Vazquez skaut tíu Madrídingum á toppinn Lucas Vazquez reyndist hetja Real Madrid er hann tryggði liðinu 0-1 sigur með marki á ögurstundu gegn Alaves í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 21. desember 2023 22:24
Varamaðurinn Welbeck bjargaði stigi fyrir Brighton Crystal Palace og Brighton gerði 1-1 jafntefli er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 21. desember 2023 21:53
Willum lagði upp en Kristian og félagar úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Willum Þór Willumsson og félagar hans í Go Ahead Eagles eru komnir í 16-liða úrslit hollensku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir öruggan 7-1 sigur gegn C-deildarliði De Treffers í kvöld. Kristian Hlynsson og félagar eru hins vegar úr leik eftir 3-2 tap gegn D-deildarliði USV Hercules. Fótbolti 21. desember 2023 21:27
Natasha kom inn af bekknum í magnaðri endurkomu Natashi Anasi og stöllur hennar í norska liðinu Brann nældu í stig er liðið tók á móti Lyon í B-riðli Meistaradeildar Evrópu kvenna í kvöld. Lokatölur 2-2 í leik þar sem frönsku gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins. Fótbolti 21. desember 2023 20:55
Girona missteig sig og gæti misst toppsætið í kvöld Girona þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli er liðið heimsótti Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 21. desember 2023 19:59
Sá markahæsti getur ekki beðið eftir fríinu og ætlar að senda myndir af ströndinni Harry Kane, markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, getur ekki beðið eftir því að koma sér fyrir á ströndinni í sínu fyrsta jólafríi á ferlinum. Fótbolti 21. desember 2023 18:31
Árni Vilhjálmsson búinn að finna sér lið á Ítalíu Knattspyrnumaðurinn Árni Vilhjálmsson hefur gert samning við ítalska C-deildarliðið Novara. Hann gengur formlega í raðir félagsins eftir áramót. Fótbolti 21. desember 2023 18:00
Ekki einn heldur tveir Mbappé inn á vellinum hjá PSG í gær Kylian Mbappé og fjölskylda upplifðu stóra stund í gær þegar Paris Saint Germain vann 3-1 sigur á Metz á Parc des Princes í frönsku deildinni. Fótbolti 21. desember 2023 13:32
Dóttir Eto'os fer í mál við hann og krefst einnar og hálfrar milljónar frá honum Dóttir Kamerúnans Samuels Eto'o, eins sigursælasta fótboltamanns síðari ára, hefur farið í mál í við hann. Fótbolti 21. desember 2023 11:30
Dómarinn ætlar aldrei að fyrirgefa forsetanum sem kýldi hann Tyrkneski fótboltadómarinn Halil Umut Meler ætlar ekki að fyrirgefa forseta Ankaragucu sem kýldi hann eftir leik gegn Caykur Rizespor í síðustu viku. Fótbolti 21. desember 2023 11:01
UEFA og FIFA í órétti gegn Ofurdeildinni Evrópudómstóllinn hefur tekið fyrir baráttuaðferðir Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, og Evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA, gegn þeim sem reyna að stofna nýjar knattspyrnukeppnir eins og hina umdeildu Ofurdeild Evrópu. Fótbolti 21. desember 2023 10:30
Mjög stutt í að Sveindís Jane snúi aftur Það er mjög stutt í að við fáum að sjá íslensku landsliðskonuna Sveindísi Jane Jónsdóttur, leikmann Wolfsburg, aftur inn á knattspyrnuvellinum eftir meiðslahrjáða mánuði. Þessi öflugi leikmaður hefur ekki setið auðum höndum þrátt fyrir að hafa ekki geta' sinnt atvinnu sinni að fullu að undanförnu. Hún er rithöfundur nýrrar barnabókar sem kom út núna fyrir jólin. Fótbolti 21. desember 2023 10:00
„Þetta er nú bara svona á hverju ári“ Það má með sanni segja að Orri Steinn Óskarsson hafi tekið stór skref á sínum fótboltaferli ár árinu sem nú er að líða. Eftir að hafa verið sendur á láni til liðs í næst efstu deild Danmerkur í upphafi árs þá sneri Orri Steinn til baka þaðan í lið FC Kaupmannahafnar, meira reiðubúinn en áður til þess að láta til sín taka. Fótbolti 21. desember 2023 08:00
Dani Alves fer fyrir spænska dómstóla í febrúar Dani Alves mun fara fyrir spænska dómstóla dagana 5.–7. febrúar 2024. Þessi fyrrum leikmaður Barcelona og brasilíska landsliðsins var handtekinn og hefur setið í fangaklefa síðan í janúar á þessu ári. Fótbolti 21. desember 2023 07:00
Spennan magnaðist í riðlakeppninni eftir úrslit kvöldsins Enn ríkir mikil spenna yfir C-riðli Meistaradeildar kvenna í fótbolta eftir að bæði Bayern Munchen og Roma mistókst að tryggja sig áfram í átta liða úrslitin í kvöld. Fótbolti 20. desember 2023 19:52
Brösugir Börsungar áttu í vandræðum með botnliðið Barcelona vann 3-2 á heimavelli gegn Almería, neðsta liði spænsku úrvalsdeildarinnar. Mörkin komu frá hægri væng Börsunga, kantmaðurinn Raphinha skoraði fyrra markið og lagði annað markið svo upp á bakvörðinn Sergi Roberto, sem var aftur á ferðinni í sigurmarkinu en þá eftir undirbúning Robert Lewandowski. Fótbolti 20. desember 2023 19:28
Fimm leikmenn litu rautt eftir slagsmál Deildarkeppnir í knattspyrnu í Tyrklandi hófust aftur í gær, viku eftir að hlé var gert frá öllum keppnum vegna líkamsárásar á dómara af hendi forseta félagsins Ankaragucu. Strax í gær leit annar skandall dagsins ljós og nú í dag urðu hópslagsmál í næst efstu deild. Fótbolti 20. desember 2023 18:46
Neymar missir af Copa América Brasilíski fótboltamaðurinn Neymar missir af Suður-Ameríkukeppninni á næsta ári vegna meiðsla. Fótbolti 20. desember 2023 16:30
Magni hættur eftir „óróa og klofning“ Magni Fannberg Magnússon er hættur sem íþróttastjóri hjá norska félaginu Start en hann og félagið komust að samkomulagi um starfslok. Fótbolti 20. desember 2023 15:04
Fær 206 milljónir í laun og er orðin sú launhæsta Maria Sánchez er nú orðin launahæsti leikmaður bandarísku kvennadeildarinnar í fótbolta eftir að hún skrifaði undir nýjan samning við Houston Dash. Fótbolti 20. desember 2023 15:01
Glódís í 42. sæti yfir bestu leikmenn síðasta tímabils Fyrirliði íslenska fótboltalandsliðsins og Bayern München, Glódís Perla Viggósdóttir, er í 42. sæti á lista Goal.com yfir fimmtíu bestu leikmenn síðasta tímabils. Lesendur vefsíðunnar völdu listann. Fótbolti 20. desember 2023 12:30
Sædís fullkomnar árið með samningi í Noregi Knattspyrnukonan unga Sædís Rún Heiðarsdóttir hefur vægast sagt átt gott ár og er nú komin út í atvinnumennsku því hún skrifaði undir þriggja ára samning við Noregsmeistara Vålerenga. Fótbolti 20. desember 2023 11:37
Viðar gæti spilað á Íslandi: „Ekki spenntur fyrir að fara í nýtt land“ Knattspyrnumaðurinn víðförli Viðar Örn Kjartansson, einn allra markahæsti atvinnumaður Íslands frá upphafi, gæti vel hugsað sér að spila á Íslandi næsta sumar. Hann er jafnvel opinn fyrir því að spila með sínu gamla liði Selfoss, í 2. deild. Fótbolti 20. desember 2023 11:01
Annar skandall í Tyrklandi: Forsetinn dró liðið af velli Í annað sinn á skömmum tíma fór forseti liðs inn á völlinn í leik í tyrknesku úrvalsdeildinni. Fótbolti 20. desember 2023 07:15
Wenger viss um að stækkun HM félagsliða muni hjálpa fótboltanum Arsene Wenger, fyrrum þjálfari enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal, segir að stækkun heimsmeistaramóts félagsliða muni hjálpa til við að gera fótbolta enn alþjóðlegri en hann er nú og að ekki eigi aðeins að horfa á breytinguna út frá sjónahorni evrópskra liða. Fótbolti 20. desember 2023 07:01
Atlético Madrid kastaði frá sér tveggja marka forystu Leikmenn Atlético Madrid þurftu að sætta sig við jafntefli er liðið tók á móti Getafe í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 3-3 eftir að heimamenn í Atlético höfðu komist í 3-1. Fótbolti 19. desember 2023 22:41
Ítölsku meistararnir fengu skell og eru úr leik Ítalíumeistarar Napoli eru úr leik í ítölsku bikarkeppninnni Coppa Italia eftir óvænt 0-4 tap gegn Frosinone í kvöld. Fótbolti 19. desember 2023 22:29
Chelsea snéri dæminu við og fer í undanúrslit eftir vítaspyrnukeppni Chelsea tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum enska deildarbikarsins í knattspyrnu með sigri gegn Newcastle í vítaspyrnukeppni. Fótbolti 19. desember 2023 22:13
Fulham í undanúrslit eftir sigur í vítaspyrnukeppni Fulham tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum enska deildarbikarsins með sigri í vítaspyrnukeppni gegn Everton í úrvalsdeildarslag í átta liða úrslitum. Fótbolti 19. desember 2023 22:02
Dortmund og Leipzig töpuðu stigum í toppbaráttunni Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Dortmund og Leipzig, sem bæði berjast í kringum toppinn í deildinni, þurftu bæði að sætta sig við 1-1 jafntefli í sínum leikjum. Fótbolti 19. desember 2023 21:35