

Fótbolti
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Ræðst hvaða stjörnur bíða strákanna okkar (en kannski ekki alveg)
Í dag verður dregið í undanriðla fyrir heimsmeistaramót karla í fótbolta, sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada sumarið 2026. Það verður fyrsta heila undankeppni nýs landsliðsþjálfara Íslands.

Ítalska goðsögnin rakaði sig í fyrsta sinn í 22 ár
Sumir eru tilbúnir að gefa mikið af sér fyrir gott málefni og þar á meðal var gömul knattspyrnuhetja Ítala.

Amorim ánægður með að sjá leikmenn sína rífast
Ruben Amorim, þjálfari Manchester United, sá ekkert neikvætt við það að leikmenn hans rifust eftir 2-1 útisigur United á Viktoria Plzen í Tékklandi í Evrópudeildinni í kvöld.

Elías fór meiddur af velli á móti Porto
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson fór meiddur af velli í tapleik á móti Porto í Evrópudeildinni í kvöld.

Átta liða úrslit Meistaradeildarinnar klár hjá konunum
Evrópumeistarar Barcelona urðu í kvöld áttunda og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta.

Varamennirnir björguðu stigi fyrir Tottenham í Skotlandi
Þetta hafa verið erfiðar vikur fyrir Tottenham og en liðið náði að bjarga stigi í Skotlandi í Evrópudeildinni í kvöld.

Albert með mark og stoðsendingu í stórsigri Fiorentina
Albert Guðmundsson er mættur á ný eftir meiðsli og farinn að minna á sig hjá Fiorentina.

Hræðileg mistök Onana en Höjlund kom Man. Utd til bjargar
Manchester United hélt áfram sigurgöngu sinni í Evrópudeildinni í kvöld þegar enska liðið sótti þrjú stig til Tékklands. Þetta var þriðji sigur liðsins í röð í Evrópu.

Átján ára strákur með tvö mörk fyrir Chelsea í Sambandsdeildinni
Chelsea sótti þrjú stig í kuldann í Kasakstan í Sambandsdeildinni í dag. Liðið vann þá 3-1 sigur á heimamönnum í FC Astana en öll mörkin komu í fyrri hálfleiknum.

Sara Björk og félagar að komast í gang
Sara Björk Gunnarsdóttir og liðsfélagar hennar í Al Qadisiya fögnuðu flottum sigri á Al Shabab í sádi-arabísku kvennadeildinni í fótbolta í dag.

„Fengum viðvaranir áður en mörkin komu“
Viktor Örlygur Andrason, fyrirliði Víkings, var svekktur eftir að liðið beið ósigur gegn Djurgården í næstsíðustu umferð deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla á Kópavogsvelli í dag.

Salah verði áfram því aðrir kostir séu fáir
Jamie Carragher telur að Mohamed Salah muni skrifa undir nýjan samning við Liverpool og vera áfram hjá félaginu. Hann telur að kostir Egyptans séu ekkert rosalega margir.

„Einbeitingaleysið sem leiðir til marka þeirra óboðlegt“
Arnari Bergmanni Gunnlaugssyni, þjálfara Víkings, fannst ýmislegt ábótavant þegar lið hans laut í lægra haldi fyrir Djurgården í fimmtu umferð í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu á Kópavogsvelli í dag.

Í beinni: Astana - Chelsea | Hvolpasveit í Kasakstan
Chelsea sendi ungan hóp til Kasakstan þar sem liðið tekst á við Astana í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta.

Uppgjörið: Víkingur - Djurgården 1-2 | Víkingur þarf að sækja stig í Linz
Djurgården fór með 2-1 sigur af hólmi þegar liðið sótti Víking heim á Kópavogsvöll í fimmtu og næstsíðustu umferð deildarkeppinnnar í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta karla í dag.

Segir að Guardiola hafi fórnað titlum vegna eigin hégómagirndar
Fabio Capello, einn sigursælasti knattspyrnustjóri fótboltasögunnar, hefur gagnrýnt Pep Guardiola, stjóra Manchester City, harðlega og sagt að hégómagirnd hans hafi komið í veg fyrir að hann hafi unnið enn fleiri titla á ferlinum.

Mætti syni sínum
Fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaðurinn Steinþór Freyr Þorsteinsson mætti syni sínum, Emil, í Kjarnafæðismótinu í gær.

„Aldrei séð Guardiola-lið svona lélegt“
Ekkert gengur hjá Englandsmeisturum Manchester City og Rio Ferdinand segist aldrei hafa séð jafn lélegt lið undir stjórn Peps Guardiola.

Amorim tjáir sig um brotthvarf Ashworths: „Ekki besta staðan“
Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að brotthvarf Dans Ashworth frá félaginu sé ekki ákjósanlegt.

Rannsókn felld niður í máli Mbappé
Saksóknari í Svíþjóð staðfesti í dag að rannsókn hefði verið hætt í máli franska fótboltamannsins Kylian Mbappé, sem grunaður var um nauðgun í Stokkhólmi í október.

Sjáðu bombu Hákonar og Man. City í bobba
Hákon Arnar Haraldsson skoraði glæsilegt sigurmark fyrir Lille í gærkvöld, í 3-2 sigri gegn Sturm Graz í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Manchester City er hins vegar í vanda eftir 2-0 tap gegn Juventus. Mörkin úr leikjunum má nú sjá á Vísi.

Popp vill fá mömmu Sveindísar oftar
Sveindís Jane Jónsdóttir varð í gærkvöld fyrst Íslendinga til að skora fernu í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Liðsfélagi hennar og fyrirliði Wolfsburg, Alexandra Popp, var með áhugaverða skýringu á ótrúlegri frammistöðu Sveindísar.

„Núna erum við allt í einu komnir í draumalandið“
Víkingar eru í þeirri stórkostlegu stöðu að geta upp úr hádegi í dag tryggt sér sæti í útsláttarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta. Arnar Gunnlaugsson á von á mikilli stemningu á Kópavogsvelli en þar verða hundruð sænskra stuðningsmanna Djurgården.

Alisson á sömu ósk og svo margir stuðningsmenn Liverpool
Alisson Becker snéri aftur í Liverpool markið í Meistaradeildinni í vikunni og var besti einn maður vallarins þegar liðið vann 1-0 sigur á Girona.

Mourinho daðrar við Real Madrid
José Mourinho, þjálfari tyrkneska félagsins Fenerbahce, útilokar það ekki að taka aftur við spænska stórliðinu Real Madrid. Hvort félagið hafi áhuga á því er samt allt önnur saga.

Furðulegt fagn sem enginn skilur
Enski fótboltamaðurinn Tobi Adebayo-Rowling var á skotskónum með liði sínu á dögunum en hvað hann gerði strax á eftir vakti upp spurningar.

Sjáðu fernuna hjá Sveindísi Jane í Meistaradeildinni
Sveindís Jane Jónsdóttir varð í kvöld fyrsti íslenski leikmaðurinn í sögunni sem nær að skora fernu í aðalkeppni Meistaradeildarinnar.

Sveindís Jane: Ég mun aldrei gleyma þessu kvöldi
Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði fernu í Meistaradeildinni í kvöld þegar Wolfsburg vann 6-1 sigur á Roma og tryggði sér sæti í útsláttarkeppni keppninnar.

Einn af leikvöngunum á HM 2034 verður í 350 metra hæð frá jörðu
Nú er endanlega orðið staðfest að heimsmeistarakeppni karla í knattspyrnu fer fram í Sádi-Arabíu árið 2034. FIFA staðfesti þetta formlega á ársþingi sínu í dag.

Barcelona vann dramatískan sigur í Þýskalandi
Barcelona og AC Milan unnu bæði leiki sína í Meistaradeildinni í kvöld. Feyenoord og Stuttgart unnu líka en eina markalausa jafntefli kvöldsins var í Portúgal.