Elliði og Elvar markahæstir í sigurleikjum sinna liða Melsungen og Gummersbach unnu opnunarleiki sína í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag og voru Íslendingarnir í liðunum atkvæðamiklir. Sport 27. ágúst 2023 16:36
Ítalíumeistarar Napólí hafa augastað á Alberti Guðmundssyni Ítalíumeistarar Napólí eru sagðir hafa augastað á Alberti Guðmundssyni sem leikur með nýliðum Genoa í Seríu-A en honum sé ætlað að leysa hinn mexíkóska Hirving Lozano af hólmi. Ekkert er þó frágengið í þessu máli. Fótbolti 27. ágúst 2023 14:30
AGF vann Íslendingaslaginn gegn Lyngby Það var boðið upp á Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar AGF tók á móti Lyngby. Stöðva þurfti leikinn í rúmar 20 mínútur þegar 88:30 voru komnar á klukkuna vegna þrumuveðurs. Fótbolti 27. ágúst 2023 14:16
Leik Breiðabliks og Víkings í kvöld verður ekki frestað Knattspyrnusamband Íslands hefur staðfest fyrri ákvörðun sína um að leik Breiðabliks og Víkings sem fram fer í kvöld verði ekki frestað. Breiðablik hafði óskað eftir því að KSÍ myndi endurskoða ákvörðun sína um að fresta ekki en sú ákvörðun stendur. Fótbolti 27. ágúst 2023 13:01
Manchester United vilja fá Cucurella lánaðan frá Chelsea Manchester United eru í neyðarleit að vinstri bakverði til að leysa Luke Shaw af næstu vikur. Marc Cucurella, leikmaður Chelsea, er sagður koma sterklega til greina og að viðræður á milli United og Chelsea séu þegar farnar af stað. Fótbolti 27. ágúst 2023 11:30
Messi lyfti Inter af botninum Lionel Messi heldur áfram að gera það gott hjá Inter Miami en liðið vann í nótt sinn fyrsta deildarleik í háa herrans tíð og lyfti sér af botni deildarinnar. Messi innsiglaði sigur liðsins með laglegu marki undir lok leiks. Fótbolti 27. ágúst 2023 09:33
Höskuldur markahæstur í allri Evrópu Næsta vor má gera ráð fyrir því að menn á borð við Erling Braut Haaland, Kylian Mbappe eða Harry Kane verði markahæstu menn í Evrópukeppnunum. Nú heitir sá markhæsti Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Blika. Fótbolti 26. ágúst 2023 23:01
Breiðablik óskar eftir því að KSÍ endurskoði ákvörðun sína varðandi frestun leiks á morgun Breiðablik hefur óskað eftir því við KSÍ að sambandið endurskoði þá ákvörðun sína að synja Blikum um frestun á leik liðsins gegn Víkingi í Bestu deildinni sem á að fara fram á morgun. Fótbolti 26. ágúst 2023 21:27
Kostuleg viðbrögð Mané þegar hann heilsaði andstæðingi sínum fyrir leik Sadio Mané skoraði tvö mörk fyrir Al-Nassr þegar liðið vann 5-0 sigur gegn Al-Fateh í sádiarabísku deildinni í knattspyrnu í gær. Atvik fyrir leik hefur fengið knattspyrnuaðdáendur til að brosa út í annað. Fótbolti 26. ágúst 2023 21:16
Pulisic sjóðandi heitur en Mourinho mátti sætta sig við tap Fjórir leikir fóru fram í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. AC Milan vann góðan sigur á heimavelli en lærisveinar Jose Mourinho í Roma fóru fýluferð til Verona. Fótbolti 26. ágúst 2023 21:00
Umfjöllun og viðtöl: KA - Stjarnan 2-1 | Dramatíkin allsráðandi á Akureyri KA vann dramatískan 2-1 heimasigur á Stjörnunni þegar liðin mættust á Akureyri í dag. Stjarnan misnotaði víti í stöðunni 1-1 og einum færri tókst KA að knýja fram sigur. Íslenski boltinn 26. ágúst 2023 20:01
„Ég vil helst spila 11 á móti 11“ „Þetta var alvöru leikur og alvöru spenna. Ég er gríðarlega ánægður með strákana,“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir dramatískan sigur á Stjörnunni á Akureyri í dag. Lokastaða 2-1. Sport 26. ágúst 2023 19:08
Alfreð og Guðlaugur Victor byrjuðu í sigurleik Alfreð Finnbogason og Guðlaugur Victor Pálsson voru báðir í byrjunarliði Eupen sem vann sigur í sannkölluðum Íslendingaslag í Belgíu í dag. Fótbolti 26. ágúst 2023 18:15
Valsmenn kæra Víkinga vegna afskipta Arnars Valur hefur lagt fram kæru til aga- og úrskurðanefndar KSÍ þar sem þess er krafist að Víkingar hljóti refsingu vegna afskipta Arnars Gunnlaugssonar þjálfara í leik gegn Val þar sem hann var í leikbanni. Fótbolti 26. ágúst 2023 17:50
Vålerenga styrkti stöðu sína á toppnum Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan tímann í liði Vålerenga sem vann öruggan 5-1 sigur gegn Åsane í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 26. ágúst 2023 16:46
Allt þjálfarateymi spænska landsliðsins segir upp störfum en Vilda fer ekki fet Allt þjálfarateymi Jorge Vilda hefur sagt upp störfum í mótmælaskyni vegna framferðis Luis Rubiales, forseta spænska knattspyrnusambandsins. Alls eru ellefu þjálfarar og starfsfólk sem yfirgefið liðið og lýsa þau yfir eindregnum stuðningi við Jenni Hermoso. Fótbolti 26. ágúst 2023 16:41
Everton áfram stigalausir á botni ensku úrvalsdeildarinnar Everton eru áfram án stiga á botni ensku úrvalsdeildarinnar, en sex leikir eru á dagskrá í dag í þriðju umferð deildarinnar. Fótbolti 26. ágúst 2023 16:05
FIFA setur Rubiales í bann Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur ákveðið að setja Luis Rubiales, forseta Knattspyrnusambands Spánar, í tímabundið bann frá afskiptum af knattspyrnu. Fótbolti 26. ágúst 2023 12:48
Sakar Jenni Hermoso um lygar Spænska knattspyrnusambandið ver formann sinn með kjafti og klóm. Það segir Jenni Hermoso fara með ósannindi og bendir á að fótboltakonur á Spáni geti ekki neitað að spila með landsliðinu séu þær valdar í liðið. Fótbolti 26. ágúst 2023 11:22
Allar spænsku landsliðskonurnar ætla ekki að spila aftur fyrr en Luis Rubiales segir af sér Leikmenn heimsmeistara Spánar hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þær segja að þær muni ekki spila fleiri leiki fyrir landsliðið fyrr en Luis Rubiales, forseti knattspyrnusambandsins, segir af sér. Fótbolti 26. ágúst 2023 09:59
„Allavega vill maður geta leikið sér við börnin sín í framtíðinni“ Á sunnudag fer 18. umferð í Bestu deild kvenna í knattspyrnu fram. Um er að ræða síðustu umferð hefðbundinnar deildarkeppni áður en tvískipting á sér stað. Að því tilefni fékk Helena Ólafsdóttir til sín góðan gest, Mist Edvardsdóttur – fyrrverandi leikmann Vals, KR og Aftureldingar hér á landi. Íslenski boltinn 26. ágúst 2023 08:00
Maðurinn sem tryggði Argentínu heimsmeistaratitilinn kærður fyrir nauðgun Gonzalo Montiel, nýjasti leikmaður Nottingham Forest og maðurinn sem tryggði Argentínu heimsmeistaratitilinn í desember síðastliðnum, hefur verið kærður fyrir nauðgun í heimalandi sínu. Fótbolti 26. ágúst 2023 07:00
„Hann er sköpunarvél“ Kevin De Bruyne, miðjumaður Englands- og Evrópumeistara Manchester City, telur Bruno Fernandes mest skapandi miðjumann ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu. Enski boltinn 25. ágúst 2023 23:32
Grindavík skoraði sjö og felldi Ægi Fjórir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Grindavík vann Ægi 7-2 og felldi liðið þar með niður í 2. deild. Njarðvík vann Þór Akureyri 3-0, ÍA vann Selfoss 1-0 og Grótta gerði 2-2 jafntefli við Þrótt Reykjavík. Þá vann Fylkir 3-2 sigur á Fram í Lengjudeild kvenna. Íslenski boltinn 25. ágúst 2023 22:46
Bellingham sá til þess að Real er með fullt hús stiga Jude Bellingham er við það að verða vinsælasti leikmaður Real Madríd en enski miðjumaðurinn virðist kunna einkar vel við sig á Spáni. Hann tryggði Real nauman útisigur á Celta Vigo í kvöld. Fótbolti 25. ágúst 2023 22:00
Hermoso stendur föst á sínu og er hætt í landsliðinu á meðan Rubiales er við völd Jenni Hermoso, heimsmeistari með Spáni, hefur tjáð sig um atvikið sem átti sér stað að loknum úrslitaleik HM í knattspyrnu. Auk þess að fá verðlaunapening sinn afhentan frá Luis Rubiales, forseta spænska knattspyrnusambandsins, fékk hún einnig óumbeðinn rembingskoss. Fótbolti 25. ágúst 2023 21:20
Chelsea ekki í vandræðum með nýliða Luton Chelsea er komið á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni eftir 3-0 sigur á nýliðum Luton Town. Enski boltinn 25. ágúst 2023 21:00
Samskipti Arnars við bekkinn ekki brot þrátt fyrir leikbann Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur ákveðið að samskipti Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings í Bestu deild karla, við varamannabekk sinn í leik gegn Val þar sem hann sætti leikbanni ekki vera brot á reglum sambandsins. Íslenski boltinn 25. ágúst 2023 20:36
Lukaku gæti endað í hlýjum faðmi Mourinho Eftir að hafa verið orðaður við sitt fyrrum félag Inter brenndi Romelu Lukaku allar brýr til Mílanó þegar hann virtist á leið til Juventus. Það féll upp fyrir en það stöðvaði ekki leið Lukaku til Ítalíu. Nú virðist hann vera á leið til Rómaborgar þar sem fyrrverandi þjálfari hans ræður ríkjum. Fótbolti 25. ágúst 2023 18:31
Iglesias gefur ekki á kost á sér í landsliðið vegna hegðunar forsetans Borja Iglesias, framherji Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi verkefni vegna hegðunar Luis Rubiales, forseta spænska knattspyrnusambandsins. Fótbolti 25. ágúst 2023 17:45