Grindavíkurvegi hefur nú verið lokað vegna stórrar sprungu í veginum. Það staðfestir Vegagerðin í samtali við fréttastofu.
Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum tók Lögreglan á Suðurnesjum ákvörðun um að loka veginum við Reykjanesbraut og við bæjarmörk Grindavíkur vegna skemmda í veginum.

Ekki þykir öruggt að aka veginn en sprungunni er lýst sem „hálfgerðum stökkpalli enda hefur malbikið farið í sundur og lagst svo saman. Á vef Vegagerðarinnar umferdin.is kemur fram að hjáleiðir séu um Suðurstrandaveg (427) og Nesveg (425).