

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Ted Lasso styður við bakið á Jadon, Marcus og Bukayo
Ted Lasso, þjálfari enska knattspyrnuliðsins AFC Richmond, styður við bakið á ensku landsliðsmönnunum þremur sem klúðruðu vítaspyrnum er England laut í gras gegn Ítalíu í úrslitum Evrópumótsins.

Solskjær blæs til sóknar og gæti varpað McFred fyrir róða
Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur tjáð leikmönnum liðsins að hann vilji spila meiri sóknarbolta á næsta tímabili. Það gæti þýtt færri leiki fyrir miðjuparið Scott McTominay og Fred.

Vandræðaleg mistök adidas: Vissu ekki hvað leikmaður Man. Utd. hét
Íþróttavöruframleiðandanum adidas urðu á vandræðaleg mistök þegar þeir kynntu nýjan búning Manchester United.

Saka lætur kynþáttaníðið ekki stöðva sig en gagnrýnir samfélagsmiðlarisana
„Ástin mun alltaf sigra,“ segir enski landsliðsmaðurinn Bukayo Saka í yfirlýsingu í kjölfar Evrópumótsins í fótbolta. Hann segir dapurlegt að samfélagsmiðlarisarnir skuli ekki geta stöðvað drulluna sem fær að fljóta á miðlunum.

Liverpool beinir athygli sinni að nýkrýndum Evrópumeistara
Liverpool hefur áhuga á nýkrýnda Evrópumeistaranum Nicolo Barella sem leikur með Inter.

Man. Utd. frumsýnir nýjan búning
Manchester United hefur frumsýnt nýjan búning liðsins sem verður notaður á næsta tímabili.

Leikmenn unglingaliðs Portsmouth til rannsóknar vegna rasisma eftir úrslitaleikinn á EM
Leikmenn unglingaliðs Portsmouth eru til rannsóknar vegna rasískra ummæla sem sumir þeirra létu falla eftir úrslitaleik EM.

Arteta kenndi þreytu um tapið gegn Hibernian
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að tapið gegn Hibernian í æfingaleik í gær hafi veri vegna þreytu. Tapið var nokkuð neyðarlegt fyrir enska stórliðið.

Benitez eftir mótmæli: „Það eru tilfinningar í fótbolta“
Rafa Benitez, nýráðinn stjóri Everton, segir að hann muni leggja sig allan fram hjá félaginu en læti hafa verið í kringum ráðningu Benitez.

Væri ekki á móti því að fá Griezmann til City
Ferran Torres, vængmaður Manchester City, hefði ekkert á móti því að fá Antoine Griezmann til félagsins.

Óvissa með framtíð Lingard
Knattspyrnumaðurinn Jesse Lingard stóð sig frábærlega eftir að hann var lánaður til West Ham United í janúar síðastliðnum. Hann er í dag leikmaður Manchester United en forráðamenn liðsins virðast ekki vita hvað þeir eigi að gera við leikmanninn.

Markvörður Arsenal gerði kostuleg mistök í fyrsta leiknum með aðalliðinu
Markvörðurinn Arthur Okonkwo gerði sig sekan um slæm mistök í sínum fyrsta leik fyrir aðallið Arsenal í gær. Skytturnar töpuðu þá fyrir Hibernian frá Skotlandi í æfingaleik.

Rashford gæti misst af fyrstu tveim mánuðum úrvalsdeildarinnar
Marcus Rashford, framherji Manchester United, gæti verið frá fram í lok október vegna meiðsla og þar af leiðandi myndi hann missa af fyrstu tveim mánuðum næsta tímabils í ensku úrvalsdeildinni. Rashford er á leiðinni í aðgerð á öxl.

Vandræði Man Utd meiri en við fyrstu sýn: Leikmenn íhuguðu að fara í verkfall
Það gengur allt á afturfótunum hjá kvennaliði Manchester United. Félagið er enn án þjálfara og leikmenn liðsins voru í fúlustu alvöru að íhuga verkfall nú þegar undirbúningur fyrir næstu leiktíð er að fara á fullt.

Mikið gagnrýndur en vill stýra enska liðinu í Katar
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, segir það ekki í sínum plönum að hætta með enska landsliðið þrátt fyrir vonbrigðin í úrslitaleik Evrópumótsins.

Varane færist nær United
Varnarmaðurinn Raphael Varane og Manchester United hafa átt í samningaviðræðum undanfarnar vikur og nú segir Manchester Evening News að aðilarnir séu að ná saman.

Fordæma kynþáttaníð í garð enskra leikmanna
England tapaði gegn Ítalíu í vítaspyrnukeppni í gærkvöld er liðin mættust í úrslitum Evrópumótsins í fótbolta. Þeir leikmenn enska liðsins sem brenndu af vítaspyrnum sínum fengu holskeflu af kynþáttaníði á samfélagsmiðlum í kjölfarið.

Nuno Tavares til Arsenal
Arsenal staðfesti í morgun kaup á portúgalska bakverðinum Nuno Tavares. Tavares er 21 árs og á að veita Kieran Tierney samkeppni um vinsti bakvarðarstöðuna.

Fyrrum framherji enska landsliðsins látinn
Paul Mariner, fyrrum framherji enska landsliðsins, er látinn. Mariner, sem var 68 ára, lést í faðmi fjölskyldunnar eftir stutta baráttu við krabbamein.

Framlengir við Liverpool eftir lánsdvölina
Liverpool tilkynnti í dag að félagið hefði framlengt samning sinn við hinn átján ára gamla Harvey Elliott.

Sala Patricio til Rómar gæti opnað dyrnar fyrir Ögmund
Markvörðurinn Rui Patricio er á leið til Roma í ítölsku úrvalsdeildinni. Gæti það leitt af sér kapal sem leiðir til þess að Ögmundur Kristinsson gæti fengið möguleika í marki Grikklandsmeistara Olympiacos.

Tebas hjá La Liga: Það væri peningasvindl ef Messi fer til Man. City eða PSG
Javier Tebas, forstjóri spænsku deildarinnar, segir að það yrði alltaf brot á rekstrarreglum fótboltans ef að Paris Saint-Germain eða Manchester City myndu semja við Lionel Messi í sumar.

PSG sagt vilja kaupa Paul Pogba frá Manchester United
Þetta hefur verið stórt sumar fyrir franska liðið Paris Saint-Germain og menn eru áfram stórhuga í París.

Giroud á leið til AC Milan
Olivier Giroud er á leið til AC Milan á Ítalíu samkvæmt heimildum Sky þar í landi. Giroud er 34 ára framherji sem hefur spilað með Chelsea frá árinu 2018.

Leikmenn kvennaliðs Man United hafa fengið nóg og leita til leikmannasamtakanna
Eftir að hafa rétt misst af Meistaradeildarsæti virðist mikill glundroði ríkja hjá kvennaliði Manchester United. Þjálfarinn er farinn, bestu leikmenn liðsins eru á förum og nú vilja leikmenn liðsins ræða við leikmannasamtökin um ástandið hjá félaginu.

Segir Man City ekki hafa efni á framherja miðað við þau verð sem eru í umræðunni
Pep Guardiola segir Manchester City ekki hafa efni á því að kaupa framherja til að fylla skarð Sergio Agüero sem samdi við Barcelona í sumar. Hann segir verðið á þeim leikmönnum sem félagið vill einfaldlega of hátt.

Frá Barcelona til Leeds United
Enska knattspyrnufélagið hefur fest kaup á Junior Firpo, 24 ára gömlum vinstri bakverði, frá Barcelona. Skrifar hann undir fjögurra ára samning.

Fyrirliði Barcelona til Manchester City
Vicky Losada, fyrirliði kvennaliðs Barcelona í fótbolta, hefur skrifað undir hjá Manchester City sem rétt missti af enska meistaratitlinum í vor. Hún snýr nú aftur til Englands eftir að hafa leikið áður með Arsenal.

Ætla að opna hliðin upp á gátt
Bresk stjórnvöld tilkynntu í dag tilætlanir sínar um að opna fyrir ótakmarkaða aðgöngu áhorfenda á íþróttaviðburði frá og með 19. júlí. Búast má því við fullum völlum í ensku úrvalsdeildinni þegar nýtt tímabil hefst í ágúst.

Sagður á leið til Tyrklands
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er sagður á leið frá enska liðinu Arsenal til tyrkneska félagsins Altay Spor. Óvíst sé hvort um lánssamning eða kaup á Rúnari sé að ræða.