Ráðist að Immobile fyrir framan konu hans og barn Ciro Immobile, framherji Lazio, varð fyrir heldur óskemmtilegri lífsreynslu á dögunum þegar ráðist var að honum fyrir framan konu hans og börn þegar hann var að sækja fjögurra ára son sinn á leikskólann. Fótbolti 18. mars 2024 23:00
Utan vallar: Leikur fyrir snjallsímakynslóðina Manchester United vann 4-3 sigur á Liverpool í framlengdum leik þegar liðin mættust á Old Trafford í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í gær, sunnudag. Má með sanni segja að leikurinn hafi haft allt sem góður fótboltaleikur þarf að hafa. Enski boltinn 18. mars 2024 22:17
Óli Valur aftur í raðir Stjörnunnar Óli Valur Ómarsson mun spila með uppeldisfélagi sínu Stjörnunnar í Bestu deild karla í knattspyrnu á komandi tímabili. Hann kemur á láni frá sænska félaginu Sirius. Frá þessu greinir Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum nú í kvöld. Íslenski boltinn 18. mars 2024 21:16
Karólína Lea lagði upp í sigri Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lagði upp fyrra mark Bayer Leverkusen í 2-0 sigri á Köln í þýsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Fótbolti 18. mars 2024 20:35
Sædís Rún lagði upp í sinum fyrsta leik í atvinnumennsku Sædís Rún Heiðarsdóttir lagði upp eitt marka Vålerenga í 3-1 sigri liðsins á Stabæk í norsku úrvalsdeildinni. Sædís Rún sem er uppalin hjá Stjörnunni var að leika sinn fyrsta deildarleik fyrir félagið í kvöld. Fótbolti 18. mars 2024 20:05
Núñez meiddist gegn Man United Darwin Núñez, framherji Liverpool, hefur dregið sig úr landsliðshópi Úrúgvæ fyrir komandi verkefni eftir að hafa meiðst aftan í læri í 4-3 tapi Liverpool á Old Trafford um helgina. Enski boltinn 18. mars 2024 19:16
HK sækir leikmann sem hefur áður leikið með liðinu Viktor Helgi Benediktsson mun leika með HK í Bestu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið eftir að hafa leikið í Færeyjum síðan á síðasta ári. Íslenski boltinn 18. mars 2024 18:30
Klesst á flugvél ísraelska liðsins Það gekk brösuglega hjá ísraelska landsliðinu að ferðast til Búdapest þar sem liðið mun mæta Íslandi í mikilvægum leik á fimmtudag. Fótbolti 18. mars 2024 17:46
Hættir eftir 29 ára starf fyrir sama klúbbinn Christian Streich hefur tilkynnt það að hann hættir sem þjálfari þýska liðsins SC Freiburg eftir tímabilið. Fótbolti 18. mars 2024 16:31
Vísa í Harald hárfagra, rúnir og norðurljósin í nýrri landsliðstreyju Erling Haaland og félagar í norska landsliðinu spila í nýjum landsliðstreyjum þegar þeir mæta Tékkum á Ullevaal leikvanginum í þessari viku. Fótbolti 18. mars 2024 15:31
Sænski landsliðsmaðurinn laus úr öndunarvél Það eru aðeins betri fréttir af Kristoffer Olsson, liðsfélaga landsliðsmannsins Sverris Inga Ingasonar hjá Midtjylland í Danmörku. Fótbolti 18. mars 2024 13:40
Kveðst skítsama um skoðun Hareide Alon Hazan, landsliðsþjálfari Ísraels, segir það misskilning margra að íslenska landsliðið sé á niðurleið. Það sé ekki rétt. Hann kveðst láta skoðanir Åge Hareide landsliðsþjálfara Íslands, varðandi stríðið á Gasa, sem vind um eyru þjóta. Fótbolti 18. mars 2024 13:00
Þrír dagar í EM-umspil: Neituðu að mæta Ísrael þegar þeir komust síðast á stórmót Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur ekki komist á stórmót í sex ár eða síðan strákarnir okkar voru með á HM í Rússlandi sumarið 2018. Það er þó ekkert í samanburði við bið Ísraelsmanna. Fótbolti 18. mars 2024 11:01
Stór stund fyrir kærustuparið sem eyddi sumri í Mosfellsbænum Það hefur mikið breyst í lífi Patricks og Brittany Mahomes síðan þau voru saman á Íslandi sumarið 2017. Um helgina var stór stund fyrir hjónin á sögulegum fótboltaleik í Kansas City. Fótbolti 18. mars 2024 10:30
Xavi sá rautt þegar Barca vann stórt í Madríd Barcelona gerði góða ferð til höfuðborgarinnar Madríd þegar liðið vann öruggan sigur á Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fótbolti 17. mars 2024 21:57
Inter mistókst að ná tíu stiga forystu á ný Ríkjandi Ítalíumeistarar í Napoli náðu í eitt stig í ferð sinni til Mílanóborgar þar sem liðið mætti toppliði Inter. Fótbolti 17. mars 2024 21:40
Leikmenn Fenerbache slógust við áhorfendur sem réðust inn á völlinn Slagsmál brutust út að loknum leik Trabzonspor og Fenerbache í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag. Leikmenn Fenerbache slógust við stuðningsmenn heimaliðsins sem hlupu inn á völlinn. Fótbolti 17. mars 2024 21:32
Baldur heimsækir nýliða Vestra Í þætti kvöldsins af „Lengsta undirbúningstímabil í heimi“ fer Baldur Sigurðsson í heimsókn til Vestra sem eru nýliðar í Bestu deild karla í sumar. Fótbolti 17. mars 2024 20:16
Lið Jóns Dags bjargaði sér á ögurstundu Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan tímann í liði Duisburg sem mætti Frankfurt á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni. Þá voru Jón Dagur Þorsteinsson og liðsfélagar hans í eldínunni í Belgíu. Fótbolti 17. mars 2024 19:27
Stórliðin með sigra á Ítalíu AC Milan og Roma unnu bæði sigra í leikjum sínum í ítölsku deildinni í dag. AC Milan er því áfram í 2. sæti deildarinnar en Inter getur bætt við forskot sitt á toppnum með sigri gegn Napoli í kvöld. Fótbolti 17. mars 2024 19:00
Ótrúleg dramatík þegar United sló Liverpool út úr bikarnum Manchester United er komið áfram í ensku bikarkeppninni eftir magnaðan sigur á Liverpool í framlengdum leik á Old Trafford. Amad Diallo skoraði sigurmarkið undir lok framlengingar. Enski boltinn 17. mars 2024 18:17
Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Lyngby Fjölmargir Íslendingar komu við sögu í lokaumferð deildakeppninnar í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Íslendingalið Midtjylland fer í góðri stöðu í úrslitakeppnina. Fótbolti 17. mars 2024 18:02
Juventus missteig sig og Roma þarf bara að vinna einn í viðbót Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Juventus gerðu 3-3 jafntefli við Inter Milan í afar kaflaskiptum leik. Fótbolti 17. mars 2024 17:02
Sóttu sigur í uppbótartíma gegn tíu mönnum Chelsea vann dramatískan 4-2 sigur á Leicester í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Leicester jafnaði leikinn eftir að hafa lent tveimur mörkum undir en misstu svo mann af velli og tókst ekki að halda út. Enski boltinn 17. mars 2024 14:48
Hákon byrjaði gegn Brest en komst ekki á blað Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille í 1-1 jafntefli á útivelli gegn Brest. Þetta var fjórði deildarleikurinn í röð sem Hákon byrjar, en þriðji leikurinn í röð sem hann hvorki skorar né gefur stoðsendingu. Fótbolti 17. mars 2024 14:31
Hafrún Rakel skoraði í sínum fyrsta deildarleik Hafrún Rakel Halldórsdóttir, landsliðskona í fótbolta, skoraði mark í fyrsta keppnisleik sínum fyrir Brøndby þegar liðið vann Kolding 2-0 í 14. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 17. mars 2024 14:15
Markalaust hjá Genoa gegn gömlu frúnni Juventus gerði sér ekki kápu úr klæðinu þegar Albert Guðmundsson og félagar í Genoa heimsóttu þá í 29. umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar. Markalaus niðurstaða þrátt fyrir fjöldan allan af færum og Dusan Vlahovic var rekinn af velli í uppbótartíma. Fótbolti 17. mars 2024 13:30
Skoraði ótrúlegt mark af eigin vallarhelmingi með aðstoð vindsins Chicago, vindaborgin í Bandaríkjunum, stóð aldeilis undir nafni þegar Chicago Fire vann 4-3 í sögulegri endurkomu gegn CF Montreal. Fótbolti 17. mars 2024 13:00
Áhorfendum fækkar í Sádi-Arabíu þrátt fyrir óhóflega eyðslu Þrátt fyrir að lið hafi eytt himinháum fjárhæðum í leikmenn undanfarið ár fækkaði áhorfendum í sádi-arabísku úrvalsdeildinni í fótbolta um 10 prósent milli ára. Fótbolti 17. mars 2024 12:00
Niko Kovač rekinn frá Wolfsburg Niko Kovač hefur verið vikið úr starfi sem þjálfari Wolfsburg í Þýskalandi eftir slakt gengi á tímabilinu. Fótbolti 17. mars 2024 11:30