

Evrópumótið í fótbolta karla fer fram í Þýskalandi dagana 14. júní til 14. júlí 2024.
Danmörk og Serbía gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í lokaumferð C-riðils Evrópumótsins í knattspyrnu í kvöld.
England tryggði sér sigur í C-riðli Evrópumótsins í fótbolta er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Slóveníu í kvöld. Leikir Englands til þessa hafa ekki verið neinar flugeldasýningar og ekki varð nein breyting á því í kvöld.
Frakkland og Pólland gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í lokaumferð D-riðils á EM í fótbolta í dag. Bæði mörk leiksins voru skoruð af vítapunktinum.
Auturríki vann óvæntan 3-2 sigur er liðið mætti Hollandi í lokaumferð D-riðils á EM í fótbolta í dag. Með sigrinum rændu Austurríkismenn toppsæti riðilsins af Hollendingum og Frökkum.
Óhætt er að segja að Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hafi fengið góðar mótttökur hjá stuðningsmönnum danska landsliðsins í Munchen í Þýskalandi í dag þar sem að Danmörk mun mæta Serbíu á EM í fótbolta.
Þrátt fyrir að Ítalir hafi bjargað stigi gegn Króötum og þar með tryggt sér sæti í sextán liða úrslitum Evrópumótsins skammaði Luciano Spalletti, þjálfari ítalska liðsins, sína menn eftir leikinn í gær.
Lögreglumaður sem var í öryggissveit Viktors Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, lést í bílslysi í þýsku borginni Stuttgart í gær. Þar var Orban staddur ásamt föruneyti sínu til að fylgjast með leik Ungverja á EM í knattspyrnu.
Spænska goðsögnin Cesc Fabregas, sem starfar um þessar mundir sem sparkspekingur hjá BBC, fullyrðir að Jude Bellingham búi yfir sömu gæðum og Cristiano Ronaldo og Lionel Messi þegar þeir voru á hans aldri.
Nokkuð spaugilegt atvik átti sér stað fyrir leik Tyrklands og Portúgal á EM á laugardaginn en þegar tyrkneska liðið mætti á leikvanginn meinaði öryggisvörður Vincenzo Montella, þjálfara Tyrklands, um aðgang að vellinum.
Keppni lauk í B-riðli á EM karla í fótbolta í kvöld og eins og svo oft áður á þessu móti var boðið upp á mikla dramatík og mark í uppbótartíma.
Albanía þurfti stig, í fleirtölu, til að eiga möguleika á að komast í 16-liða úrslit EM karla í fótbolta en Spánverjar gátu tekið lífinu með ró á toppi B-riðils þegar liðin mættust í kvöld.
Ekkert lát er á dramatíkinni á EM karla í fótbolta en Ítalir eru komnir áfram í 16-liða úrslit eftir jöfnunarmark á 99. mínútu.
Luke Shaw, leikmaður enska landsliðsins og Manchester United, er byrjaður að æfa á ný eftir löng meiðsli. Hann gæti því verið til taks þegar England mætir Slóveníu í lokaleik riðlakeppni EM karla í fótbolta eða þá í útsláttarkeppninni.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur svarað gagnrýni varðandi hversu langan tíma það tók að koma börum og aðstoð til Barnabás Varga eftir að hann meiddist illa í leik Ungverjalands og Skotlands á EM karla í knattspyrnu í gær, sunnudag.
Eftir að hafa byrjað fyrstu tvo leiki Englands á EM verður Trent Alexander-Arnold líklega á bekknum þegar Englendingar mæta Slóvenum á morgun.
Patrice Evra, fyrrverandi leikmaður Manchester United og franska landsliðsins, brá á leik þegar hann greindi leik Frakklands og Hollands á EM í frönsku sjónvarpi.
Dominik Szoboszlai, fyrirliða ungverska fótboltalandsliðsins, fannst sjúkraliðið vera full rólegt í tíðinni þegar samherji hans, Barnabás Varga, meiddist illa í leiknum gegn Skotlandi á EM í gær.
Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skotlands í fótbolta, var brjálaður yfir því að Skotar hafi ekki fengið vítaspyrnu í leiknum gegn Ungverjum á EM í Þýskalandi í gær.
Gagnrýni á frammistöðu enska landsliðsins kemur úr ýmsum áttum þessa dagana en gamlar kempur úr liðinu láta ekki sitt eftir liggja í þeim efnum. Harry Kane, fyrirliði liðsins, hefur fengið sig fullsaddan af óvarlegu orðfæri manna eins og Gary Lineker og sendi pílu til baka.
Svo virðist sem að Cristiano Ronaldo hafi skipt um skó í hálfleik þegar Portúgal mætti Tyrklandi á EM í gær. En hann virðist ekki aðeins hafa skipt um skó heldur fengið nýtt par lánað hjá Bruno Fernandes liðsfélaga sínum.
Óhugnalegt atvik átti sér stað í leik Ungverjalands og Skotlands fyrr í kvöld þegar Barnabas Varga lenti í harkalegu samstuði við Angus Gunn, markvörð Skotlands.
Skotland er úr leik á EM eftir dramatískt tap gegn Ungverjum í kvöld en sigurmarkið kom þegar 99 mínútur voru komnar á leikklukkuna.
Þýskaland gat með sigri gegn Sviss í kvöld klárað A-riðilinn með fullt hús stig en liðið var þegar öruggt áfram fyrir leikinn í kvöld.
Albanski landsliðsmaðurinn Mirlind Daku þarf að taka út tveggja bann á Evrópumótinu eftir að UEFA dæmdi hann í leikbann.
Tékkar eru enn að bíða eftir fyrsta sigri sínum á Evrópumótinu í fótbolta í Þýskalandi og útlitið er ekki allt of bjart fyrir lokaumferðina eftir 1-1 jafntefli á móti Georgíumönnum í gær.
Það er ekki hægt annað en að vorkenna belgíska framherjanum Romelu Lukaku sem er enn að bíða eftir fyrsta löglega marki sínu á Evrópumótinu í Þýskalandi.
Er eitthvað meira pirrandi en truflanir verða þegar þú ert að horfa á mikilvægan fótboltaleik? Pólskir sjónvarpsáhorfendur eru örugglega orðnir mjög pirraðir á slíku.
Franski framherjinn Kylian Mbappé tók ekki þátt í leik Frakklands og Hollands í Evrópukeppninni á föstudaginn en hann fór aftur á móti á kostum í æfingarleik daginn eftir.
Þrátt fyrir að alþjóðlegir leikmenn beri oft nöfn sem hljóma undarlega í íslensk eyru, Engin í markinu sennilega þar frægastur, er auðvitað ekki leikmaður á EM í ár sem heitir Sjálfsmark.
Þrír leikir fóru fram á EM karla í knattspyrnu í dag. Belgar náðu í sinn fyrsta sigur í E-riðli og þá gerðu Georgía og Tékkland jafntefli í F-riðli.