

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Sex ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti
Héraðssaksóknari hefur ákært nokkra einstaklinga fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti í tengslum við ræktun á fíkniefnum í iðnaðarbili í Kópavogi. Hjón og sonur þeirra eru á meðal þess eru ákærð í málinu.

Þarf ekki að greiða fyrir graðhesta sem léku lausum hala
Landeigandi í Hörgársveit þarf ekki að greiða kostnað sem féll á Hörgársveit þegar sveitarfélagið lét handsama tvo graðhesta sem sluppu og léku lausum hala á annarri jörð í Hörgársveit.

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa sparkað í lögreglumann
Maður var dæmdur í sextíu daga fangelsi fyrir brot gegn valdastjórninni Héraðsdómi Reykjaness í gær. Manninum var gefið að sök að hafa sparkað í lögreglumann og þar að auki sparkað í fætur fangavarðar á lögreglustöðinni á Hverfisgötu.

Ríkissaksóknari skoðar hvort áfrýja eigi Rauðagerðisdóminum
Ríkissaksóknari fer nú yfir dóminn í Rauðagerðismálinu og önnur gögn, áður en tekin verður ákvörðun um hvort áfrýja eigi dóminum.

Ósammála gagnrýni dómarans um skort á hlutlægni
Lögregla er ósammála því sem héraðsdómari hélt fram í gær um að hún hefði ekki gætt hlutlægni í rannsókn sinni í Rauðagerðismálinu. Þeir þrír sem voru grunaðir um samverknað við morðið voru allir sýknaðir.

Þrjú ár fyrir nauðgun: Sagðist mjög kinkí í rúminu en fór fram með ofbeldi
Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi í Landsrétti fyrir að nauðga vinkonu sinni haustið 2018. Landsréttur þyngdi dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra sem áður hafði verið dæmdur í tveggja ára fangelsi.

Reiðhjólaslys varð til þess að SÍ endurskoðar bætur afturvirkt
Sjúkratryggingar Íslands munu fara yfir allar ákvarðanir sem teknar hafa verið síðustu fjögur árin sem tengjast bótagreiðslum úr sjúklinga- og slysatryggingum vegna miska eða læknisfræðilegrar örorku. Tilefnið er dómur Hæstaréttar frá því í sumar, þar sem tekist var á um uppgjör bóta vegna reiðhjólaslyss árið 2015.

Lögin loks farin að virka og fleiri mál komin í kæruferli
Tvö mál eru nú til rannsóknar og komin í kæruferli vegna óviðunandi brunavarna en í sumar féll dómur í sambærilegu máli. Þetta kom fram í erindi fagstjóra forvarnasviðs slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á námstefnunni Á vakt fyrir Ísland, en málin sem kærð hafa verið eru talin mjög alvarleg.

Skrýtið að Angjelin fái sömu refsingu og tíðkast við ástríðuglæp
Afbrotafræðingur telur margt sérstakt við dóminn sem féll í Rauðagerðismálinu í gær. Hann furðar sig á því að dómurinn hafi ekki verið fjölskipaður í svo víðfeðmu og alvarlegu sakamáli þar sem svo margir höfðu réttarstöðu sakbornings.

Ákærður fyrir morðið á þingmanninum
Ali Harbi Ali, 25 ára gamall breti af sómölskum uppruna, hefur nú verið ákærður fyrir morðið á breska þingmanninum Sir David Amess í síðustu viku. Saksóknarar hafa gefið það út að þeir muni sækja málið á þeim grundvelli að um hryðjuverk hafi verið að ræða.

Dómari gagnrýnir lögreglu fyrir vinnubrögð í Rauðagerðismálinu
Guðjón St. Marteinsson, dómari í Rauðagerðismálinu, gagnrýnir vinnubrögð lögreglu við gerð skýrslu sem lögð var fyrir dóminn í málinu. Segir hann að lögregla hafi ekki gætt meginreglu um hlutlægnisskyldu við gerð skýrslunnar. Það sé ámælisvert.

Bauð sátt tveimur dögum áður en 167 milljóna dómsmál átti að hefjast
Stjórn Sorpu bauð Birni Halldórssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtæksins, sátt í máli sem hann höfðaði gegn fyrirtækinu tveimur dögum áður en aðalmeðferð þess, þar sem hann krafðist 167 milljóna í bætur fyrir ólöglega uppsögn, átti að hefjast.

Anton Kristinn og sakborningar féllust í faðma
Anton Kristinn Þórarinsson, sem sætti gæsluvarðhaldi í Rauðagerðismálinu en var ekki ákærður, fagnaði með sakborningum sem sýknaðir voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Anton féllst í faðma með ákærðu í morgun.

Höfðu hendur í hári stórtæks síbrotamanns eftir árekstur og afstungu
Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að stórtækur þjófur með langan brotaferil að baki skuli sitja í gæsluvarðhaldi til 4. nóvember næstkomandi. Samtals er 31 opið mál á borði lögreglu sem tengist manninum. Lögregla handsamaði manninn á stolnum bíl eftir árekstur og afstungu.

Lögmaður Antons harðorður: „Mesta klúður sem ég hef séð“
Steinbergur Finnbogason lögmaður vill meina að rannsókn lögreglu á Rauðagerðismálinu sé eitt það mesta klúður sem hann hefur orðið vitni að. Hann boðar skaðabótamál fyrir hönd Antons Kristins Þórarinssonar, skjólastæðins síns.

„Það verða eftirmálar af þessu“
Oddgeir Einarsson, lögmaður Angjelin Sterkaj, segir fangelsisdóm í málinu gegn honum í takt við væntingar, þar sem hann hafði játað morðið á Armando Beqirai. Verjandi Murat Selivrada var afar harðorður í garð ákæruvaldsins og sagði málinu ekki lokið.

Angjelin dæmdur í sextán ára fangelsi
Angjelin Sterkaj var dæmdur í sextán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa myrt Armando Beqirai, fjölskylduföður á fertugsaldri, með því að skjóta hann fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar.

Sorpa og Björn ná sáttum
Sorpa mun greiða Birni Halldórssoni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, laun í sex mánuði til viðbótar auk lögfræðikostnaðar sem hluti af sátt eftir að Björn höfðaði mál gegn Sorpu vegna uppsagnar sinnar á síðasta ári.

Dómur í Rauðagerðismálinu kveðinn upp í dag
Uppfært klukkan 8:52:Angjelin Sterkaj hefur verið dæmdur fangelsi í 16 ár fyrir morðið á Armando Beqirai, fjölskylduföður á þrítugsaldri, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar.Ákærðu Claudia Sofia Coelho Carvalho, Murat Selivrada og Shpetim Qerimi eru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins.

Dómur kveðinn upp í Rauðagerðismálinu á morgun
Dómur verður kveðinn upp í Rauðagerðismálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 8:50 í fyrramálið. Fjórir eru ákærðir í málinu þeirra á meðal Angjelin Sterkaj sem er sakaður um að hafa ráðið Armando Beqirai bana í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar.

Eiríkur á Omega dæmdur til greiðslu 109 milljóna sektar fyrir meiriháttar skattsvik
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt sjónvarpsmanninn Eirík Sigurbjörnsson, oftast kenndur við kristilegu stöðina Omega, í tíu mánaða fangelsi og greiðslu 108,9 milljóna króna sektar fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum.

Sýknaður af því að hafa beitt blekkingum til að öðlast veiðirétt í sunnlenskri á
Karlmaður sem sakaður var um að hafa beitt blekkingum til að koma því til leiðar að félag í hans eigu væri með gildandi leigusamning um veiðirétt í ótilgreindri sunnlenskri á hefur verið sýknaður af ákæru þess efnis.

Íbúar í Fellunum lögðu verktaka í tugmilljóna deilu
Verktakafyrirtækið Múr- og málningarþjónustan Höfn ehf. hefur verið dæmt til að greiða húsfélaginu Torfufelli 23-35 í Breiðholti 34 milljónir króna í nærri áratuga langri deilu um framkvæmdir á fjölbýlishúsinu.

Skrif Páls Vilhjálmssonar til skoðunar hjá skólanum
Kristinn Þorsteinsson skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ segir að þegar hafi á annan tug erinda borist skólanum vegna skrifa Páls Vilhjálmssonar.

Umtalað ofbeldismál fékk ekki leyfi frá Hæstarétti
Hæstiréttur ákvað á dögunum að taka ekki fyrir víðfrægt ofbeldismál ungrar konu. Ríkissaksóknari óskaði eftir áfrýjunarleyfi til að fá betur úr því skorið undir hvaða lagagrein málið heyrði miðað við eðli sambands ofbeldismannsins og konunnar.

Skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn samstarfskonu í vinnuferð
Kona var í gær dæmd til tveggja mánaða fangelsisrefsingar, sem fresta skal til tveggja ára haldi hún almennt skilorð, fyrir að brjóta kynferðislega gegn samstarfskonu sinni í vinnuferð til Reykjavíkur árið 2019.

Felldi TM í Landsrétti vegna vinnuslyss eftir tap í héraði
Landsréttur viðurkenndi í dag bótaskyldu TM vegna slyss sem karlmaður varð fyrir er hann var að færa tvö hundruð lítra olíutunnu. TM hélt því fram fyrir dómi að ekki hefði verið um slys í skilningi bótaréttar að ræða.

Dómur vegna nauðgunar á sex ára barnabarni þyngdur um hálft ár
Karlmaður var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi í Landsrétti fyrir að hafa nauðgað og kynferðislega brotið á sex ára gömlu stjúpbarnabarni sínu. Þá var maðurinn dæmdur fyrir vörslu og áhorf á myndir sem sýndu börn á kynferðislegan hátt. Landsréttur þyngdi dóm Héraðsdóms Reykjaness um hálft ár.

„Gangi þeim vel að læra af þessu en ég vil fá borgað“
Ásmundur Helgason, annar eigandi kaffihússins Gráa kattarins, var mjög gagnrýninn á þau sem stóðu að framkvæmdum við Hverfisgötu árið 2019, við aðalmeðferð í dómsmáli eigandanna gegn Reykjavíkurborg. Eigendur krefjast 18,5 milljóna króna í skaðabætur frá borginni vegna framkvæmda sem stóðu yfir á Hverfisgötu lungann af árinu 2019. Hann líkti aðstæðunum á umræddu tímabili á Hverfisgötu við stríðsástand.

Zúistabræðrum hafnað um gögn sem leiddu til rannsóknar
Landsréttur hefur hafnað kröfum forsvarsmanna trúfélagsins Zuism um að fá aðgang að erindi frá Skrifstofu fjármálagerninga lörgeglu (SFL) og tilkynningu sem erindið byggði á. Forsvarsmennirnir sæta ákæru fyrir fjársvik og peningaþvætti.