Man Utd sendir Reguilon aftur til Tottenham Spænski bakvörðurinn Sergio Reguilon er genginn aftir til liðs við Tottenham eftir stutta lánsdvöl hjá Manchester United. Fótbolti 2. janúar 2024 22:31
AC Milan örugglega í átta liða úrslit AC Milan tryggði sér sæti í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar, Coppa Italia, með öruggum 4-1 sigri gegn Cagliari í kvöld. Fótbolti 2. janúar 2024 21:55
Markalaust jafntefli batt enda á sigurgöngu West Ham Eftir þrjá sigurleiki í röð í ensku úrvalsdeildinni er sigurganga West Ham United á enda eftir markalaust jafntefli gegn Brighton & Hove Albion í kvöld. Fótbolti 2. janúar 2024 21:24
Hissa á að meiddur Mitoma hafi verið tekinn með á Asíumótið Roberto de Zerbi, knattspyrnustjóri Brighton & Hove Albion, segist vera ansi hissa á því að vængmaðurinn Kaoru Mitoma hafi verið kallaður inn í japanska landsliðið fyrir Asíumótið sem hefst í næstu viku. Fótbolti 2. janúar 2024 18:30
Tuchel í áfalli yfir hversu slæmt ástandið hjá Bayern var Thomas Tuchel var brugðið hversu slæmt andlegt og líkamlegt ásigkomulag leikmanna Bayern München var þegar hann tók við liðinu í fyrra. Fótbolti 2. janúar 2024 15:30
Enginn fær að spila í tíunni á eftir Messi Tían verður tekin úr umferð hjá argentínska karlalandsliðinu í fótbolta þegar Lionel Messi hættir að spila með landsliðinu. Fótbolti 2. janúar 2024 13:00
Landsliðskonur Hollands og Ástralíu trúlofuðu sig Fótboltakonurnar Danielle van de Donk og Ellie Carpenter notuðu tækifærið og trúlofuðu sig um áramótin. Fótbolti 2. janúar 2024 10:00
„Ronaldo hefur alltaf verið átrúnaðargoðið mitt“ Rafael Leao, leikmaður AC Milan, segir að átrúnaðargoð hans hafi alltaf verið samlandi hans, Cristiano Ronaldo. Fótbolti 1. janúar 2024 18:00
Elísabet, Gylfi Þór og Reynir Pétur í hópi nýrra fálkaorðuhafa Fjórtán Íslendingar – sjö karlar og sjö konur – voru sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í dag. Innlent 1. janúar 2024 14:48
Heiðursstúkan: Leifur Andri gegn Hólmari Erni Fimmti þátturinn af Heiðursstúkunni er nú kominn í loftið en þar mætast þeir Leifur Andri Leifsson og Hólmar Örn Eyjólfsson og var þeirra viðfangsefni að sjálfsögðu fótbolti. Fótbolti 1. janúar 2024 10:30
Krefjast allsherjar banns íþróttafólks frá Ísrael Knattspyrnusamband Jórdaníu hefur krafist þess að íþróttasamfélagið taki höndum saman gegn innrás Ísraela í Palestínu og að ísraelskt íþróttafólk verði bannað frá þátttöku í alþjóðlegum keppnum. Sport 1. janúar 2024 09:01
Kvartaði til lögreglu vegna kynþáttaníðs fulls fótboltamanns Starfsmaður í mótttökuþjónustu í húsnæði með lúxusíbúðum á Bretlandi kvartaði til lögreglu vegna meints kynþáttaníðs af hendi ónefnds fótboltamanns í ensku úrvalsdeildinni. Sá sem hann ber sökunum hafi verið drukkinn. Enski boltinn 1. janúar 2024 08:01
„Versti leikur okkar á leiktíðinni“ Arsenal þurfti að þola annað tap sitt í röð í ensku úrvalsdeildinni er Fulham vann 2-1 sigur á liðinu á Craven Cottage í dag. Knattspyrnustjóri Arsenal segir leikinn hafa verið afar slakan af hálfu hans manna. Enski boltinn 31. desember 2023 21:01
Bailly aftur til Villarreal Fyrrum varnarmaður Man. Utd, Eric Bailly, er kominn aftur til Spánar. Fótbolti 31. desember 2023 20:01
Oliver heim á Skagann Skagamenn fengu nýársgjöf í dag þegar tilkynnt var um heimkomu Olivers Stefánssonar frá Breiðabliki. Oliver mun leika með liðinu á komandi leiktíð í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 31. desember 2023 19:01
86 milljón punda vængmaðurinn sem skorar hvorki né leggur upp Sóknarvandræði Manchester United virðast engan enda ætla að taka en liðið virkaði mjög bitlaust fram á við í tapleik gegn Nottingham Forest í gær. Sá leikmaður sem hefur verið hvað harðast gagnrýndur er Antony en hann hefur hvorki skorað né lagt upp mark á tímabilinu. Fótbolti 31. desember 2023 09:00
Varamarkvörður Arbroath skoraði sannkallað draumamark Sá fáheyrði atburður atburður átti sér stað í skosku B-deildinni í kvöld að varamarkvörður skoraði mark og það var vægast sagt af dýrari gerðinni. Fótbolti 30. desember 2023 23:00
Rabiot hélt Juventus á lífi í toppbaráttunni Juventus mátti ekki við því að misstíga sig þegar Róma kom í heimsókn í stórleik umferðarinnar í ítölsku úrvalsdeildinni. Aðeins eitt mark leit dagsins ljós en það dugði Juventus til sigurs. Fótbolti 30. desember 2023 21:45
Enginn Højlund í hópnum hjá United í dag Manchester United sækir Nottingham Forest heim í ensku úrvalsdeildinni þessa stundina en framherjinn Rasmus Højlund er fjarri góðu gamni vegna veikinda. Fótbolti 30. desember 2023 17:45
Birnir Snær og Sigdís Eva sköruðu fram úr hjá Víkingi Knattspyrnufólkið Birnir Snær Ingason og Sigdís Eva Bárðardóttir voru í gær kjörin íþróttakarl og íþróttakona Víkings árið 2023. Fótbolti 30. desember 2023 16:00
Madrid, Liverpool, París eða Sádi Arabía? Samningur Kylian Mbappe hjá franska stórliðinu PSG rennur út næsta sumar. Frá og með áramótum geta önnur félög því hafið samningaviðræður við stórstjörnuna. Enski boltinn 30. desember 2023 13:31
Myndi hugsa sig tvisvar um ef símtal bærist frá Íslandi Lars Lagerbäck fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta telur ólíklegt að hann taki að sér annað þjálfarastarf í boltanum. Fótbolti 30. desember 2023 10:31
Rifti samningnum eftir aðeins fimm deildarleiki Eric Bailly, fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur fengið samningi sínum rift við tyrkneska félagið Besiktas. Hann hafði verið hjá félaginu í um fjóra mánuði. Fótbolti 30. desember 2023 09:00
Máttu ekki hita upp merktir stofnanda lýðveldisins og neituðu að spila Úrslitaleik tyrkneska ofurbikarsins milli Galatasaray og Fenerbache sem átti að fara fram í kvöld hefur verið frestað um óákveðin tíma. Leikmönnum var bannað að hita upp í treyjum merktum Mustafa Kemal Ataturk, stofnanda lýðveldisins Tyrklands, og neituðu því að spila. Fótbolti 29. desember 2023 23:00
Arnór lagði upp tvö í grátlegu tapi Arnór Sigurðsson og félagar hans í Blacburn máttu þola grátlegt 3-2 tap er liðið heimsótti Hull í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 29. desember 2023 22:18
Albert lagði upp er Genoa stal stigi af toppliðinu Albert Guðmundsson og félagar í Genoa gerðu 1-1 jafntefli er liðið tók á móti Inter, toppliði ítölsku úrvalsdeildarinnar, í kvöld. Fótbolti 29. desember 2023 21:53
Meistararnir töpuðu enn einu sinni stigum Ítalíumeistarar Napoli þurftu að sætta sig við markalaust jafntefli er liðið tók á móti Monza í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 29. desember 2023 19:28
Ekkert víst að ríkasta félag heims muni eyða í janúar Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcastle, segir að það sé ólíklegt að hann nái að leysa slæmt gengi og meiðslavandræði liðsins með leikmannakaupum í janúarglugganum. Fótbolti 29. desember 2023 18:30
Ancelotti framlengir við Real Madrid Ítalinn Carlo Ancelotti hefur skrifað undir nýjan samning við Real Madrid til 2026. Fótbolti 29. desember 2023 15:45
Fundu loks þjálfara og sá er ekki íslenskur Eftir að hafa mistekist að landa Arnari Gunnlaugssyni sem nýjum þjálfara virðast forráðamenn sænska knattspyrnufélagsins Norrköping nú hafa fundið mann í starfið. Sá er ekki íslenskur. Fótbolti 29. desember 2023 12:25