Pulisic klár í slaginn gegn Hollendingum Christian Pulisic hefur fengið grænt ljós frá læknum bandaríska knattspyrnulandsliðsins eftir meiðslin sem hann varð fyrir gegn Íran. Hann verður því klár í slaginn þegar 16-liða úrslit heimsmeistarakeppninnar hefjast í dag. Fótbolti 3. desember 2022 11:31
Veikindi valda Hollendingum vandræðum fyrir stórleikinn í dag Holland mætir Bandaríkjunum í fyrsta leik 16-liða úrslita heimsmeistaramótsins í Katar í dag. Undirbúningur hollenska liðsins fyrir þennan stórleik hefur ekki verið sá besti þar sem flensa hefur herjað á lið Hollands. Fótbolti 3. desember 2022 09:30
Hildur opnaði markareikning sinn í Hollandi Hildur Antonsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Fortuna Sittard í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Telstar. Fótbolti 2. desember 2022 23:01
Sviss í sextán liða úrslit eftir leik mótsins Sviss er komið í 16-liða úrslit HM í fótbolta sem fram fer í Katar eftir frábæran 3-2 sigur á Serbíu. Leikurinn var gríðarlega dramatískur og sveiflukenndur. Fótbolti 2. desember 2022 21:15
Aboubakar tryggði Kamerún óvæntan sigur og sá rautt eftir fagnaðarlætin Tilfinningarnar báru Vincent Aboubakar, framherji Kamerún, ofurliði þegar hann skoraði það sem reyndist sigurmark Kamerún gegn Brasilíu í lokaleik liðanna í riðlakeppni HM í fótbolta. Hann reif sig úr að ofan og fékk sitt annað gula spjald í kjölfarið. Fótbolti 2. desember 2022 21:05
Glódís Perla setur pressu á Sveindísi Jane Bayern München vann Hoffenheim 3-0 á útivelli i þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Glódís Perla Viggósdóttir var að venju í hjarta varnar Bayern. Fótbolti 2. desember 2022 20:16
Elfar Freyr skrifar undir tveggja ára samning á Hlíðarenda Valur hefur staðfest komu miðvarðarins Elfars Freys Helgasonar. Hann skrifar undir tveggja ára samning við liðið. Íslenski boltinn 2. desember 2022 19:35
Breyttu um leikkerfi eftir að miðinn sem Eriksen fékk komst í þeirra hendur Það vakti mikla athygli þegar Christian Eriksen, fyrirliði danska landsliðsins í fótbolta, fékk miða á stærð við A3 blað í leik Danmerkur og Ástralíu. Miðinn endaði í höndum Ástralíu sem gerðu í kjölfarið taktíska breytingu og sendu Dani heim af HM sem nú fer fram í Katar. Fótbolti 2. desember 2022 19:01
Bæði lið gengu niðurlút af velli eftir fréttirnar úr hinum leiknum Úrúgvæ tókst ekki að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum á heimsmeistaramótinu þrátt fyrir að hafa unnið 2-0 sigur á Gana í lokaumferð H-riðils. Fótbolti 2. desember 2022 17:05
Bæði lið áfram eftir magnaðan sigur Kóreumanna Suður-Kórea afrekaði það að vinna Portúgal, 2-1, í lokaumferð H-riðils á HM karla í fótbolta og það dugði liðinu til að komast í 16-liða úrslit á fleiri skoruðum mörkum en Úrúgvæ. Fótbolti 2. desember 2022 16:51
Gerðu stólpagrín að Þjóðverjum í sjónvarpinu Katarskir sjónvarpsmenn stóðust ekki mátið og gerðu stólpagrín að Þjóðverjum eftir að Þýskaland féll úr keppni á HM karla í fótbolta í Katar í gær. Fótbolti 2. desember 2022 15:30
Pelé kveður fréttir af heilsubresti sínum í kútinn Brasilíski fótboltasnillingurinn hefur reynt að kveða áhyggjur af heilsufari sínu í kútinn. Hann var fluttur á sjúkrahús fyrr í vikunni. Fótbolti 2. desember 2022 14:01
Sagði nafnið sem mátti ekki nefna og fékk ekki að lýsa seinni hálfleik Alper Bakircigil missti starfið sitt í gær en hann hefur í mörg ár starfað sem fótboltalýsandi í Tyrklandi. Ástæðan er þó afar furðuleg í augum flestra. Hann nefndi á nafn knattspyrnugoðsögn Tyrkja. Fótbolti 2. desember 2022 13:00
Freyr hrósar mikið manninum sem er ekki nógu góður fyrir íslenska landsliðið Freyr Alexandersson þjálfar danska úrvalsdeildarliðið Lyngby Boldklub og veit allt um það sem er að gerast í danska fótboltanum. Freyr veit því vel hvað Aron Sigurðarson hefur verið að gera góða hluti með Horsens í dönsku deildinni. Fótbolti 2. desember 2022 12:01
Kynþokkafullur Kóreumaður leikur sama leik og Rúrik Fjöldi fylgjenda suður-kóreska framherjans Cho Gue-sung á Instagram hefur margfaldast síðan að HM í Katar hófst, ekki ósvipað því sem gerðist hjá Rúrik Gíslasyni á HM í Rússlandi fyrir fjórum árum. Fótbolti 2. desember 2022 11:01
Arnar ætlar að taka niður myndirnar af börnunum sínum og setja plakat af meistara Moriyasu í staðinn Japanski landsliðsþjálfarinn Hajime Moriyasu er ekki bara elskaður í heimalandi sínu eftir frábæran árangur japanska liðsins á HM í Katar heldur á hann einn mikinn aðdáanda í einum besta þjálfara Bestu deildar karla. Fótbolti 2. desember 2022 10:31
Segir að Spánverjar hafi ekki reynt að tapa Sergio Busquests, fyrirliði spænska fótboltalandsliðsins, segir ekkert til í því að Spánverjar hafi reynt að tapa fyrir Japönum til að fá auðveldari leiki í útsláttarkeppninni á HM í Katar. Fótbolti 2. desember 2022 10:00
Pulisic segir að pungurinn hafi sloppið ómeiddur Christian Pulisic, stærsta stjarna bandaríska fótboltalandsliðsins, segist ekki hafa fengið högg í punginn þegar hann skoraði sigurmark Bandaríkjanna gegn Íran á HM í Katar. Með sigrinum komust Bandaríkjamenn áfram í sextán liða úrslit mótsins. Fótbolti 2. desember 2022 09:30
Segir klúðrið hjá Þjóðverjum algjöra kata(r)strófu Thomas Müller segir að klúður Þjóðverja að komast ekki upp úr sínum riðli á HM í Katar sé algjör katastrófa. Fótbolti 2. desember 2022 08:30
Dómarar fúlir út í Fótbolta.net og mótið blásið af Félag deildardómara (FDD) í fótbolta hefur ákveðið að slíta samstarfi sínu við Fótbolta.net varðandi umsjón dómgæslu á hinu árlega Fótbolta.net-móti, vegna óánægju með umfjöllun um dómara á vegum miðilsins. Fótbolti 2. desember 2022 08:01
Lukaku klúðraði öllu og braut síðan varamannaskýlið Belgíski framherjinn Romelu Lukaku mun eflaust eiga erfitt með svefn í nótt eftir að hafa misnotað fjölmörg færi þegar Belgía féll úr leik á heimsmeistaramótinu eftir jafntefli gegn Króatíu. Fótbolti 1. desember 2022 22:32
Japan hirti efsta sætið af Spáni og skildi Þjóðverja eftir með sárt ennið Japan tryggði sér efsta sætið í E-riðli heimsmeistaramótsins með mögnuðum 2-1 sigri á Spánverjum í kvöld. Japan endar því með sex stig í efsta sæti en Spánn fer einnig áfram með jafn mörg stig og Þjóðverjar en betri markatölu. Fótbolti 1. desember 2022 21:05
Þjóðverjar á leið heim þrátt fyrir sigur gegn Kosta Ríka Þýskaland er úr leik á heimsmeistaramótinu í Katar þrátt fyrir sigur á Kosta Ríka í frábærum leik í kvöld. Þjóðverjar gerðu sitt en þar sem Spánn tapaði á sama tíma fyrir Japan þá falla Þjóðverjar úr keppni með slakari markatölu en Spánverjar. Fótbolti 1. desember 2022 21:00
Martinez hættur með Belga eftir vonbrigðin í Katar Jafnteflisleikur Belga gegn Króatíu í dag var síðasti leikur Roberto Martinez sem landsliðsþjálfari Belgíu. Hann tilkynnti eftir leikinn að hann væri hættur en jafnteflið þýddi að Belgar féllu úr leik á heimsmeistaramótinu. Fótbolti 1. desember 2022 19:49
Marokkó vann Kanada og F-riðilinn í leiðinni Marokkó er komið í sextán liða úrslitin á heimsmeistaramótinu í Katar eftir 2-1 sigur á Kanada þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleiknum. Fótbolti 1. desember 2022 16:56
Belgar úr leik eftir klúður Lukaku Króatía, silfurlið síðasta HM, komst í dag áfram í 16-liða úrslit HM í fótbolta í Katar en sendi um leið Belga heim. Belgar fengu dauðafæri til að komast yfir í seinni hálfleiknum. Fótbolti 1. desember 2022 16:52
3,4 milljónir í laun á tímann allan sólarhringinn Góður átta tíma svefn gæti gefið Cristiano Ronaldo 27 milljónir í aðra hönd. Sænska Sportbladet hefur reiknað út möguleg ofurlaun Cristiano Ronaldo hjá sádí-arabíska félaginu Al Nassr. Fótbolti 1. desember 2022 16:31
„Búnir að ala þá upp í að vera aumingjar“ Freyr Alexandersson starfaði í Katar og kynntist fótboltanum og fótboltamönnunum þar af eigin raun. Hann ræddi slakt gengi gestgjafa Katar á HM í fótbolta. Fótbolti 1. desember 2022 15:31
Luis Suarez neitar að biðjast afsökunar Úrúgvæ og Gana mætast annað kvöld í lokaumferð riðlakeppni heimsmeistaramótsins í Katar þar sem sæti í sextán liða úrslitunum er í boði. Fótbolti 1. desember 2022 15:00
Frakkar skiptu yfir í auglýsingar og héldu að þeir hefðu gert jafntefli Sjónvarpsáhorfendur í Frakklandi héldu eflaust að sínir menn í franska landsliðinu hefðu farið taplausir í gegnum riðlakeppnina á HM í fótbolta, vegna afglapa í útsendingu sjónvarpsstöðvarinnar TF1. Fótbolti 1. desember 2022 14:01