FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júlí 2026 17:13 Folarin Balogun fær að spila í kvöld en Knattspyrnusamband Belga hótar frekari aðgerðum gegn bandaríska knattspyrnusambandinu taki hann þátt. John Dorton/USSF/Getty Images FIFA hefur hafnað áfrýjun Belgíu um hæfi Folarin Balogun eftir að alþjóðaknattspyrnusambandið ákvað að fresta eins leiks banni hans fyrir leikinn gegn Bandaríkjunum í 16-liða úrslitum HM í kvöld.
Þrátt fyrir að hafa verið vísað af velli gegn Bosníu og Hersegóvínu er bandaríski framherjinn tiltækur að mæta Belgíu í Seattle á miðnætti í kvöld eftir íhlutun þar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti, embættismenn ríkisstjórnarinnar, Knattspyrnusamband Bandaríkjanna og fjölmennt lögfræðiteymi komu við sögu. Knattspyrnusamband Belgíu, RBFA, mótmælti formlega þeirri ákvörðun og sagði að það hefði „engan annan kost en að áfrýja hæfi (Balogun) fyrir komandi leik“. Áfrýjunarnefnd FIFA hefur hins vegar úrskurðað beiðnina sambandsins sem „ótæka“. Nefndarfulltrúar gerðu það á þeirri forsendu að „RBFA er ekki aðili að málsmeðferðinni og hefur því ekki rétt til að áfrýja ákvörðuninni,“ sagði í yfirlýsingu frá FIFA. Í svari við því staðfesti RBFA móttöku ákvörðunarinnar áður en gefið var til kynna að „frekari aðgerðir“ væru enn opnar fyrir sambandið. Í yfirlýsingu sambandsins sagði: „Hingað til hefur RBFA ekki fengið nein rök fyrir þessari ákvörðun, né heldur þær upplýsingar sem það hefur beðið um frá upphafi þessa málsmeðferðar, þar á meðal afrit af ákvörðuninni og rökstuðningi sem lýsir leikmanninum gjaldgengan, sem og skýrslu dómarans. Þetta er brot á reglum FIFA.“ „RBFA hefur tilkynnt bandaríska knattspyrnusambandinu að það véfengi hæfi leikmannsins ef hann er skráður á leikmannalista dómarans. Þetta skilur eftir allar frekari aðgerðir opnar.“ Lesa má í yfirlýsinguna að fulltrúar belgíska sambandsins haldi því opnu að kæra niðurstöðu leiks kvöldsins, fari svo að Balogun spili og Bandaríkin fagni sigri.
HM 2026 í fótbolta Belgíski boltinn Bandaríski fótboltinn FIFA Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Fleiri fréttir Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Hafa ekki enn fengið útskýringu á því af hverju Balogun fékk að spila Fer frá Hlíðarenda til Molde Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Sjá meira