

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Jonny Evans orðinn leikmaður Manchester United á nýjan leik
Þau óvæntu tíðindi bárust í dag að Jonny Evans hefði skrifað undir samning við Manchester United. Evans hafði verið félagslaus eftir að hafa yfirgefið Leicester City í lok síðasta tímabils.

Giggs sýknaður
Ryan Giggs, fyrrverandi leikmaður enska knattspyrnuliðsins Manchester United, hefur verið sýknaður af ákærum um heimilisofbeldi.

Arteta segir að Declan Rice sé viti fyrir Arsenal liðið
Declan Rice er dýrasti leikmaðurinn í sögu Arsenal eftir að félagið borgaði West Ham 105 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn. Félagsskiptin gengu loksins í gegn um helgina og nú getur stuðningsmönnum Arsenal farið að hlakka til að sjá kappann spila með liðinu.

Rashford framlengir í Manchester þrátt fyrir erlend gylliboð
Marcus Rashford, leikmaður enska knattspyrnuliðsins Manchester United, hefur framlengt samning sinn við félagið þrátt fyrir að gylliboð frá öðrum félögum.

Verða að fresta fyrsta heimaleiknum sínum í 31 ár
Luton Town er komið upp í ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn síðan hún varð að úrvalsdeild árið 1992. Liðið heldur áfram að spila heimaleiki sína á Kenilworth Road en það kallar á breytingar.

Arteta hefur keypt leikmenn til Arsenal fyrir 103 milljarða
Mikel Arteta settist í stjórastólinn hjá Arsenal í desember 2019 og nú fjórum árum seinna er hann búinn að gerbreyta gengi liðsins. Hann hefur líka fengið pening til að vinna með.

Grétar Rafn ráðinn til Leeds
Grétar Rafn Steinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, hefur verið ráðinn til enska B-deildarliðsins Leeds United.

Arsene Wenger trúir því að Arsenal vinni titilinn eftir komu Rice
Arsene Wenger er síðasti knattspyrnustjórinn til að gera Arsenal að Englandsmeisturum fyrir að verða tuttugu árum en Frakkinn hefur trú að það breytist á komandi tímabili í ensku úrvalsdeildinni.

Lukaku í óvissu út af Harry Kane
Framtíð knattspyrnumannsins Romelu Lukaku er enn óljós en það verður ólíklegra með hverjum deginum að hann spili áfram með Internazionale á Ítalíu.

Tími Onana hjá Manchester United er núna
Manchester United hefur loksins náð samkomulagi við ítalska félagið Internazonale um kaup á kamerúnska markverðinum Andre Onana.

Fyrirliðabandið tekið af Maguire
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur ákveðið að taka fyrirliðabandið af Harry Maguire. Enski varnarmaðurinn hefur gegnt stöðu fyrirliða í rúm þrjú ár.

Rice þakkar fyrir sig: „Metnaðurinn alltaf legið í að spila á hæsta getustigi“
Enski landsliðsmaðurinn Declan Rice varð fyrr í dag dýrasti leikmaður Arsenal frá upphafi er hann gekk í raðir félagsins frá West Ham fyrir 105 milljónir punda.

Kaupa leikmann frá Rúmeníu en fá hann ekki fyrr en í janúar
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton & Hove Albion hefur komist að samkomulagi við rúmenska félagið FCV Farul Constanta um kaup á kantmanninum Adrian Mazilu. Leikmaðurinn gengur þó ekki í raðir félagsins fyrr en næsti félagsskiptagluggi opnar.

Mike Dean hættir alfarið eftir 28 ára feril
Enski knattspyrnudómarinn Mike Dean hefur ákveðið að hætta alfarið í dómgæslu eftir 28 ára langan feril.

Liverpool gefur Fabinho leyfi fyrir því að semja við Al-Ittihad
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að brasilíski miðjumaðurinn Fabinho gangi í raðir sádiarabíska liðsins Al-Ittihad frá Liverpool.

Declan Rice formlega orðinn leikmaður Arsenal
Declan Rice er nú loks formlega orðinn leikmaður Arsenal, en hann skrifaði undir samning við liðið nú rétt í morgun. Samningurinn er til ársins 2028 með möguleika á framlengingu.

West Ham kveður Declan Rice með tilfinningaþrungnu myndbandi
West Ham staðfesti formlega í morgun að fyrirliði liðsins, Declan Rice, hefði yfirgefið liðið. Hann fékk höfðinglegar kveðjur á samfélagsmiðlum liðsins með tilfinningaþrungnu myndbandi.

Fabinho ekki með Liverpool til Þýskalands | Stórt tilboð frá Al-Ittihad á borðinu
Liverpool héldu í morgun í æfingaferð til Þýskalands með 32 manna hóp en Fabinho er ekki á meðal þeirra leikmanna. Á borði félagsins er 40 milljón punda tilboð frá Al-Ittihad en Fabinho hefur þegar samþykkt launatilboðið frá Sádunum.

Frumsýningu á Kenilworth Road í ensku úrvalsdeildinni seinkað
Fyrsta heimaleik Luton Town í sögunni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta karla hefur verið verið frestað þar sem heimavöllur liðsins verður ekki klár í tæka tíð fyrir leik liðsins gegn Burnley.

PSG blandar sér í baráttuna um Kane
Franska félagið PSG hyggst bjóða í Harry Kane, framherja Tottenham Hotspur og enska karlalandsliðsins í fótbolta, en Kane hefur undanfarna daga verið sterklega orðaður við Bayern München.

Klopp lánar miðvörð til gamla félagsins síns
Hollenski varnarmaðurinn Sepp van den Berg fær ekki tækifærið hjá Liverpool á komandi tímabili því félagið hefur lánað hann enn einu sinni.

Manchester United og Barcelona sektuð vegna brota á fjárhagsreglum UEFA
Manchester United og Barcelona fengu í morgun sekt frá evrópska knattspyrnusambandinu. Félögin brutu gegn hinum margfrægu fjárhagsreglum sambandsins á síðasta ári.

Mendy sýknaður
Knattspyrnumaðurinn Benjamin Mendy var sýknaður af ákærum gegn sér þegar breskur dómstóll komst að niðurstöðu í breska Chester Crown Court réttarsalnum í dag.

Timber orðinn leikmaður Arsenal
Arsenal hefur staðfest kaupin á Hollendingnum Jurrien Timber frá Ajax. Timber skrifar undir fimm ára samning við Skytturnar.

Arteta ekki búinn að ákveða hvar hann ætlar að nota Kai Havertz
Þegar þú eyðir meira en ellefu milljörðum í leikmann þá er eins gott að vita hvernig þú ætlar að nota hann. Knattspyrnustjóri Arsenal ætlar þó ekki að flýta sér að komast að því.

Segir Rice mjög líklega bestan í heimi í sinni stöðu
Allt lítur út fyrir það að Arsenal nái loksins að ganga frá kaupunum á Declan Rice í dag en enski landsliðsmaðurinn á sér marga aðdáendur sem telja hann hjálpi Arsenal að brúa bilið á milli sín og Manchester City.

Levy átti fund með framkvæmdastjóra Bayern vegna Kane
Daniel Levy, eigandi Tottenham Hotspurs, hitti framkvæmdastjóra Bayern Munchen í gær til að ræða möguleg félagaskipti Harry Kane til þýska liðsins. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Levy hittir forráðamenn Bayern á fundi.

Chelsea íhugar tilboð í Neymar
Það hefur verið nóg að gera á skrifstofunni hjá Chelsea í sumar. Fjölmargir leikmenn hafa yfirgefið liðið og þeir Christopher Nkunku og Nicolas Jackson bæst í leikmannahópinn. Nú gæti risastjarna verið á leið til Lundúnafélagsins.

Reynsluboltinn Young genginn í raðir Everton
Hinn 38 ára gamli Ashley Young er genginn í raðir Everton á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Aston Villa rann út fyrr í sumar.

Pulisic sá tíundi sem fer frá Chelsea
Bandaríski knattspyrnumaðurinn Christian Pulisic er genginn í raðir AC Milan frá Chelsea. Hann er tíundi leikmaðurinn sem yfirgefur félagið í sumar.