

Fréttir af flugi
Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Tekjur Icelandair féllu um 85 prósent milli ára
Bráðabirgðarekstrarniðurstöður Icelandair fyrir annan ársfjórðung benda til þess að tekjur félagsins hafi lækkað um 85 prósent frá sama tímabili í fyrra.

Vilja hefja flug milli Bandaríkjanna og Evrópu á ný
Stjórnendur stærstu flugfélaga heimsins hafa tekið sig saman og ritað bréf til stjórnvalda í Bandaríkjunum og Evrópu.

Flugfreyjur kallaðar „æluþrífarar á háum hælum“ og „stífmálaðar frekjur“
Flosi Eiríksson rís upp til varnar flugfreyjum og fordæmir skítkast sem þær hafa mátt sæta á umliðnum vikum og dögum.

SA óskar eftir viðbrögðum Seðlabankans vegna afskipta VR af Lífeyrissjóði verzlunarmanna
Samtök atvinnulífsins telja afskipti VR af lífeyrissjóðnum óeðlileg.

Icelandair vill semja við alla á næstu tíu dögum
Icelandair stefnir að því að klára samninga við fimmtán lánardrottna, stjórnvöld og Boeing flugvélaframleiðandann nú fyrir lok mánaðar áður en farið verður í hlutafjárútboð.

Telur „engar líkur“ á að Icelandair fari í þrot
Norskur flugrekstrarsérfræðingur telur að íslenska ríkið muni þurfa að eignast hlut í Icelandair.

Segir verkalýðsforingja reyna að knésetja Icelandair
Þorsteinn Víglundsson segir framgöngu verkalýðshreyfingarinnar til skammar með því að reyna að hafa áhrif á ákvarðanatöku um fjárfestingar í Icelandair. Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, segir að fulltrúum í stjórnum lífeyrissjóða sé óheimilt að láta undan slíkum þrýstingi.

Fljúga fimm tímum lengur á mánuði fyrir sömu grunnlaun
Flugfreyjur segjast vilja samþykkja samninginn til að halda Flugfreyjufélaginu á lífi sem hafi orðið fyrir kjaftshöggi.

Aldrei upplifað annað eins „kjálkabrot“
Flugfreyjur sem voru viðstaddar fund Flugfreyjufélags Íslands, þar sem nýr kjarasamningur félagsins við Icelandair var kynntur, segja stéttina og félagið í sárum eftir að Icelandair ákvað að slíta kjaraviðræðum á föstudag.

Samræma ákvæði kjarasamnings við samning flugmanna
Með nýundirrituðum kjarasamningi Flugfreyjufélags Íslands eru ákvæði samræmd við kjarasamning Félags íslenskra atvinnuflugmanna.

Nýr kjarasamningur kynntur fyrir flugfreyjum
Nýundirritaður kjarasamningur Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) verður kynntur félagsmönnum FFÍ á fundi sem boðað var til nú klukkan 11.

Íhugar að segja sig úr VR í kjölfar ummæla formanns félagsins í garð Icelandair
Starfsmaður Icelandair íhugar að segja sig úr VR vegna ummæla formanns félagsins um þátttöku Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í væntanlegu hlutafjárútboði.

Svarar ekki hvort flugfreyjum verði sagt upp aftur verði nýi samningurinn felldur
Hann hafi ekki trú á öðru en að samningurinn verði samþykktur. Formaður Flugfreyjufélagsins mun mæla með samningnum við félagsmenn sína.

Mikilvægt að málin séu leyst við samningaborðið
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það ánægjulegt að Icelandair og Flugfreyjufélag Íslands hafi náð saman og ritað undir nýjan kjarasamning hjá ríkissáttasemjara í nótt.

Tilefni hafi verið til mikillar hörku gagnvart Icelandair
Forseti Alþýðusambands Íslands segir að viðbrögð ASÍ við ákvörðun Icelandair Group um að hætta kjaraviðræðum og segja upp flugfreyjum félagsins hafi verið eðlileg og tilefni hafi verið mikillar hörku.

Fullyrðingar verkalýðsleiðtoga um undirboð „algjör þvæla“
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, var harðorður í garð verkalýðsforystunnar í viðtali á Sprengisandi í morgun.

„Hálfvitaleg leið til að bjarga flugsamgöngum“
Gunnar Smári Egilsson, einn stofnenda Sósíalistaflokksins, spyr hvort það sé eitthvað fagnaðarefni að samningar hafi náðst milli Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair í nótt.

„Ákveðin viðbótarhagræðing fyrir fyrirtækið“
Icelandair og Flugfreyjufélag Íslands undirrituðu nýjan kjarasamning í Karphúsinu í nótt.

Telur að sameiginleg ástríða fyrir Icelandair hafi verið lykillinn að nýjum samningi
Ríkissáttasemjari segist alltaf hafa vonað að viðræðum FFÍ og Icelandair myndi ljúka með samningi, þó gengið hafi á ýmsu í viðræðum þeirra á milli.

Uppsagnir verða dregnar til baka
Uppsagnir sem Icelandair tilkynnti um á föstudaginn, og náðu til allra flugfreyja og flugliða sem starfa hjá félaginu, verða dregnar til baka eftir að nýr kjarasamningur var undirritaður í nótt. Formaður Flugfreyjufélags Íslands segist ganga sátt frá borði.

Flugfreyjur og Icelandair undirrita nýjan kjarasamning
Samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands hefur skrifað undir nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Icelandair sem gildir til 30. september 2025.

Fundur Icelandair og flugfreyja teygir sig inn í sunnudaginn
Enn er fundað í Karphúsinu.

„Tilraun til þess að lögskýra burt samnings- og verkfallsrétt launafólks“
Í yfirlýsingu frá Alþýðusambandi Íslands er málflutningi sérfræðings í vinnurétti, sem telur að ákvörðun Icelandair um að slíta kjaraviðræðum við Flugfreyjufélag Íslands og segja upp flugfreyjum sínum hafi verið lögleg, hafnað.

Segir „grimmilega aðför“ Icelandair að FFÍ óskiljanlegan afleik
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, birtir í dag Facebook-færslu þar sem hún segir að það sem hún kallar „grimmilega aðför Icelandair að Flugfreyjufélagi Íslands“ sé óskiljanlegur afleikur og mistök.

Ekki útilokað að Lífeyrissjóður verzlunarmanna taki þátt í væntanlegu hlutafjárútboði Icelandair
Ekki er útilokað að Lífeyrissjóður verzlunarmanna taki þátt í væntanlegu hlutafjárútboði Icelandair.

Ákvörðun Icelandair lögleg að mati sérfræðings í vinnurétti
Ákvörðun Icelandair er lögleg að mati sérfræðings í vinnurétti. Forgangsákvæði í kjarasamningi gæti þó sett strik í reikninginn.

Icelandair og Flugfreyjufélagið funda
Samninganefndir Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands funda í húsnæði Ríkissáttasemjara í kvöld.

„Sé ekki fyrir mér að kjaradeila við einstaka stéttir verði tilefni sérstakrar umfjöllunar í ríkisstjórn“
Formaður velferðarnefndar segir ríkisstjórnina eiga að senda flugfélaginu þau skilaboð að hegðun Icelandair í garð flugfreyja verði ekki liðin.

Opið bréf flugfreyju til FÍA: „Átti ekki von á að vinir mínir og samstarfsfélagar tækju þátt í að bola mér úr starfi“
Flugfreyja hjá Icelandair spyr formann FÍA hvort ekki hefði verið hægt að styðja kjarabaráttu flugfreyja í opnu bréfi sínu.

Opið bréf til formanns FÍA
Komdu sæll kæri Jón Þór! Þar sem við höfum ekki orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að gerast vinir á samfélagsmiðlum, eins og tíðkast nú til dags, né hef ég aðgang að síðum ykkar flugmanna (eðlilega) gríp ég til þess ráðs að senda þér hér opið bréf eins og lengi hefur viðgengist á síðum Morgunblaðsins sem ég efast ekki um að þú lesir daglega þér til gagns og ánægju. Handviss um að það mun þér berast!