Sýslumaður fær á baukinn
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði fær alvarlega á baukinn vegna slælegra vinnubragða í dómi Ólafar Pétursdóttur héraðsdómara yfir tveimur smákrimmum í morgun. Strákarnir, sem báðir voru 17 ára þegar brotin voru framin í nóvember árið 2003, brutust inn í félagsmiðstöð í Hafnarfirði og stálu þaðan skjávarpa, auk þess sem annar þeirra ók drukkinn.