„Þetta er allt annað dæmi“ Sindri Sverrisson skrifar 11. febrúar 2026 15:02 Það hefur ansi margt breyst frá því að Breiðablik varð Íslandsmeistari í haust en fyrirlliðinn Agla María Albertsdóttir er áfram á sínum stað. vísir/Ernir „Þetta er mjög stór áskorun,“ segir Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks í fótbolta. Blikar spila í kvöld við Svíþjóðarmeistara Häcken í 8-liða úrslitum Evrópubikarsins, með gjörbreytt lið og nýjan þjálfara frá sigrinum frækna gegn dönsku meisturunum í Fortuna Hjörring í 16-liða úrslitum.
Blikakonur hafa beðið í næstum þrjá mánuði frá því að þær slógu Fortuna út í nóvember og Íslandsmeistararnir hafa eiginlega ekkert spilað síðan þá, fyrir utan nýafstaðinn leik við Val í Lengjubikarnum. Svipaða sögu er þó að segja af Häcken en Agla María segir sérstakt að fara í svona risastórt verkefni á þessum tíma: „Það er alveg skrýtið. Þetta er tímapunkturinn þar sem maður er yfirleitt bara að spila æfingaleiki, á hörku undirbúningsæfingum, svo það er sérstakt að vera að fara að spila svona stóran leik. Að sama skapi er bara frábært að vera að taka þátt í þessu verkefni.“ Agla María segir alveg ljóst að það sé einnig krefjandi að takast á við þær miklu breytingar sem orðið hafa á Breiðabliki í vetur. Fjöldi lykilmanna hefur horfið á brott, má þar nefna Birtu Georgsdóttur, Samönthu Smith, Andreu Rut Bjarnadóttur, Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur, Heiðu Ragneyju Viðarsdóttur og Heiðdísi Lillýardóttur, og þá er þjálfarinn Ian Jeffs tekinn við af Nik Chamberlain. Að sama skapi eru komnir inn nýir leikmenn eins og Elísa Viðarsdóttir og hin bandaríska Katie Duong, og þá er framherjinn Ólöf Sigríður Kristinsdóttir klár í slaginn að sögn Öglu Maríu. Bryndís Arna Níelsdóttir er komin til Blika en á við meiðsli að stríða. „Þetta er allt annað dæmi, sem gerir þetta svolítið öðruvísi. Að sama skapi er hægt að líta á þetta þannig að þetta sé okkar byrjun á keppnistímabilinu í ár. Gott verkefni fyrir okkur til að þétta raðirnar og gera okkur klárar fyrir árið,“ segir Agla María. Íslenska landsliðið sýnt að allt er hægt Hún er vel meðvituð um hve erfitt einvígi bíður Blika, í dag og svo á Íslandi eftir viku. „Sænska deildin er klárlega talvert betri en danska deildin og þetta er besta liðið í Svíþjóð í dag. Með valda manneskju í hverri stöðu. Þetta verður klárlega mjög krefjandi verkefni. En við eigum alltaf möguleika, sama gegn hvaða liði það er. Ég held að íslenska landsliðið hafi sýnt það best að það skiptir ekki máli á móti hvaða stórþjóð maður er að spila, ef maður hefur trú á verkefninu er alltaf hægt að gera góða hluti. Við förum klárlega þannig inn í þetta. Að sama skapi verðum við að vera mjög þéttar. Þær eru með gríðarlega hraða framlínu og mjög hæfileikaríka miðjumenn. Þetta verður virkilega krefjandi en við erum klárar.“
Breiðablik Evrópubikar kvenna í fótbolta Mest lesið Fræg íþróttafréttakona brann inni með þremur börnum sínum Sport Gagnrýnir HSÍ og bendir á misræmi: „Galið dæmi“ Handbolti Aldrei kynnst öðru eins fyrir stærsta leik Heimis með Íra Fótbolti Ung hnefaleikakona í dái eftir rothögg Sport Kynjakvóti FIFA: „Átt bara að fá starfið á eigin verðleikum“ Fótbolti Hnefaleikakonan unga vöknuð úr dái Sport Sonur Maradona: „Ef pabbi var Guð er McTominay Jesús“ Fótbolti Lykilmenn lýsa yfir stuðningi við Alfreð Handbolti Kallaði skiptingu Foden „góðgerðarskiptingu“ Enski boltinn „Það eina sem gat togað mig í einhvern alvöru fótbolta“ Sport Fleiri fréttir KR og Valur mætast í Mjólkurbikarnum Víkingskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum Gleðifréttir fyrir FH-konur sem halda Andreu Rán Þriðji ættliðurinn sem spilar með FH 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Sjá meira