverðlaun á HM með sigri á Serbíu í dag.