Fram

Fram

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Fram í Reykjavík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Upp­gjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stór­sigri Víkings í toppslagnum

Elías Már Ómarsson skoraði þrjú marka Víkings þegar liðið kjöldró Fram í toppslag liðanna í 11. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í kvöld. Víkingur hefur níu stiga forskot á toppi deildarinnar eftir þennan sigur og fátt sem bendir til annars en að liðið verji Íslandsmeistaratitil sinn. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Upp­gjörið: KA - Fram 3-4 | Mörkunum rigndi á Akur­eyri í sigri Fram

Fram vann 4-3 sigur á KA á Greifavellinum á Akureyri í dag í stórskemmtilegum leik sem bauð upp á markaveislu. Um sjötta sigur Fram í síðustu sjö leikjum liðsins í Bestu deildinni var að ræða en með sigri kvöldsins minnkar Fram bilið í KR í 2.sæti deildarinnar niður í tvö stig. KR á hins vegar leik til góða á morgun gegn Víkingi Reykjavík.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Þetta er eins og aftanákeyrsla“

Jóhann Fjalar Skaptason og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir voru alls ekki sammála í Bestu mörkunum í gær og það hjálpaði lítið að fá sérfræðinginn Magnús Hauk Harðarson til að bregða sér í hlutverk sáttasemjara.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“

„Mjög þungt. Ég er mjög svekktur með það hvernig við komum inn í þennan leik. Við vorum arfaslakir í fyrri hálfleik og undir á öllum þáttum leiksins,“ segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir 4-3 tap fyrir Fram í Bestu deild karla í kvöld.

Íslenski boltinn