„Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Allt hefur gengið sinn vanagang á Keflavíkurflugvelli í morgun þrátt fyrir að 26 flugferðum Icelandair hafi verið aflýst vegna verkfalls flugvirkja segir upplýsingafulltrúi Isavia. Hann biðlar til fólks að mæta ekki á Keflavíkurflugvöll ef flugi þess er aflýst. Innlent 23.9.2026 07:34
Fella niður 26 flugferðir Icelandair hefur aflýst öllum brottförum frá Keflavík og Reykjavík á miðvikudagsmorgun, í dag, eftir að verkfall flugvirkja hófst á miðnætti. Um er að ræða 26 flugferðir frá Keflavík til Evrópu og til baka auk fimm flugferða innanlands frá Reykjavík og til baka. Innlent 23.9.2026 00:17
Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Forsvarsmenn Isavia segja að aldrei hafi fleiri stoppað stutt, eða innan við fimm mínútur, í brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll eins og eftir að gjaldtaka hófst í rennunni. Hlutfallið sé nú 97 prósent en hafi áður verið áttatíu prósent. Athugasemdir Félags íslenskra bifreiðaeigenda verði þó teknar til skoðunar og samtal opnað við félagið um málið. Neytendur 22.9.2026 21:42
Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Frestun verkfalls flugvirkja myndi ekki draga úr skaða heldur framlengja óvissutímabil og auka tjón allra aðila enn frekar. Þetta segja stjórnendur Icelandair um þá tillögu flugvirkja að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Þær hefjast að óbreyttu á miðnætti aðfaranótt miðvikudags. Innlent 21. september 2026 18:47
Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Flugvirkjar fullyrða að forsvarsmenn flugfélagsins Icelandair hafi hafnað tillögu flugvirkja um að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Félag flugvirkja segir að tilgangurinn með tillögunni hafi verið að gefa aðilum tíma til að vinna áfram með innanhústillögu ríkissáttasemjara. Innlent 21. september 2026 17:16
Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Fjármála- og efnahagsráðherra segir boðað verkfall flugvirkja myndu hafa mikil áhrif á ferðaþjónustuna, fjölda annarra atvinnugreina og ferðafrelsi þjóðarinnar. Ríkisstjórnin fylgist vel með stöðunni og muni grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma. Innlent 21. september 2026 14:28
Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Þreifingar voru í gær milli samninganefnda flugvirkja og Icelandair um að þoka kjaraviðræðum áfram. Framhaldið hefur ekki verið ákveðið en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudags, 23. september. Viðskipti innlent 21. september 2026 13:03
Tafir á Keflavíkurflugvelli Nokkrar tafir hafa orðið á Keflavíkurflugvelli í morgun vegna veðurs en gul viðvörun var í gildi á Suðurlandi og við Faxaflóa frá klukkan fimm í morgun og til níu. Innlent 21. september 2026 11:43
„Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Ásdís Eir Guðmundsdóttir, lögfræðingur Félags atvinnurekenda (FA), segir stjórnvöld verða að skoða hvernig sé hægt að tryggja meiri sanngirni þegar ákveðnar stéttir geti með verkfallsréttinum valdið svo miklum samfélagslegum skaða. Hún segir það ekki samrýmast grundvallarsjónarmiðum samningsréttar að ferðaþjónustuaðilar, sem eigi enda aðild að kjarasamningum flugstétta, beri einir óskipta fjárhagslega áhættu af vinnudeilum flugvirkja. Viðskipti innlent 19. september 2026 13:32
Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) lýsir þungum áhyggjum af áhrifum boðaðs verkfalls á flugvirkja. Ferðaþjónustufyrirtæki hafi þegar fengið fjölda afbókana vegna verkfallsins. Innlent 19. september 2026 12:25
Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Sem afskekkt eyríki í Norður-Atlandshafi er Ísland óhjákvæmilega háð flugsamgöngum. Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð, brúin sem tengir samfélag okkar og atvinnulíf við umheiminn. Þeir sem búa yfir valdi til að teppa þessa lífæð fara því með mikil völd. Skoðun 19. september 2026 11:03
Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Sáttasemjari hefur hvatt fulltrúa Icelandair til að leggja áherslu á færri mál í kjaraviðræðum við flugmenn, að sögn samninganefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Nefndin telur umfangsmikinn kröfulista félagsins hindra framgang viðræðnanna. Innlent 18. september 2026 16:19
Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Fundur flugvirkja og Icelandair hjá ríkissáttasemjara lauk án árangurs í dag. Að óbreyttu hefst ótímabundið verkfall flugvirkja aðfaranótt miðvikudagsins 23. september, eftir fimm daga. Innlent 18. september 2026 13:52
Fundað í flugvirkjadeilu Samninganefndir í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa verið boðaðar til fundar í Karphúsinu á hádegi í dag. Þetta staðfestir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari við fréttastofu. Hann segist hafa verið í stöðugu sambandi og átt í samráði við báðar samninganefndir undanfarna daga. Innlent 18. september 2026 06:26
Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Rúmlega þúsund farþegar Icelandair hafa nýtt sér boð félagsins um að færa flug vegna fyrirhugaðs verkfalls flugvirkja. Enginn sáttafundur hefur verið boðaður í deilunni en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudagsins 23. september. Viðskipti 17. september 2026 11:35
Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls Á morgunverðarfundi Kristrúnar Frostadóttir forsætisætisráðherra í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli 22. maí 2025 svaraði ráðherra með eftirfarandi hætti þegar spurt var að því hvort það stæði til að staðsetja eina af þyrlum Landhelgisgæslunnar á Akureyrarflugvelli: „Það stendur til að gera þetta. Ég styð þetta heilshugar.“ Skoðun 17. september 2026 07:30
Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Að öllu óbreyttu verða allar flugferðir með Icelandair frá landinu dagana 23. og 24. september felldar niður vegna yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Farþegum stendur til boða að breyta bókuðum ferðum en eru þær breytingar háðar sætaframboði. Innlent 16. september 2026 17:39
Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Flugvirkjafélag Íslands gagnrýnir umræðu um 1,4 milljónir króna í meðallaun flugvirkja og segir meðaltalið geta gefið villandi mynd af kjörum þeirra. Viðskipti innlent 16. september 2026 12:02
Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Framkvæmdastjóri Keilusambands Íslands þvertekur fyrir að um kynjamisrétti hafi verið að ræða þegar að leikmenn í karlalandsliði Íslands fengu sæti í Saga Class á leið í landsliðsverkefni á Írlandi í morgun á meðan að leikmenn kvennalandsliðsins þurftu að sitja á almennu farrými. Sport 16. september 2026 10:54
Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Friðrik Árnason, eigandi Hótels Breiðdalsvíkur, segir erfitt að flugstéttir hafi slíkt vald að þær geti lokað landinu í verkfalli. Hann óttast gríðarlegt tap fyrir ferðaþjónustuna í heild verði af verkfalli flugvirkja í næstu viku. Viðskipti innlent 16. september 2026 08:21
Telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu í kjaradeildu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair að svo stöddu, enda séu engir formlegir samningafundir fyrirsjáanlegir að svo komnu máli. Innlent 16. september 2026 07:51
Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Þrír létust og að minnsta kosti einn var fluttur á sjúkrahús þegar þyrla hrapaði í úthverfi Los Angeles í nótt. Um var að ræða fréttaþyrlu frá sjónvarpsstöðinni NBC og á myndbandi úr þyrlunni má sjá síðustu augnablikin áður en hún hrapaði til jarðar. Erlent 16. september 2026 07:00
„Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Innviðaráðherra segir boðað verkfall flugvirkja hjá Icelandair alvarlegt mál og að algjört grundvallaratriði sé að deiluaðilar finni lausn á deilunni áður en til verkfalls kemur. Þó hafi möguleikinn á því að setja lög á verkfall flugvirkja ekki komið til umræðu. Innlent 15. september 2026 11:43
Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir útlitið ekki gott með tilliti til yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Icelandair hafi lagt til að gerðardómsleið verði farin í deilunni en ekkert hafi verið ákveðið. Verkfall myndi hafa áhrif á þúsundir ferðamanna. Viðskipti innlent 15. september 2026 08:09