
Vaktin: Eldgos hafið á Reykjanesskaga
Gos hófst um fjóra kílómetra norðaustan Grindavíkur, norðan Sundhnúks í Sundhnúkaröðinni, klukkan 22:17 í kvöld.
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það ellefta varð norðan Grindavíkur í apríl 2025.
Gos hófst um fjóra kílómetra norðaustan Grindavíkur, norðan Sundhnúks í Sundhnúkaröðinni, klukkan 22:17 í kvöld.
Nokkuð þétt smáskjálftahrina hófst norðaustur af Grindavík upp úr 21:00 í kvöld. Nokkrar vikur eru síðan sambærileg hrina mældist. Náttúruvásérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir of snemmt að segja til um hvort hrinan líkist þeirri sem reið yfir þann 10. nóvember þegar Grindavíkurbær var rýmdur.
Bæjarstjóri Grindavíkur trúir því að flestir íbúar bæjarins muni snúa aftur til síns heima þegar það er talið óhætt. Ýmislegt vanti þó upp á þjónustu til að það sé mögulegt. Fjölmargar fjölskyldur eru í óhentugu húsnæði og margir í mjög erfiðri stöðu fjárhagslega.
Bláa lónið hefur verið opnað á ný eftir að hafa verið lokað í rúmar fimm vikur. Hótel fyrirtækisins eru þó enn lokuð.
Þrátt fyrir að undanfarið hafi dregið úr landrisi á Reykjanesi er það ekki hætt að sögn jarðeðlisfræðings. Tveir möguleikar séu líklegastir í stöðunni, hægt hafi á innflæði í kvikuganginn eða jarðskorpan sé farin að halda meira við.
Rýming var æfð í Bláa lóninu í dag en það verður opnað á ný á sunnudaginn eftir að hafa verið lokað í rúmar fimm vikur. Til að byrja með er búist við að gestir verði heldur færri en þeir eru jafnaði.
Landris við Svartsengi virðist hafaverulega dregið úr sér og segir Eldfjalla- og náttúrúvárhópur Suðurlands í færslu sinni á Facebook að það hafi svo gott sem stöðvast.
Að undanförnu höfum við staðið fyrir ákalli til lífeyrissjóða um að hjálpa Grindvíkingum í neyð. Eins og allir vita stendur heilt bæjarfélag nú frammi fyrir því að þurfa að fara inn á sturlaðan leigumarkað til að búa sér til heimili til skamms tíma. Bankarnir brugðust við ákalli okkar Grindvíkinga um að fella niður vexti og verðbætur næstu þrjá mánuði, til að byrja með. Lífeyrissjóðirnir hafa hins vegar ekki svarað þessu kalli.
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur gagnrýnir Almannavarnir og Veðurstofuna harðlega fyrir að halda Grindavík áfram lokaðri. Að sínu áliti sé lokunin og framlenging hennar ekki réttlætanleg frá sjónarhóli jarðfræðings sem rannsakað hafi eldfjöll í sextíu ár.
Bláa lónið mun opna starfsemi sína á ný næstkomandi sunnudag, klukkan ellefu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lónsins, en þar segir að ákvörðun um opnunina hafi verið tekin í samráði við stjórnvöld.
Starfsmenn Grindavíkurhafnar og Vísis vöktuðu Grindavíkurhöfn í nótt vegna hættu á flóðum af völdum lægðarinnar sem gekk yfir landið. Leyfi fékkst frá almannavörnum til þess að mæta fyrr í bæinn í nótt.
Nú er rúmur mánuður liðinn frá því að tæplega fjögur þúsund manns þurftu að flýja heimili sín úr litla bænum á suðvesturhorninu. Margt undarlegt og óvænt hefur á daga okkar drifið síðasta mánuðinn og eftirleikur þess að þurfa að yfirgefa öryggi sitt í snarhasti hefur reynst mörgum mikil og sár þrautaganga.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að rýmka þann tíma sem Grindvíkingar hafa til þess að huga að eigum sínum i Grindavíkurbæ. Rýming fer nú fram eftir kl. 21 á kvöldin.
Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir ekki hægt að búast við því af viðbragðsaðilum að þeir væru til staðar í bænum að næturlagi yfir hátíðirnar. Því sé ekki gert ráð fyrir því að Grindvíkingar geti dvalið yfir nótt heima hjá sér fyrr en á nýju ári.
Atburðarásin í Grindavík í byrjun nóvember hefur gjörbreytt forsendum Veðurstofu Íslands í tengslum við vöktun á Reykjanesskaga samkvæmt tilkynningu frá veðurstofunni. Þörf sé á umfangsmeiri vöktun þegar kemur að eldgosavá. Fram kom á íbúafundi í dag að Grindvíkingar geta ekki flutt aftur heim fyrir áramót.
Boðað hefur verið til íbúafundar fyrir Grindvíkinga í Laugardalshöll klukkan 17. Fundurinn er í beinu streymi á Vísi.
Land heldur áfram að rísa við Svartsengi á Reykjanesskaga en hægt hefur á því frá því á föstudag. Enn eru taldar líkur á eldgosi á svæðinu.
Íbúafundur verður haldinn fyrir Grindvíkinga á morgun klukkan 17 í anddyrinu á nýju Laugardalshöllinni. Tilgangur fundarins er að miðla upplýsingum vegna jarðhræringa í og við Grindavík og mun íbúum gefast tækifæri til að bera fram spurningar á fundinum.
Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur unnið að tillögum um helgina sem nú hafa verið sendar til fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna jarðhræringanna í Grindavík. Tjón í bænum sé nú metið á bilinu sex til átta milljarðar.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur lýst eftir bangsanum Bangsa. Í tilkynningu frá embættinu á Facebook segir að vinur lögreglunnar, Adam, hafi haft samband til að tilkynna hvarf hans.
Fjórar vikur eru síðan Grindavíkurbær var rýmdur. Einhverjir bæjarbúar vilja komast heim en bæjarstjórinn segir það enn ekki vera orðið fullkomlega öruggt.
Meintir baðgestir sem ljósmyndari fréttastofu náði mynd af í gær í Bláa lóninu voru starfsmenn lónsins. Þetta segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastóra sölu, rekstrar og þjónustu Bláa lónsins.
Ljósmyndari Vísis náði myndbandi af stærðarinnar holu sem hefur myndast á æfingavelli knattspyrnuliðs Grindavíkur eftir jarðhræringarnar í bænum. Holan er ein af mörgum sem hafa myndast út frá sprungunni undir bænum að sögn jarðvegsverkfræðings.
Fólk naut þess að baða sig í Bláa lóninu í dag. Lónið hefur verið lokað almenningi síðan 9. nóvember vegna hættu á eldgosi í Svartsengi og nágrenni.
Bæjarstjóri Grindavíkur hefur boðað til íbúafundar fyrir Grindvíkinga í Laugardalshöll þriðjudaginn 12. desember næstkomandi.
Leigutorg fyrir Grindvíkinga var opnað síðdegis og 150 íbúðir hafa verið skráðar þar til leigu. Fjármálaráðherra segir brýnt að kortleggja húsnæðisþörf Grindvíkinga og tryggja þeim skjól.
Nýtt hættumat fyrir Svartsengi og Grindavík var birt síðdegis og er enn ekki talið óhætt að hleypa íbúum aftur til að dvelja á heimilum sínum. Þá verður ekki hægt að opna Bláa lónið að svo stöddu en staðan verður endurmetin eftir helgina.
Umbrotahrinunni sem hófst með landrisi við Svartsengi í október er ekki lokið samkvæmt nýrri færslu Veðurstofunnar. Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi sem gæti endað með eldgosi.
Börn frá Grindavík brostu úr að eyrum á aðventugleði sem fram fór í dag þegar íbúar komu margir saman í fyrsta sinn frá því að bærinn var rýmdur.
Skólaskylda mun aftur taka gildi fyrir börn frá Grindavík þann 4. janúar. Það er eftir að undanþága var veitt vegna rýmingar bæjarins.