

Fastir pennar

Verðlaun
Á hverju ári er fólk hér að myndast við að veita verðlaun fyrir framúrskarandi listræn afrek. Auk hávirðulegra bókmenntaverðlauna forsetans eru haldnar Eddu-, Ístón- og Grímuverðlaunaveislur og fólk mætir dragfínt í sparifötunum. Þetta er ágætis úthald hjá þjóð sem telur jafn margar hræður og Coventry.

Skattur? Nei, gjald
Borgarstjórinn í London, Ken Livingstone, lagði fyrir nokkrum árum umferðargjald á ökumenn í London til að draga úr umferðarþunganum í miðborginni, enda var hann orðinn nær óbærilegur.

McFréttir eða lífrænt ræktaðar
Hið gamla spakmæli „allt er best í hófi“ kemur upp í hugann þegar maður fer í sumarleyfi og finnur hvílík hvíld er fólgin í því að losna úr heljargreipum þess lífsmynsturs sem maður er fastur í dagsdaglega. Maður hringir bara nauðsynleg símtöl til að tilkynna aðstandendum að maður hafi náð að komast á réttan áfangastað og sé ekki kafnaður úr hita. Maður fær bara nauðsynlegar fréttir af því að ekki hafi gleymst að vökva blómin og skipta um sand í kattakassanum.

Ný Evrópa án okkar
Leiðtoga ríkja Evrópusambandsins bíður nú það miserfiða verkefni að sannfæra íbúa landa sinna um ágæti nýs stjórnskipunarsáttmála sem þeir lönduðu eftir nokkurn barning í Brussel á föstudaginn.

Á ferð með afturgöngum
Hvað er eiginlega bak við þessa hurð,“ spurði ég eitt sinn konu sem var að sýna mér íbúð sem ég hafði í hyggju að kaupa. „O, svo sem ekkert,“ svaraði konan. Þegar henni hafði tekist að ljúka upp dyrunum með háværu marri blasti ekkert annað við en stigagangur frá undarlegu sjónarhorni og töluverð hæð niður að þrepunum. „Þetta hús var byggt þegar enn tíðkaðist að fólk dæi heima hjá sér.

Baráttan fyrir ábyrgum akstri
Ferðasumarið er hafið. Á það var rækilega minnt þegar langar raðir bifreiða mynduðust á umferðaræðunum til og frá höfuðborginni, fyrst út úr bænum á föstudag og svo aftur inn í bæinn á sunnudag.

Umræðan mótist af heildarsýn
Hröðum þjóðfélagsbreytingum fylgir að endurskoða þarf ýmsa þætti í samfélaginu. Þannig hefur vægi fjármála- og viðskiptalífs aukist verulega í samfélaginu, án þess að samsvarandi vöxtur fylgi í eftirlitsstofnunum sem sinna þeim málaflokki.

Ríkar stelpur stuða
Þegar ég vann á vikublaði spurði ég eitt sinn kollega minn hvort honum þætti eðlilegt að þegar hann skrifaði um karla í nýjum samböndum segði hann að þeir væru „komnir með nýja upp á arminn“ en þegar konur byrjuðu með nýjum manni fylgdi alltaf sögunni að þær væru „lausgyrtar“.

Ljósið loftin fyllir
Nú eru dagar langir, birtan hvolfist yfir okkur þessi dægrin: nætur skammar og er dregur að hinu forna miðnætti leggst þögn yfir allt. Heyra má samtal manna langt að í borginni – sláttumann bölva yfir gamalli tvígengisvél sem vill ekki þýðast hann til sláttar langt að.

Viltu eitthvað meira?
Í Ofvitanum segir Þórbergur Þórðarson frá því þegar afgreiðslustúlka spyr hann: „Var það eitthvað fleira fyrir yður?“ Hann varð felmtri sleginn og fór að velta því fyrir sér hvað í ósköpunum hún gæti átt við með þessari spurningu. Niðurstaða hans var sú að hún hlyti að hafa verið að gera honum ósæmilegt tilboð og kætti það hann talsvert.

Starf eða hlutverk?
Hvað er þingmennska? Er það starf í hefðbundinni merkingu þess orðs? Er Alþingishúsið vinnustaður eins og hver önnur skrifstofa eða færibandaframleiðsla? Spurningar af þessu tagi vakna vegna umræðu um nýja þingmenn, önnur hlutverk þeirra og tengsl við fyrri störf.

Aflamarkskerfið í uppnámi
Lái mér hver sem vill, en ég hef lengi undrast þann lofsöng sem sunginn hefur verið um fiskveiðistjórnunarkerfi okkar Íslendinga. Fræðimenn í hagfræði, hagsmunaðilar í sjávarútvegi, stjórnmálamenn í valdastólum, hafa um árabil lofað og prísað aflamarkskerfið, sem á að hafa komið skikki á útgerð og fiskveiðar og leitt af sér hagræðingu í greininni með því að innleiða markaðstorg hins frjálsa framsals kvótans.

Álæði
Að vera umhverfisverndarsinni á Íslandi virðist vera svona svipað og að vera ævintýrariddari sem fær það erfiða og að mörgu leyti vanmetna hlutskipti að berjast við dreka með sverði. Eins og í flestum slíkum ævintýrum verður drekinn aldrei lagður auðveldlega. Þegar eitt höfuð hans er hoggið af, eftir talsverða fyrirhöfn, vaxa jafnan tvö í staðinn.

Grannþjóðir taka höndum saman
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra er nú stödd í Noregi þar sem hún hittir í dag Jens Stoltenberg forsætisráðherra. Áður ræddi hún við Anne-Grete Strøm-Erichsen varnarmálaráðherra og Jonas Gahr Støre utanríkisráðherra. Eitt aðalmálið á dagskrá viðræðna Ingibjargar við hina norsku kollega sína var hinn nýi tvíhliða samningur Íslands og Noregs um eflt samstarf á sviði öryggis- og varnarmála.

Mannauðsstjórnun
Loksins hef ég komist að því af hverju strákurinn sem ég leigði með um árið spilaði alltaf Eye of the tiger á morgnana áður en hann fór í skólann. Þetta vinsæla one hit wonder kom nefnilega óvænt inn í líf mitt á ný við frekar sérstakar kringumstæður.

Lyftum lokinu
Steinsnar frá æskuheimili mínu í prófessorabústöðunum í Reykjavík stóð gulur bær með grænu torfþaki, lítið hús umlukið hlöðnum grjótgarði og undarlega afskekkt og einmanalegt þrátt fyrir nálægðina við aðra mannabústaði. Mér stendur þetta hús í björtu barnsminni. Þarna bjó kunnur verklýðsfrömuður og alþingismaður, Eðvarð Sigurðsson, með aldurhniginni móður sinni.

Samviskubit
Bullandi samviskubit fylgir þeirri bullandi velmegun sem við njótum í hnattrænu samhengi, nemi maður passi sig að hugsa bara ekkert um það. Lesi ég á litlu miðana á fötunum mínum kemur í ljós að þau eru meðal annars framleidd í Víetnam (jakki), Kína (bolur og skór) og Indónesíu (gallabuxur).

Nafn lækkar laun um tíu prósent
Niðurstöður rannsóknar þar sem leitast var við að skýra svokallaðan óútskýrðan launamun kynjanna eru sláandi. Rannsóknin var unnin við Háskólann í Reykjavík og niðurstöður hennar kynntar á hinum séríslenska kvennadegi 19. júní.

Þorskurinn
Sennilega axlar enginn einn ráðherra ábyrgð að jöfnum þunga sem sjávarútvegsráðherra þegar hann mælir fyrir um heildarafla á Íslandsmiðum. Fyrir kemur að sú ákvörðun er ágreiningslaus. Í annan tíma veldur hún stórdeilum.

Daníel og Rut
Lúmskasta röksemdin í umræðum um misrétti kynjanna er sú að það fyrirfinnist ekki. Því til stuðnings er gjarnan vísað til frelsis einstaklingsins, allt sé undir honum sjálfum komið alveg óháð kyni.

Kvenna megin er allra gæfa
Íslenskar konur veltu grettistaki á þeim árum þegar þær voru að ávinna sér þau sjálfsögðu mannréttindi að fá kosningarétt: þær einhentu sér gegn því samfélagslega böli sem áfengisdrykkjan var, hrundu af stað hreyfingu sem olli byltingu í uppbyggingu sjúkrahúsa í landinu, gerbreyttu menntunaraðstöðu kvenna með kvennaskólahreyfingunni sem vann að víðtækum umbótum á hreinlæti og heimilisrekstri í landinu.

Sjálfsmyndin í hestöflunum
Börn eru undarleg fyrirbæri. Stundum hefur hvarflað að mér að fegurð þeirra og töfrar komi og fari með barnatönnunum. Áður en í þær glittir heilla þau fáa aðra en nánustu ættingja. Þegar síðasta barnatönnin dettur úr eru börnin yfirleitt orðnir unglingar, sem er allt annað og leiðinlegra fyrirbrigði en börn.

Kaupum regnskóg!
Forseti Ekvador hefur boðið heimsbyggðinni regnskóg til sölu. Landið er fátækt og þarf á nýjum tekjum að halda. Miklar auðævi leynast undir þjóðgarði í landinu, sem nú er ógnað vegna áforma um að vinna olíu sem þar er að finna. Nýkjörinn forseti, Rafael Correra, vill hætta við olíuvinnsluna.

Helguvík í heimanmund
Í VG er hvergi jafn næm tilfinning fyrir æðaslætti samfélagsins og í fingurgómum félaga Ögmundar. VG hefði ekki tapað helmingi af fylginu, sem flokkurinn hafði náð upp úr áramótum, ef forystan hefði ekki ýtt honum til hliðar í kosningabaráttunni.

Völdin eiga að fylgja eigin eign
Slit Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga og afhending eignarhluta til tugþúsunda tryggingataka sem tryggðu hjá félaginu á árum áður er afar jákvætt skref og til sóma þeim sem að því stóðu.

Fjallkarl handa Fjallkonunni
17. júní þegar ég var að alast upp sló út skrúðgöngurnar bæði fyrsta maí og á sjómannadaginn og dró að sér svo mikinn mannfjölda niður í miðbæ að þar voru saman komin fleiri andlit en maður hafði áður séð. Og skemmtiatriðin Þjóðsöngskórinn og dansleikur á malbiki á eftir voru stórkostir menningarviðburðir sem hafa geymst í glöpóttu minninu allt fram á þennan dag.

Hátíðisdagur þjóðarinnar
Merking þjóðhátíðardagsins í hugarheimi þeirra sem þjóðina mynda er áreiðanlega afar mismunandi á þessum sextugasta og þriðja afmælisdegi lýðveldisins.

Biljónsdagbók 17.6.2007
Þegar Öxar við ána reif í sundur morgunkyrrðina við East Meadow Manor í Surrey, og Dow Jones stóð í 13.424,39 þegar ég tipplaði út á grasbalann og dró íslenska fánann að húni. Mér finnst það partur af samfélagslegri ábyrgð að halda upp á daginn. Ég er nú einu sinni frá þessari eyju þó að ég sé auðvitað orðinn 83% glóball.

Bókaraþjóð
Þau undur og stórmerki hafa orðið á Íslandi að háskólar í landinu eru farnir að keppast um nemendur og auglýsa nú grimmt á hverju ári eftir umsóknum þar sem því er haldið fram að viðkomandi skóli sé bestur út frá einhverjum sjónarmiðum og að þar sé gott að læra í góðu akademísku umhverfi og svo framvegis.

Uppbyggingin
Nú á dögunum kom hingað til Íslands háttsetur gestur að nafni Nicholas Burns. Hann er aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna og átti hér í viðræðum við forsætis- og utanríkisráðherra. Að viðræðunum loknum fluttu fjölmiðlar, sem núna eru upp til hópa orðnir stjórnarsinnaðir, gagnrýnislausar fréttir um gott samband ríkjanna tveggja, rekstur ratsjárkerfisins og fleiri tæknileg mál sem þarf að semja um