„Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Árni Gísli Magnússon skrifar 25. september 2026 21:57 Anton Ingi Rúnarsson var verulega sáttur eftir leik. vísir / DIEGO „Bara ákveðinn léttir og virkilega ánægður með að við leikum í deildinni á næsta ári“, sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, strax eftir 2-1 sigur á útivelli gegn Þór/KA sem tryggir liðinu áframhaldandi veru í Bestu deildinni þegar ein umferð er óleikin í neðri hluta deildarinnar.
Fram liðið kom af miklum krafti inn í leikinn og var staðan orðin 2-0 eftir 17 mínútur. „Við töluðum um það bara að koma og keyra yfir þær í byrjun og við gerðum það og svo ákváðum við að hleypa þeim aftur inn í leikinn með smá mistökum og okkur finnst ekkert gaman að vinna eitthvað þægilega sigra þannig við tókum bara það þá 2-1 og gera þetta smá spennandi.“ Antoni fannst gaman að tryggja veru liðsins áfram undir flóðljósunum á VÍS-vellinum. „Það var bara virkilega gott og virkilega skemmtilegt í rauninni eftir síðasta leik hérna, við áttum kannski smá harma að hefna eftir það og bara virkilega gott.“ Fram féll mjög neðarlega á völlinn síðasta hálftímann en hélt út. „Við hefðum alveg getað stigið aðeins áfram á bensínsgjöfina og reynt að setja annað mark til þess að loka þessu en svo bara gerist þetta ósjálfrátt þegar mikið er undir og kemur svona ákveðið spennustig að þá falla lið oft og við bökkuðum en við fengum ekki á okkur mark.“ Ætla að fella Reykjavíkurlið Fram mætir Val í lokaumferðinni sem er að berjast fyrir lífi sínu á meðan Fram spilar án allrar pressu en Anton segir leikinn svo sannarlega skipta máli fyrir sig og sitt lið. „Það skiptir okkur nú öllu máli, við ætlum náttúrulega að vinna og við ætlum náttúrulega að fella Reykjavíkurlið og það munum við bara gera, við munum mæta með kassann úti og klára þann leik.“ Anton er sáttur með tímabilið. „Bara virkilega sáttur, við sitjum í raun með fjögur stig eftir fyrri umferðina og þá setjum við bara svona ákveðna æfinga maníu í gegn og hún skilaði okkur alveg helling af sigrum og allskonar góðum frammistöðum og bara heilt yfir virkilega gott tímabil og í rauninni enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf og liðið sko.“
Fram Besta deild kvenna Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bo Johansson er látinn Fótbolti Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Körfubolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Körfubolti Fleiri fréttir Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira