Arsenal kom til baka og vann sinn fyrsta titil í fjögur ár Arsenal vann 3-1 sigur gegn Chelsea í úrslitum enska deildarbikarsins í dag og tryggði sér þar með sinn fyrsta titil í fjögur ár. Fótbolti 5. mars 2023 18:47
Íslensk samvinna skilaði Lyngby öðrum sigri tímabilsins Alfreð Finnbogason skoraði eina mark leiksins er Lyngby vann mikilvægan 1-0 sigur gegn Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 5. mars 2023 17:54
Tíu Börsungar náðu tíu stiga forskoti Barcelona náði tíu stiga forskoti á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta er liðið vann 1-0 sigur gegn Valencia í dag, en Börsungar þurftu að spila seinasta hálftímann manni færri. Fótbolti 5. mars 2023 17:21
Nafnarnir skoruðu þrjú í stórsigri Norrköping Nafnarnir Arnór Sigurðsson og Arnór Ingvi Traustason skoruðu þrjú af fjórum mörkum Norrköping er liðið vann öruggan 4-0 útisigur gegn IFK Gautaborg í sænsku bikarkeppninni í fótbolta í dag. Fótbolti 5. mars 2023 17:01
Forest og Everton skiptu stigunum á milli sín Nýliðar Nottingham Forest og Everton skiptu stigunum á milli sín er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 2-2, en bæði lið þurfa sárlega á stigum að halda í fallbaráttunni. Fótbolti 5. mars 2023 16:22
Man United áfram á toppnum Manchester United styrkti stöðu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 5-1 sigri á Leicester City í dag. María Þórisdóttir var ekki í leikmannahóp Man United. Sömu sögu er að segja af Dagnýju Brynjarsdóttir, fyrirliða West Ham United, en Hamrarnir töpuðu fyrir Reading á útivelli. Enski boltinn 5. mars 2023 16:01
Hildur og María lögðu toppliðið Hildur Antonsdóttir og María Catharina Ólafsdóttir Gros voru í byrjunarliði Fortuna Sittard sem vann 2-1 sigur á toppliði FC Twente. Fótbolti 5. mars 2023 15:30
Arsenal skorað flest sigurmörk í uppbótartíma á leiktíðinni Topplið ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, Arsenal, er það lið deildarinnar sem hefur skorað flest sigurmörk á yfirstandandi tímabili eftir að venjulegum leiktíma er lokið. Arsenal hefur alls skorað þrjú slík og eitt þeirra kom í gær þegar Skytturnar komu til baka gegn Bournemouth. Enski boltinn 5. mars 2023 14:31
Guðmann leggur skóna á hilluna Hinn 36 ára gamli Guðmann Þórisson hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Hann tilkynnti það á sinn einstaka hátt á Instagram-síðu sinni. Íslenski boltinn 5. mars 2023 13:00
Mbappé markahæstur í sögu PSG Franska stórstjarnan Kylian Mbappé varð í gærkvöld, laugardag, markahæsti leikmaður í sögu franska knattspyrnuliðsins París Saint-Germain. Hann hefur nú skorað 201 mark í aðeins 247 leikjum fyrir félagið. Fótbolti 5. mars 2023 12:31
Íhugar að fara í mál vegna ummæla í hlaðvarpsþætti Dómarinn fyrrverandi Mark Clattenburg íhugar nú hvort hann eigi að fara í mál við Danny Simspon vegna ummæla sem sá síðarnefndi lét falla í hlaðvarpsþætti á dögunum. Þar sagði hann að Clattenburg hefði sleppt því að reka leikmann af velli því hann vildi að Leicester City yrði Englandsmeistari. Enski boltinn 5. mars 2023 10:30
Dagur Dan lék í markalausu jafntefli | Töp hjá Guðlaugi Victori og Þorleifi MLS-deildin í Bandaríkjunum er farin á fleygiferð að nýju og fór fjöldi leikja fram í nótt. Alls voru þrír Íslendingar í eldlínunni en Róbert Orri Þorkelsson var ekki í leikmannahóp CF Montréal að þessu sinni. Fótbolti 5. mars 2023 10:01
Ten Hag og Klopp biðja stuðningsfólk um að hætta að syngja um harmleiki Erik ten Hag og Jürgen Klopp, knattspyrnustjórar erkifjendanna Manchester United og Liverpool, hafa sent frá sér sameiginlega tilkynningu þar sem þeir biðla til stuðningsfólks um að hætta að syngja ákveðna söngva um harmleiki á leikjum liðanna. Fótbolti 5. mars 2023 08:00
Sandra hlóð í þrennu gegn Íslandsmeisturunum | Blikar völtuðu yfir Aftureldingu Sandra María Jessen skoraði þrennu fyrir Þór/KA er liðið gerði sér lítið fyrir og vann 4-3 sigur gegn Íslandsmeisturum Vals í A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu í kvöld. Þá skoraði Birta Georgsdóttir einnig þrennu fyrir Breiðablik sem vann vægast sagt öruggan sigur gegn Aftureldingu, lokatölur 7-0. Fótbolti 4. mars 2023 22:31
Fiorentina stöðvaði sigurgöngu ítölsku meistaranna Fiorentina vann góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Ítalíumeisturum AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fyrir leikinn höfðu meistararnir unnið þrjá deildarleiki í röð. Fótbolti 4. mars 2023 21:47
Bayern endurheimti toppsætið Þýskalandsmeistarar Bayern München lyftu sér aftur á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta er liðið vann 2-1 útisigur gegn Stuttgart í kvöld. Þá virðist Union Berlin vera að stimpla sig út úr toppbaráttunni, en liðið þurfti að sætta sig við markalaust jafntefli gegn Köln á sama tíma. Fótbolti 4. mars 2023 20:03
Jón Dagur skoraði tvö og lagði upp eitt í langþráðum sigri Leuven Landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson var allt í öllu í liði OH Leuven er liðið vann langþráðan 4-2 sigur gegn Waregem í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 4. mars 2023 19:41
Botnliðið nældi í mikilvæg stig í fallbaráttunni Southampton, botnlið ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, nældi sér í mikilvæg þrjú stig er liðið vann 1-0 sigur gegn Leicester í kvöld. Fótbolti 4. mars 2023 19:28
Hlín skoraði í endurkomusigri Kristianstad Hlín Eiríksdóttir skoraði fyrra mark Íslendingaliðs Kristianstad er liðið vann 2-1 endurkomusigur gegn Linkoping í sænsku bikarkeppninni í fótbolta í dag. Fótbolti 4. mars 2023 18:29
Úlfarnir fjarlægjast fallsvæðið eftir sigur gegn Tottenham | Brighton valtaði yfir West Ham Wolves vann virkilega sterkan 1-0 sigur er liðið tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þá vann Brighton afar öruggan 4-0 sigur gegn West Ham á sama tíma og Aston Villa lagði Crystal Palace, 1-0. Fótbolti 4. mars 2023 17:19
Varamaðurinn Nelson hetja Arsenal í dramatískum sigri Topplið Arsenal vann vægast sagt dramatískan 3-2 sigur á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag. Gestirnir frá Bournemouth komust tveimur mörkum yfir en varamaðurinn Reiss Nelson sá til þess að Skytturnar sneru dæminu við og nældu í dýrmæt þrjú stig. Enski boltinn 4. mars 2023 17:00
Valgeir Lunddal í átta liða úrslit Valgeir Lunddal Friðriksson lék allan leikinn er sænsku meistararnir í Häcken tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Íslendingalið Örebro og Sirius eru hins vegar fallin úr leik. Fótbolti 4. mars 2023 16:16
Skoraði í dag en á reynslu hjá FCK í gær Daníel Ingi Jóhannesson skoraði síðara mark ÍA í 2-0 sigri liðsins á Grindavík í dag. Daníel Ingi var staddur í Kaupmannahöfn í gær þar sem hann var á reynslu hjá FC Kaupmannahöfn. Eldri bróðir hans, Ísak Bergmann, spilar með Danmerkurmeisturunum. Íslenski boltinn 4. mars 2023 15:50
Vilja að stuðningsmenn liða sinna hætti níðsöngvum um München, Hillsborough og Heysel Liverpool og Manchester United mætast á morgun, sunnudag, í ensku úrvalsdeildinni. Stjórar liðanna, Jürgen Klopp og Erik ten Hag, hafa biðlað til stuðningsfólks liðanna að hætta níðsöngvum sem snúa að harmleik félaganna. Enski boltinn 4. mars 2023 15:00
Vægðarlaust lið Man City lagði Newcastle Englandsmeistarar Manchester City lögðu Newcastle United 2-0 í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Segja má að Man City hafi verið vægðarlaust en liðið átti þrjú skot á markið í leik dagsins, tvö þeirra enduðu í netinu. Enski boltinn 4. mars 2023 14:30
Stoðsendingar Atla og Sveindísar Jane dugðu skammt Bæði Atli Barkarson og Sveindís Jane Jónsdóttir lögðu upp mörk fyrir lið sín í dag. Bæði lögðu upp fyrsta mark leiksins og bæði máttu þola 2-1 tap. Um var að ræða fyrsta tap Wolfsburg í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Fótbolti 4. mars 2023 14:00
Pirraður á að vera ekki valinn í landsliðið Brasilíumaðurinn Gabriel Magalhães, miðvörður Arsenal, var vægast sagt ósáttur með að vera ekki valinn í brasilíska landsliðshópinn á dögunum. Grínaðist hann með að vera orðinn körfuboltamaður á samfélagsmiðlum áður en hann eyddi færslunni. Enski boltinn 4. mars 2023 13:15
Hamrarnir horfa hýru auga til Manchester Talið er að West Ham United girnist þrjá leikmenn Manchester United í sumar. Allir þrír eru meðal þeirra leikmanna sem talið er að Erik ten Hag, þjálfari Rauðu djöflanna, sé tilbúinn að selja. Enski boltinn 4. mars 2023 11:30
Stuðningsmaður Chelsea fær þriggja ára bann fyrir kynþáttaníð í garð Son Thomas Burchell, stuðningsmaður Chelsea, hefur verið dæmdur í þriggja ára bann frá öllum knattspyrnuleikjum á Englandi eftir að hafa beitt Son Heung-Min, leikmann Tottenham Hotspur, kynþáttaníði í leik liðanna þann 14. ágúst síðastliðinn. Enski boltinn 4. mars 2023 11:01
Reynir að komast í Eurovision og útilokar ekki að spila í Bestu-deildinni í sumar Bragi Bergsson sem keppir í úrslitum Söngvakeppninnar í kvöld hefur leikið fótbolta alla sína tíð. Hann útilokar ekki að spila í Bestu deild karla í sumar. Fótbolti 4. mars 2023 10:00