

Bónus-deild kvenna
Leikirnir

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Haukar 84-68 | Njarðvík á góðu róli fyrir úrslitakeppnina
Njarðvík vann góðan sextán stiga sigur á Haukum þegar liðin mættust í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Haukar falla niður í þriðja sæti deildarinnar eftir tapið.

Bjarni: Við vorum bara ekki þátttakendur í þessum leik
Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var ekki upplitsdjarfur eftir þungt tap hans kvenna í Njarðvík í kvöld í Subway-deildinni, lokatölur 84-68.

Grindavík lagði deildarmeistaranna og Valur burstaði Fjölni
Grindavík vann góðan sigur á nágrönnum sínum úr Keflavík þegar liðin mættust í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Þá vann Valur stóran sigur gegn Fjölni.

Annar sigur ÍR í Subway-deildinni staðreynd
ÍR vann sinn annan sigur í Subway-deild kvenna í vetur þegar liðið vann tveggja stiga sigur á Breiðablik á útivelli í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik – Njarðvík 69-80 | Njarðvík sigldi þægilegum sigri í höfn
Njarðvík vann nokkuð þægilegan 80-69 sigur þegar liðið sótti Breiðablik heim í Smárann í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Leikurinn var liður í 25. umferð deildarinnar en tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni.

„Við höfum ekki fengið sanngjarna gagnrýni“
Kristjana Eir Jónsdóttir, þjálfari Fjölnis, var bæði ánægð og svekkt eftir 18 stiga tap gegn Haukum í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld.

Keflavík deildarmeistari | Valur fór létt með Grindavík
Keflavík og Valur mættu ekki mikilli mótspyrnu í leikjum sínum í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Keflavík vann botnlið ÍR örugglega, 87-42. Þá vann Valur stórsigur á Grindavík, 92-66.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar – Fjölnir 92-74 | Heimakonur ekki í vandræðum
Haukar lentu ekki í teljandi vandræðum með Fjölni í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Leik lauk með 18 stiga sigri Hauka, 92-74. Haukar halda 2. sæti deildarinnar eftir sigurinn á meðan Fjölnir er áfram í 6. sætinu.

„Liðsheildin varnarlega var það sem skaraði fram úr“
Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur í Subway-deild kvenna í körfubolta, var ekki beinlínis brosandi út að eyrum en augljóslega ánægður með sigur síns liðs gegn Val, 70-55, í toppslag deildarinnar fyrr í kvöld. Í viðtali við fréttamann Vísis eftir leik lýsti hann fyrst yfir ánægju með varnarleik síns liðs.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Valur 70-55 | Heimakonur áfram á toppnum eftir stórsigur
Það var búist við hörkuleik þegar tvö efstu lið Subway deildar kvenna, Keflavík og Valur, mættust í Blue-höllinni í Keflavík fyrr í kvöld. Eftir jafnan leik í fyrri hálfleik og framan af síðari hálfleik náði Keflavík að sigla fram úr og vinna nokkuð þægilegan sigur 70-55.

Frábær endir tryggði Haukum sigur | Njarðvík með stórsigur
Haukar og Njarðvík unnu í kvöld leiki sína í Subway-deild kvenna í körfubolta.

Umfjöllun og viðtal: Fjölnir-Breiðablik 90-72 | Gott gengi Grafarvogsbúa heldur áfram
Fjölnir vann sannfærandi sigur á Breiðablik í 25. umferð Subway deildar kvenna í körfubolta í Dalhúsum í kvöld. Blikakonur byrjuðu betur og leiddu eftir fyrsta leikhluta en sterk liðsframmistaða Fjölniskvenna skilaði Gravarvogsliðinu stigunum tveimur í endurkomusigri, lokatölur 90-72.

Toppliðið þarf að sigra Valsgrýluna
Keflavík og Valur, topplið Subway-deildar kvenna í körfubolta,. Keflavík trónir sem stendur á toppi deildarinnar með 21 sigur og aðeins þrjú töp. Þar á eftir koma Valskonur með 20 sigra og fjögur töp. Það sem er einkar athyglisvert við þessa tölfræði er að tvö af þremur töpum Keflavíkur hafa komið gegn Val.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Keflavík 75-74 | Hádramatík og montrétturinn hafnaði í Njarðvík
Njarðvík og Keflavík mættust í slagnum um Reykjanesbæ í kvöld í Subway-deild kvenna þar sem Njarðvík fór að lokum með sigur af hólmi á hádramatískum lokasekúndum.

„Við tókum Krýsuvíkurleiðina að þessu“
Njarðvíkingar unnu ótrúlegan sigur á grönnum sínum úr Keflavík í Subway-deild kvenna í kvöld þar sem úrslitin réðust með risastórum þristi frá Raquel Laneiro.

Allt um leikjamet Sigrúnar: „Geggjað að vera með henni í liði“
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir bætti leikjametið í efstu deild kvenna í körfubolta í leik með Haukum í síðustu umferð Subway deild kvenna og afrek hennar var tekið fyrir í Körfuboltakvöldi kvenna.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Keflavík 64-85 | Keflavík styrkti stöðu sína á toppnum með stórsigri
Efstu liðin í Subway-deild kvenna í körfubolta áttust við í Ólafssal í Hafnarfirði þegar Haukar og Keflavík mættust. Keflavík vann verðskuldaðan 21 stiga sigur.

Bryndís: Við erum að byggja upp lið til framtíðar
Bryndís Gunnlaugsdóttir var afar kát eftir sannfærandi sigur gegn Breiðablik í 24. umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í Smáranum á miðvikudagskvöldið. Grindavíkurkonur voru sterkari allan leikinn og tóku stigin tvö með sér heim eftir samheldna liðsframmistöðu sem einkenndist af snerpu og drifkrafti sem Blikar réðu ekki við, lokatölur 75-109.

Sigrar hjá Njarðvík og Val
Njarðvík vann góðan sigur á Fjölni þegar liðin mættust í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Þá vann Valur stórsigur á ÍR.

Umfjöllun og viðtal: Breiðablik - Grindavík 75-109 | Risasigur Grindavíkurstúlkna í Kópavogi
Grindavík vann stórsigur á Breiðabliki þegar liðin mættust í Subway-deild kvenna í kvöld. Lokatölur 109-75 og Grindavík því áfram öruggt í fimmta sæti deildarinnar.

Sigrún getur bætt leikjametið í stórleiknum í kvöld
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir setur nýtt leikjamet í efstu deild kvenna í körfubolta spili hún með Haukum á móti Keflavík Subway deild kvenna í kvöld.

Fann að þetta yrði dagurinn sinn: „Ætlaði að gefa vinkonu minni góða fæðingargjöf"
Lovísa Björt Henningsdóttir átti virkilega góðan leik þegar Haukar unnu Val í toppbaráttuslag Subway-deildar kvenna í körfubolta. Haukar unnu fjórtán stiga sigur, lokatölur 63-77.

„Erfið áskorun fyrir dómara að dæma þessa leiki“
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var gífurlega ánægður eftir hetjulega baráttu sinna leikmanna í erfiðum útisigri gegn Grindavík í Subway-deild kvenna í kvöld. Njarðvík vann leikinn með 15 stigum, 72-87.

Keflvíkingar skutust á toppinn | Fjölnir hafði betur gegn botnliðinu
Keflavík skaust í það minnsta tímabundið aftur á topp Subway-deildar kvenna í körfubolta er liðið vann öruggan 20 stiga sigur gegn Breiðablik í kvöld, 80-60. Á sama tíma hafði Fjölnir betur gegn botnliði ÍR, 83-69.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Njarðvík 72-87 | Mikilvægur sigur Íslandsmeistaranna
Njarðvík vann gífurlega mikilvægan 15 stiga sigur á Grindavík í Subway-deild kvenna í kvöld, 72-87, í leik sem var æsispennandi allt fram að síðasta fjórðung. Með sigrinum er Njarðvík áfram í fjórða sæti en með sex stiga forskot á Grindavík þegar fimm umferðir eru eftir.

Umfjöllun viðtöl og myndir: Valur - Haukar 63-77 | Haukar komnir með innbyrðisstöðu gagnvart Val
Haukar unnu gríðarlega mikilvægan 14 stiga sigur er liðið heimsótti Val í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Með sigrinum komu Haukar í veg fyrir að Valskonur myndu endurheimta toppsætið og Haukar eru nú aðeins fjórum stigum á eftir toppliði Keflavíkur.

Stórsigur Vals í Kópavogi
Valskonur fóru illa með Breiðablik þegar liðin áttust við í Subway deildinni í körfubolta í kvöld.

„Ég er alveg brjálaður“
Þorleifur Ólafsson var allt annað en sáttur eftir naumt tap Grindavíkur gegn Fjölni í 22. umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í Dalhúsum í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Grindavík 80-78 | Dramatískur sigur Fjölnis í spennutrylli
Fjölnir vann nauman sigur á Grindavík í æsispennandi leik í Subway deildinni í körfubolta í kvöld.

„Enginn dómari hefur komið til mín og sagst vera að hætta því hann fái ekki nógu vel greitt“
Körfuboltadómarar á Íslandi hafa verið með lausan samning við Körfuknattleikssambandið í níu ár. Sambandið kveðst ekki skylt að semja sérstaklega við verktakastétt.