
Fyrsta meiðyrðamál Ingólfs á dagskrá dómstóla
Fyrsta meiðyrðamálið, sem Ingólfur Þórarinsson hefur höfðað vegna ummæla sem féllu um hann á samfélagsmiðlum síðasta sumar, er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur 18. janúar næstkomandi.
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Fyrsta meiðyrðamálið, sem Ingólfur Þórarinsson hefur höfðað vegna ummæla sem féllu um hann á samfélagsmiðlum síðasta sumar, er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur 18. janúar næstkomandi.
Fyrrverandi dyravörður á Hverfisbarnum var sýknaður af mismunun. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa vísað Sæborgu Ninju Urðardóttur, transkonu, af skemmtistaðnum vegna kynvitundar hennar.
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi rétt í þessu úr gildi úrskurð endurupptökunefndar sem hafnaði beiðni Erlu Bolladóttur um endurupptöku máls hennar árið 2017. Erla Bolladóttir kallaði „yes!“ þegar niðurstaðan var kunngjörð í dómsal í morgun. Svo streymdu tárin.
Karlmaður búsettur á höfuðborgarsvæðinu hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi, þar af fimmtán mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa 132 þúsund ljósmyndir og rúmlega fimm þúsund kvikmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfengin hátt í vörslum sínum.
Þríbólusettur einstaklingur sem þarf samkvæmt úrskurði héraðsdóms að sæta sóttkví í 23 daga hefur kært niðurstöðuna til Landsréttar. Viðkomandi segist hafa verið útsettur fyrir smiti á heimili sínu frá 10. desember án þess að smitast. Það staðfesti fjölmörg PCR-próf sem hann hafi farið í.
Héraðsdómari hefur staðfest ákvörðun sóttvarnalæknis um tíu daga einangrun í tilfelli fimm einstaklinga sem greinst hafa með kórónuveiruna. Lögmaður fólksins segir það verða skoðað hvort farið verði með málið lengra.
Fimm hafa kært ákvörðun sóttvarnalæknis um að skikka þá í einangrun vegna Covid-19. Aðalmeðferð í málum þeirra fer fram í dag en niðurstaðan gæti orðið til þess að endurskoða þyrfti alla nálgun á sóttvarnatakmarkanir á Íslandi.
Fimm einstaklingar hafa kært ákvörðun sóttvarnarlæknis til að láta reyna á lögmæti þess að fólk sem smitað er af kórónuveirunni sé skikkað í einangrun. Aðalmeðferð í málunum fimm fer fram á morgun.
Íslenska ríkið og bandaríska flugvélaleigan ALC hafa verið dæmt til að greiða Isavia 2,5 milljarða króna í tengslum við deilu Isavia og ALC um yfirráð yfir flugvél flugfélagsins sáluga Wow air. Héraðsdómur Reykjavíkur telur að dómari við Héraðsdóm Reykjanes hafi komist að rangri niðurstöðu með saknæmum hætti í deilunni.
Íslenskur karlmaður segist ekki hafa hitt eiginkonu sína í sextán ár og krefst því skilnaðar. Stefnan var nýlega birt í Lögbirtingablaðinu enda hefur manninum ekki tekist að hafa uppi á eiginkonunni til að birta henni stefnuna með hefðbundnum hætti.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað máli tveggja helstu hluthafa í Brúnegg ehf gegn Ríkisútvarpinu og MAST frá dómi.
22 ára karlmaður hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvö kynferðisbrot og rán. Héraðsdómur segir nauðsynlegt að maðurinn leiti sér aðstoðar en hann glímir meðal annars við neysluvanda og persónuleikaröskun vegna ítrekaðra áfalla í æsku.
Íslenska ríkið var sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Gráa hersins gegn Tryggingastofnun. Grái herinn hefur þegar ákveðið að áfrýja málinu til Landsréttar og Hæstaréttar ef til þess kemur.
Sorpa þarf að greiða Íslenskum aðalverktökum 89,4 milljónir vegna útboðsins á byggingu Gaju, gas- og jarðgerðarsstöð Sorpu á Álfsnesi. Héraðsdómur telur Sorpu ekki hafa gætt jafnræðis á milli bjóðenda í verkið.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hefur verið dæmt til að greiða húsfélaginu Lundi 2-6 í Kópavogi 36 milljónir vegna galla í þakplötu á bílastæðahúsi sem fylgdi íbúðum í húsunum.
Landsréttur féllst á að greiða bæri konu, auk ólögráða barna hennar, bætur vegna húsleitar á heimili þeirra. Aðgerðir lögreglu beindust að eiginmanni konunnar en hann var þar að auki faðir barnanna, sem kröfðust bóta vegna aðgerða lögreglu.
Kona hefur verið ákærð fyrir mannsal en hún er sökuð um að hafa haft fjögur stjúpbörn sín í þrælkunarvinnu. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrr í þessum mánuði, eftir ákæru héraðssaksóknara.
Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára og tveggja mánaða fangelsi fyrir ítrekaðan ölvunarakstur þegar hann hafði auk þess verið sviptur ökuréttindum. Landsréttur dæmdi í málinu í gær og þyngdi dóm héraðsdóms talsvert.
Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða tveimur sakborningum í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum 610 milljón krónur samanlagt í bætur. Ragnar Aðalsteinsson segir um áfellisdóm að ræða yfir íslenska ríkinu.
Helgi Seljan og RÚV voru sótt til saka af manni sem var ósáttur við ummæli fyrrverandi eiginkonu hans sem féllu í Kastljósþætti í ágúst 2015. Helgi segir dóminn að efni til fagnaðarefni en dómaframkvæmdin er áhyggjuefni.
Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður dánarbús Tryggva Rúnars Leifssonar, á von á því að íslenska ríkið geri upp við dánarbú Tryggva Rúnars. Landsréttur sýknaði íslenska ríkið af bótakröfu dánarbúsinss í dag en dæmdi um leið Guðjóni Skarphéðinssyni og dánarbúi Kristjáni Viðars Júlíussonar í hag.
Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Eikar fasteignafélags um að fá leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í máli félagsins gegn Andra Má Ingólfsson, fjárfesti og fyrrverandi aðaleiganda Primera Air. Málið varðaði kaup félagsins á Hótel 1919 af fjárfestinum árið 2016.
Íslenska ríkið þarf að greiða dánarbúi Kristjáns Viðars Júlíussonar 350 milljónir króna og Guðjóni Skarphéðinssyni 260 milljónir króna í bætur vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins. Bótakröfu dánarsbús Tryggva Rúnars Leifssonar var vísað frá dómi.
Tveir rúmenskir karlmenn hafa verið dæmdir í nokkurra mánaða fangelsi fyrir að hafa látið greipar sópa í ýmsum verslunum víðs vegar um landið á skipulagðan hátt. Þeir virðast hafa verið sólgnir í úlpur og aðra merkjavöru.
Þrír karlmenn hafa verið dæmdir í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotist inn í sumarbústað á Akureyri og stolið appelsínum og áfengi.
Gabríel Varada Snæbjörnsson hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart konu á árunum 2015 til 2017. Gabríel hlaut fjögurra ára dóm í héraðsdómi og Landsrétti. Hæstiréttur mildaði dóminn um hálft ár en þyngdi lítillega bætur til brotaþola.
Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni á sjötugsaldri sem grunaður er um fjölmörg blygðunarsemisbrot gegn börnum og barnaverndarlagabrot. Hann er meðal annars grunaður um að hafa reynt að mæla sér mót við ellefu ára gamalt barn eftir að hafa sent því klámfengin skilaboð.
Hæstiréttur úrskurðaði samþykkti síðastliðinn föstudag beiðni um að taka fyrir mútumál. Málið varðar tvo karlmenn sem voru sakfelldir í Landsrétti fyrir umboðssvik og peningaþvætti en aðeins annar þeirra fyrir mútugreiðslur.
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Austurlands um að vísa máli fyrrverandi áhafnarmeðlims olíuflutningaskips, sem fór fram á björgunarlaun vegna strands frystiskipsins M/V Green Freezer í Fáskrúðsfirði árið 2014, frá dómi.
Landsréttur hefur heimilað lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að rannsaka síma og innihald hans í tengslum við rannsókn á andláti.