Edda hyggst áfrýja málinu að ósk dótturinnar Ólafur Björn Sverrisson skrifar 7. apríl 2023 22:03 Edda Falak var í lok síðasta mánaðar dæmd fyrir brot gegn friðhelgi einkalífs með því að birta hljóðbrot úr samskiptum móður og dóttur, sem sagði frá ofbeldi af hálfu móður sinnar í hlaðvarpsþætti Eddu. Vísir/Vilhelm Edda Falak hyggst áfrýja máli, þar sem hún var dæmd fyrir brot gegn friðhelgi einkalífs, til Landsréttar. Í aðsendri grein á Vísi, sem unnin er í samráði við Eddu og dóttur móðurinnar sem höfðaði málið, er niðurstaða dómsins harðlega gagnrýnd. Blásið hefur verið til söfnunar til að gera Eddu kleift að áfrýja dómnum.
Málið snýr að hljóðbroti sem spilað var í hlaðvarpsþætti Eddu, Eigin konur, þar sem heyrist í viðmælanda þáttarins og móður hennar. Í hjóðbrotinu heyrist meðal annars í móðurinni segja við dóttur sína: „ég þoli þig ekki,“ samkvæmt því sem spilað var í þættinum. Dóttirin, sem steig nafnlaust fram, sagði móðurina hafa sagt við sig að það „væri betra fyrir alla ef þú [dóttirin] myndir bara deyja“. Móðirin höfðaði mál á hendur Eddu vegna spilunar hljóðbrotsins og krafðist fimm milljóna króna í miskabætur. 31. mars féll dómur í málinu þar sem Edda var dæmd fyrir brot á friðhelgi einkalífs og dæmd til að greiða konunni 400 þúsund krónur í miskabætur. Meðal forsendna héraðsdóms er að jafnvel þó umfjöllunin hafi verið samfélagslega mikilvæg, hafi borið að gæta sérstakrar varkárni við birtingu „viðkvæmra og persónugreinanlegra upplýsinga sem varða heimili og fjölskyldulíf þeirra“. Með því að breyta rödd konunnar hefði verið gætt að friðhelgi hennar. Áfrýjað að ósk dótturinnar Í aðsendri grein Sahara Rósar Ívarsdóttur, vinkonu dótturinnar, sem birtist á Vísi í samráði við Eddu, kemur fram að til standi áfrýja málinu til Landsréttar. Edda staðfestir þetta sjálf við fréttastofu. Jafnframt að það sé gert að ósk dótturinnar sem kom fram í þættinum. Í lok greinarinnar kemur fram að búið sé að blása til söfnunar til að gera Eddu kleift að áfrýja. Í greininni er dómur héraðsdóms gagnrýndur. Tilgangurinn með þætti Eddu hafi ekki verið að draga fram persónu móður heldur að sýna fram á „kerfislægt misrétti sem brotaþolar verða fyrir þegar barnavernd bregst og enginn trúir barni sem býr við óviðunandi aðstæður.“ „Birting upptökunnar var talin nauðsynleg til að draga fram alvarleika þess ofbeldis sem konan lýsti en hún veit að þolendum er yfirleitt ekki trúað. Samfélagið gerir miklar kröfur til þolenda um að færa sönnur á að ofbeldið sem þeir urðu fyrir hafi átt sér stað,“ segir í greininni. Ofbeldi sé ekki einkamál Þá er sjónum beint að öryggi þolenda. „Því miður virðist réttarkerfið sammála móðurinni í því að réttur hennar til friðhelgi einkalífs vegi þyngra en réttur þolandans til að sanna ofbeldið sem hann upplifði. Er réttarkerfið í alvörunni tilbúið að gefa afslátt á ofbeldi og hjálpa gerendum að fela það svo lengi sem það á sér stað undir fjögur augu, innan veggja heimilisins?“ Eftirfarandi viðhorf skuli gilda þegar ofbeldi og friðhelgi einkalífs skarast: „Ofbeldi er ekki einkamál. Þú átt ekki rétt á að beita ofbeldi í hljóði, í leyni, á bak við luktar dyr. Réttur einstaklings til friðhelgi einkalífs lýkur um leið og ljóst er að hann hefur beitt ofbeldi og er á sama tíma ekki tilbúinn að taka ábyrgð og bæta ráð sitt.“ Niðurstaða dómsins sendi varhugaverð skilaboð til gerenda: „Að þeir geti fengið pening fyrir skaðann sem þeir verða fyrir ef upp kemst um ofbeldið. Við þurfum að skoða þetta mál, læra af því og gera betur. Réttarkerfið ætti að mínu mati að draga úr ofbeldi en ekki skapa fordæmi þar sem gerendum er kennt að þeir geti bæði grætt á ofbeldi og fengið að beita því í friði innan lagaramma í nafni „friðhelgi einkalífs“.“
Dómsmál Tjáningarfrelsi Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira