Landsréttur þyngir dóm yfir nýdæmdum barnaníðingi Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 31. mars 2023 14:49 Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag. Vísir Barnaníðingurinn Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir nauðganir og önnur brot gegn ólögráða stúlkum. Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag og þyngdi dóm héraðsdóms um eitt ár. Brynjar Creed var dæmdur í sex ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir tæpu ári síðan. Þá var hann dæmdur fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum á grunnskólaaldri, sumum oftar en einu sinni, og beitt þær, auk fimmtu stúlkunnar, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreitni. Dómur Landsréttar snýr aðeins að tilteknum fjölda brota gegn ákveðnum brotaþolum. Lögregla lauk nýverið rannsókn á fjölda annarra meintra brota mannsins. Brynjar er grunaður um að hafa brotið gegn á þriðja tug stúlkna, undir 15 ára aldri, til viðbótar. Samkvæmt heimildum fréttastofu er komið inn á borð héraðssaksóknara. Sem fyrr segir var Brynjar dæmdur í sex ára fangelsi í fyrra en ríkissaksóknari ákvað að áfrýja dómi héraðsdóms. Áfrýjunin sneri að því að Brynjar yrði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun í þeim tilfellum þegar hann hafi látið stúlkur framkvæma kynferðislegar athafnir í gegnum netið og þær sent af því myndbönd. Þannig reyndi á nauðgunarákvæði 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga með áður óþekktum hætti. Brynjar var því ákærður fyrir nauðgun með því að hafa í krafti yfirburðastöðu sinnar, vegna aldurs- og þroskamunar, auk loforða um gjafir, fengið stúlkurnar til að stunda kynferðislegar athafnir, taka upp á myndband og senda sér. 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef beitt er ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti. Landsréttur kvað upp dóm í málinu klukkan 14:00 í dag og féllst á þessar kröfur ákæruvaldsins, að sögn Margrétar Unnar Rögnvaldsdóttur saksóknara. Dómurinn hefur ekki verið birtur á vef Landsréttar. Margrét Unnur segir í samtali við fréttastofu að Landsréttur hafi verið sammála túlkun ákæruvaldsins á ákvæðinu, ólíkt héraðsdómara. Því hafi dómurinn verið þyngdur um eitt ár. Tálbeituaðgerð sett í gang Málið rataði upphaflega til lögreglu árið 2021 eftir kæru stúlku til Barnaverndarnefndar Hafnarfjarðar. Stúlkan, sem var undir lögaldri, lýsti samskiptum við mann sem kallaði sig Sigga. Hún hafði hitt hann nokkrum sinnum, hann tekið af henni klámfengin myndbönd gegn greiðslu í formi peninga, fata, áfengis og veipvökva. Í eitt skipti hefði hann ekið með hana á afskekktan stað þar sem hún hefði ekki þorað að segja nei þegar hann sagði henni að veita sér munnmök. Þá lýsti stúlkan því að Brynjar hefði keypt kynlífstæki fyrir hana og vinkonu hennar, annan brotaþola í málinu. Hann hefði beðið þær að nota tækið og senda sér myndbönd. Þær hefðu gert það en myndbandið hefði farið í meiri dreifingu. Þannig hefði málið ratað á borð barnaverndar. Stúlkan sagði manninn einnig hafa sent sér myndbönd af öðrum stúlkum stunda munnmök með honum. Tálbeituaðgerð var sett í gang í kjölfarið. Hún fólst í því að lögregla tók yfir síma brotaþola og hélt áfram samskiptum við Brynjar. Aðgerðunum lauk með handtöku þremur dögum síðar. Framkvæmd var húsleit á heimili hans þar sem lagt var hald á fartölvu, flakkara, farsíma, harða tölvudiska, minnislykla og geisladiska. Verðlaun fyrir kynferðislegar athafnir Í ljós kom að Brynjar hafi látið stelpurnar spila stigaleik þar sem hann verðlaunaði þær fyrir kynferðislegar athafnir. Því fleiri stig eftir því sem athafnir voru grófari. Þannig voru fimm stig gefin fyrir að veifa, brosa eða hoppa en þúsund stig fyrir að sýna kynfæri og leika sér með kynlífshjálpartæki. Lögreglumaður sem skoðaði rafræn gögn úr síma Brynjars sagði fyrir dómi að lögregla hefði fundið kennitölur á um 100 stúlkum sem Brynjar hefði verið í sambandi við. Hann hefði verið í kynferðislegum samskiptum við um 240 kvenmenn og þar af hefðu tæplega 110 verið undir átján ára aldri. Í símum Brynjars hefðu líklega verið nokkur hundruð kynferðislegra mynda og myndskeiða. Eins og áður hefur komið fram hefur héraðssaksóknari fjölda annarra meintra brota Brynjars til skoðunar. Dómsmál Lögreglumál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mál Brynjars Joensen Creed Tengdar fréttir Rannsókn lögreglu lokið: Nýdæmdur barnaníðingur grunaður um brot gegn tugum til viðbótar Lögregla hefur lokið rannsókn á tugum meintra kynferðisbrota karlmanns á sextugsaldri. Í öllum tilvikum er maðurinn grunaður fyrir að hafa brotið gegn stúlkum undir 15 ára aldri, á þriðja tug stúlkna. Karlmaðurinn hlaut sex ára dóm fyrir kynferðisbrot í maí á þessu ári. 13. desember 2022 18:29 Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. 22. júní 2022 13:34 Kynferðisbrotamenn reyni að nálgast börn í auknum mæli á Snapchat Ábendingum til lögreglu um meinta kynferðisbrotamenn á samskiptaforritinu Snapchat hefur fjölgað á undanförnum árum. Þetta segir lögregla sem telur óvíst hvort lögregla hafi lagalegar heimildir til að loka slíkum reikningum. 20. maí 2022 12:07 Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Svakaleg lægð dýpri en metlægðin í síðustu viku nálgast landið Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Sjá meira
Brynjar Creed var dæmdur í sex ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir tæpu ári síðan. Þá var hann dæmdur fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum á grunnskólaaldri, sumum oftar en einu sinni, og beitt þær, auk fimmtu stúlkunnar, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreitni. Dómur Landsréttar snýr aðeins að tilteknum fjölda brota gegn ákveðnum brotaþolum. Lögregla lauk nýverið rannsókn á fjölda annarra meintra brota mannsins. Brynjar er grunaður um að hafa brotið gegn á þriðja tug stúlkna, undir 15 ára aldri, til viðbótar. Samkvæmt heimildum fréttastofu er komið inn á borð héraðssaksóknara. Sem fyrr segir var Brynjar dæmdur í sex ára fangelsi í fyrra en ríkissaksóknari ákvað að áfrýja dómi héraðsdóms. Áfrýjunin sneri að því að Brynjar yrði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun í þeim tilfellum þegar hann hafi látið stúlkur framkvæma kynferðislegar athafnir í gegnum netið og þær sent af því myndbönd. Þannig reyndi á nauðgunarákvæði 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga með áður óþekktum hætti. Brynjar var því ákærður fyrir nauðgun með því að hafa í krafti yfirburðastöðu sinnar, vegna aldurs- og þroskamunar, auk loforða um gjafir, fengið stúlkurnar til að stunda kynferðislegar athafnir, taka upp á myndband og senda sér. 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef beitt er ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti. Landsréttur kvað upp dóm í málinu klukkan 14:00 í dag og féllst á þessar kröfur ákæruvaldsins, að sögn Margrétar Unnar Rögnvaldsdóttur saksóknara. Dómurinn hefur ekki verið birtur á vef Landsréttar. Margrét Unnur segir í samtali við fréttastofu að Landsréttur hafi verið sammála túlkun ákæruvaldsins á ákvæðinu, ólíkt héraðsdómara. Því hafi dómurinn verið þyngdur um eitt ár. Tálbeituaðgerð sett í gang Málið rataði upphaflega til lögreglu árið 2021 eftir kæru stúlku til Barnaverndarnefndar Hafnarfjarðar. Stúlkan, sem var undir lögaldri, lýsti samskiptum við mann sem kallaði sig Sigga. Hún hafði hitt hann nokkrum sinnum, hann tekið af henni klámfengin myndbönd gegn greiðslu í formi peninga, fata, áfengis og veipvökva. Í eitt skipti hefði hann ekið með hana á afskekktan stað þar sem hún hefði ekki þorað að segja nei þegar hann sagði henni að veita sér munnmök. Þá lýsti stúlkan því að Brynjar hefði keypt kynlífstæki fyrir hana og vinkonu hennar, annan brotaþola í málinu. Hann hefði beðið þær að nota tækið og senda sér myndbönd. Þær hefðu gert það en myndbandið hefði farið í meiri dreifingu. Þannig hefði málið ratað á borð barnaverndar. Stúlkan sagði manninn einnig hafa sent sér myndbönd af öðrum stúlkum stunda munnmök með honum. Tálbeituaðgerð var sett í gang í kjölfarið. Hún fólst í því að lögregla tók yfir síma brotaþola og hélt áfram samskiptum við Brynjar. Aðgerðunum lauk með handtöku þremur dögum síðar. Framkvæmd var húsleit á heimili hans þar sem lagt var hald á fartölvu, flakkara, farsíma, harða tölvudiska, minnislykla og geisladiska. Verðlaun fyrir kynferðislegar athafnir Í ljós kom að Brynjar hafi látið stelpurnar spila stigaleik þar sem hann verðlaunaði þær fyrir kynferðislegar athafnir. Því fleiri stig eftir því sem athafnir voru grófari. Þannig voru fimm stig gefin fyrir að veifa, brosa eða hoppa en þúsund stig fyrir að sýna kynfæri og leika sér með kynlífshjálpartæki. Lögreglumaður sem skoðaði rafræn gögn úr síma Brynjars sagði fyrir dómi að lögregla hefði fundið kennitölur á um 100 stúlkum sem Brynjar hefði verið í sambandi við. Hann hefði verið í kynferðislegum samskiptum við um 240 kvenmenn og þar af hefðu tæplega 110 verið undir átján ára aldri. Í símum Brynjars hefðu líklega verið nokkur hundruð kynferðislegra mynda og myndskeiða. Eins og áður hefur komið fram hefur héraðssaksóknari fjölda annarra meintra brota Brynjars til skoðunar.
1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef beitt er ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti.
Dómsmál Lögreglumál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mál Brynjars Joensen Creed Tengdar fréttir Rannsókn lögreglu lokið: Nýdæmdur barnaníðingur grunaður um brot gegn tugum til viðbótar Lögregla hefur lokið rannsókn á tugum meintra kynferðisbrota karlmanns á sextugsaldri. Í öllum tilvikum er maðurinn grunaður fyrir að hafa brotið gegn stúlkum undir 15 ára aldri, á þriðja tug stúlkna. Karlmaðurinn hlaut sex ára dóm fyrir kynferðisbrot í maí á þessu ári. 13. desember 2022 18:29 Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. 22. júní 2022 13:34 Kynferðisbrotamenn reyni að nálgast börn í auknum mæli á Snapchat Ábendingum til lögreglu um meinta kynferðisbrotamenn á samskiptaforritinu Snapchat hefur fjölgað á undanförnum árum. Þetta segir lögregla sem telur óvíst hvort lögregla hafi lagalegar heimildir til að loka slíkum reikningum. 20. maí 2022 12:07 Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Svakaleg lægð dýpri en metlægðin í síðustu viku nálgast landið Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Sjá meira
Rannsókn lögreglu lokið: Nýdæmdur barnaníðingur grunaður um brot gegn tugum til viðbótar Lögregla hefur lokið rannsókn á tugum meintra kynferðisbrota karlmanns á sextugsaldri. Í öllum tilvikum er maðurinn grunaður fyrir að hafa brotið gegn stúlkum undir 15 ára aldri, á þriðja tug stúlkna. Karlmaðurinn hlaut sex ára dóm fyrir kynferðisbrot í maí á þessu ári. 13. desember 2022 18:29
Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. 22. júní 2022 13:34
Kynferðisbrotamenn reyni að nálgast börn í auknum mæli á Snapchat Ábendingum til lögreglu um meinta kynferðisbrotamenn á samskiptaforritinu Snapchat hefur fjölgað á undanförnum árum. Þetta segir lögregla sem telur óvíst hvort lögregla hafi lagalegar heimildir til að loka slíkum reikningum. 20. maí 2022 12:07