
Leggst gegn áformum um þyrluflug á Hólmsheiði
Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur varar við hugmyndum um að þyrluflug verði flutt frá Reykjavíkurflugvelli á Hólmsheiði. Þær leysi engan vanda heldur flytji hann einungis til innan svæðisins.
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það ellefta varð norðan Grindavíkur í apríl 2025.
Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur varar við hugmyndum um að þyrluflug verði flutt frá Reykjavíkurflugvelli á Hólmsheiði. Þær leysi engan vanda heldur flytji hann einungis til innan svæðisins.
Það lítur allt út fyrir að eldgosið sem hófst 10. júlí síðastliðinn við Litla Hrút sé að líða undir lok.
Gönguleiðir að eldgosinu við fjallið Litla-Hrút verða opnar almenningi til klukkan 18 í dag og er opið inn á svæðið frá Suðurstrandavegi. Lokun gönguleiða gekk vel í gær og var nóttin tíðindalaus, að sögn lögreglu. Líkt og fyrri daga þurftu nokkrir ferðamenn á aðstoð viðbragðsaðila að halda.
Litlu mátti muna að illa færi þegar erlendur ferðamaður flaug á svifvæng við gosstöðvarnar við Litla-Hrút í gær. Lögreglustjórinn segir atvikið líklegasta það furðulegasta sem hefur gerst við gosstöðvarnar hingað til.
Tvær þyrlur lentu á fjallinu Litla-Hrúti í gærkvöldi og mátti litlu muna að illa færi þegar erlendur ferðamaður lét sig „húrra fram af fjallinu“ með svifvæng, að sögn lögreglu. Litli-Hrútur er á skilgreindu hættusvæði og almenningi því óheimilt að fara á fjallið. Gönguleiðir að eldgosinu verða opnar til klukkan 18 í dag og er opið inn á svæðið frá Suðurstrandavegi.
Nýjar mælingar á hraunflæði frá eldgosinu við Litla-Hrút staðfesta að hraunrennslið fer stöðugt minnkandi. Niðurstöðurnar geta bent til þess að goslok séu í nánd. Eldgosið er orðið nokkru stærra en það sem varð í Meradölum í ágúst í fyrra.
Vísindamenn við Háskóla Íslands bíða þess nú að hraun renni yfir tilraunasvæði nærri Litla-Hrút en þar á að kanna hvaða áhrif hraunið hefur á mikilvægi innviði sem liggja ofan í jörðu og eru ofan hennar. Aldrei hafa slíkar rannsóknir verið gerðir áður.
Jarðskjálftahrina hófst um helgina við Torfajökul. Eldfjallafræðingur segir gos þar aldrei verða þægilegt eins og gosin á Reykjanesi síðustu þrjú ár. En eins og stendur eru þó sterkari vísbendingar við Öskju en Torfajökul um eldgos.
Verið er að skoða að koma upp aðstöðu fyrir þyrluflug á Hólmsheiði. Borgarstjóri segir það sárgrætilegt að tíu ára gamalt samkomulag ríkisins og ISAVIA um nýjan flugvöll hafi aldrei verið efnt. Með þeim velli hefði verið hægt að koma í veg fyrir hávaðamengun vegna þyrluflugs.
„Gosið er klárlega minna núna en það var bara fyrir viku, maður sér það bara að þetta hefur farið minnkandi og hægst hefur mjög mikið á útbreiðslu þess. Það er búið að vera minnkandi og það er svo sem ekkert ólíklegt að það haldi þannig áfram en engu hægt að slá föstu um það.“
Gönguleiðir að eldgosinu við fjallið Litla-Hrút verða opnar almenningi til klukkan 18 í dag líkt og fyrri daga. Opið er inn á gossvæðið frá Suðurstrandavegi. Lokun gekk vel í gær, að sögn lögreglustjórans á Suðurnesjum. Fáir hafi þurft á hjálp að halda en líkt og alla daga þurfi að koma einhverju fólki til aðstoðar á svæðinu.
Víða um land er lágskýjað og þoka og er lítill vindur á landinu. Flestar mælistöðvar Veðurstofu Íslands sýna minna en fjóra metra á sekúndu. Líklega mun þó birta til í dag og er von á skúrum og þá sérstaklega síðdegis.
Eldgosið í Litla-Hrút á Reykjanesskaga kann að vera senn á enda en um er að gera að njóta þess á meðan það er. Gosið er enn þá gríðarlega mikið sjónarspil eins og sjá má af þessum drónamyndum sem Björn Steinbekk tók.
Breska YouTube-stjarnan Max Fosh kom til landsins á dögunum í þeim tilgangi að sjá eldgosið við Litla-Hrút. Á meðan flestir hefðu látið sjónarspilið við hraunið nægja sér gerði Fosh sér lítið fyrir og eldaði sér örbylgjurétt á hrauninu.
Opið verður fyrir almenning inn á gossvæðið við Litla-Hrút frá Suðurstrandavegi til klukkan 18 í dag. Lokun gekk vel í gær og þurftu fáir á aðstoð að halda.
Jarðeðlisfræðingur segir að fólk ætti ekki að geyma það að sjá eldgosið við Litla Hrút fram í september, þar sem senn kunni að líða að goslokum. Hann segir um eðlilega lengd á eldgosi sé að ræða, og því gæti lokið eftir eina til tvær vikur.
Dregið hefur úr afli gossins um 30 til 50 prósent síðustu vikuna. Goslok eru möguleg eftir eina til tvær vikur ef framleiðni gossins heldur áfram að falla með sama hraða.
Erlendir ferðamenn sem fréttastofa hitti nærri gosstöðvunum í gær voru í skýjunum með upplifun sína. Sumir áttu von á erfiðari göngu en tuttugu kílómetra hringferðinni inn að Litla-Hrúti og til baka.
Tveir hópar erlendra ferðamanna voru til vandræða við eitt bílastæðið á gosstöðvum við Litla-Hrút í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum, þar sem tekið er fram að svæðið sé opið í dag en loki klukkan 18:00.
Enn standa slökkviliðsmenn í stríði við gróðurelda sem kviknað hafa í kringum gosstöðvarnar við litla Hrút. Slökkviliðsstjóri segist hræddur um að ástandið verði eins þar til það tekur að rigna, mikilvægt sé að eldunum sé haldið niðri á meðan þurrt er.
Gígbarmurinn við Litla hrút á Reykjanesskaga er í góðu jafnvægi sem stendur, að sögn eldfjallafræðings. Lítið þurfi þó að breytast til að kvika fari að flæða til norðurs. Varað er við því að vera norðaustan við gíginn.
Maður slasaðist á fæti á gönguleið að gosstöðvunum á Reykjanesskaga í gær. Þá þurfti einnig að aðstoða ferðamann sem var lúinn. Gönguleiðir inn á svæðið eru opnar í dag en þeim verður lokað klukkan 18 í gær líkt og síðustu daga.
Þrjátíu slökkviliðsmenn hafa barist í dag á gosstöðvunum, með meiri tækjabúnaði en áður, við að koma í veg fyrir að gróðureldar breiðist út á Reykjanesskaga. Á sama tíma undirbúa Almannavarnir aðgerðir til bjargar innviðum. Þá hyggst lögregla vísa fólki burt af útsýnisstaðnum á Litla-Hrúti vegna þess að Veðurstofan skilgreinir hann sem hættusvæði.
Nýsjálenskur eldfjallafræðingur við Háskólann á Hawaii, sem kom sérstaklega til að fylgjast með Reykjaneseldum, segir Ísland besta stað í heimi um þessar mundir til að rannsaka eldgos. Hér gefist stórkostlegt tækifæri til að skýrari mynd af hraungosum.
Opið er inn á gossvæðið frá Suðurstrandarvegi í dag en Meradalaleið verður þó lokuð til klukkan 13. Ástæðan er sú að það þarf að nota gönguleiðina fyrir flutning tækja slökkviliðs vegna gróðurelda sem loga ennþá á svæðinu. Þá verður gönguleiðum inn á svæðið lokað klukkan 18 í dag eins og síðustu daga.
Íbúi í Skerjafirði segir að gríðarleg umferð þyrlna, sem nýttar eru til að flytja ferðamenn að eldgosinu við Litla-Hrút, sé hreinlega skerðing á lífsgæðum.
Eldgosið á Reykjanesi heldur enn sama krafti og undanfarna daga. Æ fleiri ferðamenn velja að sjá gosið af fjallinu Litla-Hrúti, þótt það þýði lengri göngu. Almannavarnir hefja tilraunir á gossvæðinu á morgun á aðferðum til að verja mikilvæga innviði eins og háspennulínur og jarðstrengi.
Síðan eldgosahrina hófst á Reykjanesskaga fyrir tveimur árum hefur Björn Steinbekk verið fastagestur á svæðinu með dróna á lofti. Segja má að gosið sem hófst í júlí hafi ekki getað komið á betri tíma fyrir Björn.
Líkt og síðustu daga mun gönguleiðum inn á gossvæðið á Reykjanesskaga vera lokað klukkan 18 í kvöld. Fyrir það verður opið inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi. Samkvæmt lögreglunni á Suðurnesjum gekk lokun vel í gær og voru engin óhöpp skráð.
Slökkviliðsstjórinn í Grindavík segir að mögulega þurfi að grípa til róttækari aðgerða svo hindra megi frekari gróðurelda í kringum eldstöðina við Litla Hrút. Veðurguðirnir séu ekki með slökkviliðinu í liði, hvernig sem viðri.