Gert að greiða tuttugu og sex milljónir króna í tryggingu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mun þurfa að greiða tvö hundruð þúsund dali í tryggingu til að komast hjá því að sitja í fangelsi vegna ákæra gegn honum í Fulton-sýslu í Georgíu. Hann var ákærður í Georgíu í síðustu viku vegna tilrauna hans til að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020 í ríkinu en það var í fjórða sinn á þessu ári sem Trump var ákærður. Erlent 21. ágúst 2023 20:38
Tekur ekki þátt í kappræðum: „Almenningur veit hver ég er“ Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og frambjóðandi í forvali Repúblikana, hefur ákveðið að mæta mótframbjóðendum sínum ekki í kappræðum. „Almenningur veit hver ég er og hversu árangursríka forsetatíð ég átti. Þar af leiðandi mun ég ekki taka þátt í kappræðunum!“ sagði Trump á samfélagsmiðlinum Truth í gær. Erlent 21. ágúst 2023 07:31
Vilja að réttað verði yfir Trump árið 2026 Lögmenn Donalds Trump krefjast þess að réttarhöld yfir honum vegna ákæru um að hann hafi reynt að snúa við úrslitum forsetakosninganna árið 2020 hefjist ekki fyrr en eftir hátt í þrjú ár. Sérstaki rannsakandi dómsmálaráðuneytisins vill að réttarhöldin hefjist beint eftir áramót. Erlent 18. ágúst 2023 09:42
Dæmd til 22 ára fyrir að reyna að myrða Trump Kanadísk kona hefur verið dæmd til 22 ára langrar fangelsisvistar fyrir að hafa sent Donald Trump bréf sem innihélt hið baneitraða rísín. Fyrir dómi sagðist hún ekki sjá eftir neinu nema að hafa ekki tekist að drepa forsetann þáverandi. Erlent 17. ágúst 2023 21:18
Falskir kjörmenn og lygar kjarninn í málinu gegn Trump Listi yfir falska kjörmenn sem Donald Trump og bandamenn hans fengu repúblikana í Georgíu til þess að senda Bandaríkjaþingi og lygar um kosningaúrslitin eru kjarninn í víðfeðmri ákæru á hendur fyrrverandi forsetanum og átján samverkamönnum hans í ríkinu. Nokkrir þeirra eru ákærðir fyrir tilraun til að stela kjörgögnum og eiga við kosningavélar. Erlent 15. ágúst 2023 13:59
Trump og átján aðrir ákærðir fyrir samsæri Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur verið ákærður fyrir að reyna að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í Georgíuríki árið 2020. Þetta er í fjórða sinn sem Trump er ákærður á þessu ári. Erlent 15. ágúst 2023 07:23
Dómari varar Trump við því að espa fólk upp Dómari í máli bandaríska alríkisins gegn Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta hefur varað Trump við því að reyna að espa fólk upp. Slíkar yfirlýsingar hans gætu spillt fyrir vali á kviðdómi í málinu. Erlent 12. ágúst 2023 10:23
Twitter sektað fyrir að afhenda ekki gögn um Trump tímanlega Dómari sektaði Twitter um tugi milljóna íslenskra króna fyrir að afhenda ekki gögn um Donald Trump á réttum tíma. Sérstakur rannsakandi sem ákærði Trump fyrir að reyna að snúa við úrslitum forsetakosninganna 2020 fékk leitarheimild til þess að fá gögn um Twitter-notkun Trump. Erlent 10. ágúst 2023 11:40
Meiðyrðamáli Trump gegn E. Jean Carroll vísað frá Meiðyrðamáli Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, gegn pistlahöfundinum E. Jean Carroll var vísað frá af alríkisdómara í New York í gær. Trump höfðaði mál gegn Carrol vegna ummæla hennar um að hann hefði nauðgað henni. Erlent 8. ágúst 2023 07:26
Ætlar áfram að einblína á kosningarnar 2020 Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, ætlar að nýta nýjustu ákæruna gegn sér til að halda því áfram fram að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. Hann er ákærður fyrir að reyna að snúa úrslitum kosninganna en ráðgjafar hans hafa hvatt hann til að leggja síðustu kosningar á hilluna. Erlent 4. ágúst 2023 16:01
Trump lýsir yfir sakleysi sínu Donald Trump hefur lýst yfir sakleysi sínu vegna ákæru á hendur honum vegna meintra tilrauna hans til þess að hnekkja úrslitum í bandarísku forsetakosningunum 2020. Fyrirtaka í máli hans fór fram í Washington D.C í kvöld. Erlent 3. ágúst 2023 21:04
Sérfræðingar efast um tjáningarfrelsisvörn Trumps Verjendur Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, segja nýjustu ákæruna gegn honum fara gegn rétti hans til tjáningarfrelsis. Saksóknarar segja hins vegar að ákæran snúist ekki eingöngu um hvað Trump sagði um forsetakosningarnar 2020 heldur um hvað hann gerði. Erlent 3. ágúst 2023 08:22
Farið yfir ákæruna gegn Trump: „Sakborningurinn tapaði kosningunum 2020“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var í gær ákærður fyrir viðleitni hans og tilraunir til að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Trump tapaði fyrir Joe Biden en hefur ítrekað haldið því ranglega fram að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur. Erlent 2. ágúst 2023 09:27
Trump ákærður fyrir að reyna að hnekkja úrslitum Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur verið ákærður í fjórum liðum vegna tilrauna sinna til þess að hnekkja úrslitum í bandarísku forsetakosningunum árið 2020. Erlent 1. ágúst 2023 22:47
Bað eigin sjóð um sextíu milljóna endurgreiðslu Kosningasjóður Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur farið fram á að sextíu milljónir dala sem veittar voru til pólitískrar aðgerðanefndar (PAC) Trumps sem kallast Save Amcerica, verði endurgreiddar. Krafan þykir benda til þess að Trump eigi í fjárhagskröggum. Erlent 31. júlí 2023 08:38
Málsókn Trump gegn CNN vísað frá Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur vísað frá 475 milljóna dala málsókn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem hann höfðaði gegn fréttamiðlinum CNN fyrir að líkja sér við Adolf Hitler. Erlent 30. júlí 2023 08:24
Færast nær því að ákæra Biden fyrir embættisbrot Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa færst nær því að hefja rannsókn á því hvort tilefni finnist til að ákæra Joe Biden, forseta, fyrir embættisbrot. Donald Trump, fyrrverandi forseti sem var tvisvar ákærður fyrir embættisbrot, vill ólmur að Biden verði einnig ákærður. Erlent 28. júlí 2023 08:46
Sakaður um að hafa skipað starfsmanni að eyða myndbandsupptökum Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur verið sakaður um að hafa skipað starfsmanni sínum að eyða upptökum úr öryggismyndavélum á heimili hans í Flórída. Það er sagt hafa verið gert til þess að hindra rannsókn á meintum brotum hans í tengslum við leyniskjöl sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu. Erlent 27. júlí 2023 22:49
Fangelsi fyrir barsmíðar með fánastöng Vörubílstjóri sem barði lögregluþjón með fánastöng í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021 hefur verið dæmdur til rúmlega fjögurra ára vistar í alríkisfangelsi. Maðurinn játaði að hafa ráðist á lögregluþjón með hættulegu vopni. Erlent 25. júlí 2023 10:33
Ákæra sextán Repúblikana í Michigan Ríkissaksóknari Michigan í Bandaríkjunum ákærði í gær sextán Repúblikana sem reyndu að gera sjálfa sig að kjörmönnum í forsetakosningunum 2020. Þannig vildu þeir snúa tapi Donalds Trump í Michigan í sigur. Erlent 19. júlí 2023 14:25
Trump með stöðu sakbornings, aftur Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir Jack Smith, sérstakan rannsakenda Dómsmálaráðuneytisins, hafa tilkynnt sér að hann hafi stöðu sakbornings í enn einu málinu. Þetta mál snýr að viðleitni Trumps til að snúa niðurstöðum forsetakosninganna 2020, sem hann tapaði gegn Joe Biden, núverandi forseta, og gefur tilkynningin til kynna að Trump verði ákærður. Erlent 18. júlí 2023 15:09
Vill fresta réttarhöldum fram yfir kosningar Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa farið fram á að réttarhöldum yfir honum vegna leynilegra skjala sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu verði frestað þar til eftir forsetakosningarnar í nóvember á næsta ári. Þeir segja óréttlátt að rétta yfir Trump á þessu ári, þar sem Trump verði upptekinn við kosningabaráttu og vegna annarra sakamála sem að honum beinast. Erlent 11. júlí 2023 09:14
Saksóknarar í leyniskjalamáli Trump fá hótanir Hægriöfgasinnaðir stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hafa hótað saksóknurum sem sækja hann til saka fyrir meðferð sína á leyniskjölum. Þeir hafa meðal annars birt nöfn þeirra og persónuupplýsingar á netinu. Erlent 7. júlí 2023 10:43
Handtekinn við heimili Obama daginn sem Trump birti heimilisfang Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn nærri heimili Baracks Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sama dag og Donald Trump birti það sem hann sagði heimilisfang Obama í síðasta mánuði. Skotvopn og hundruð skotfæra fundust í sendiferðabíl mannsins. Erlent 6. júlí 2023 14:41
Trump kærir konuna sem hann braut á kynferðislega Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur kært E Jean Carroll sem hann var dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega á. Carroll hefur sagt Trump hafa nauðgað sér. Erlent 28. júní 2023 11:42
CNN birtir upptöku af Trump ræða leynileg skjöl um árás á Íran CNN hefur komist yfir og birt upptöku þar sem Donald Trump heyrist ræða um leynileg skjöl sem hann hefur undir höndum og viðurkennir að hafa ekki aflétt leynd af. Erlent 27. júní 2023 06:52
Gagnrýnandi Trump býður sig fram gegn honum Will Hurd, fyrrverandi fulltrúadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins frá Texas, skilaði inn formlegu framboði í forvali flokksins fyrir forsetakosningar næsta árs í dag. Hurd skaut föstum skotum að Donald Trump þegar hann tilkynnti um framboðið. Erlent 22. júní 2023 15:47
Segist hafa sýnt blaðaúrklippu en ekki leyniskjal Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist ekki hafa sýnt tveimur rithöfundum leynilegt skjal, heldur hafi það verið blaðaúrklippa. Á upptöku segir Trump að skjalið sé leynilegt og er það eitt þeirra sem hann hefur verið ákærður fyrir að taka með sér úr Hvíta húsinu. Erlent 20. júní 2023 16:01
Hafnaði ráðleggingum og laug að ráðgjöfum um leyniskjölin Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafnaði ítrekaðri viðleitni lögmanna hans og ráðgjafa til að reyna að fá hann til að skila gögnum og leynilegum skjölum. Ítrekað var reynt að fá Trump til að gera samkomulag við Dómsmálaráðuneytið til að forðast ákærur, en forsetinn fyrrverandi vildi ekki heyra slíkt. Erlent 15. júní 2023 11:08
Vígreift afmælisbarn sakar Biden um spillingu og að grafa undan lýðræðinu „Það var verið að ákæra mig. Dásamlegur afmælisdagur,“ sagði Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína við gólfklúbb sinn í New Jersey í gær, eftir að hann var ákærður fyrir óvarlega meðferð leyniskjala. Erlent 14. júní 2023 07:02