
Leik Njarðvíkur og Hattar frestað til morguns
Leik Njarðvíkur og Hattar, sem var á dagskrá Subway deildar karla í körfubolta í kvöld, hefur verið frestað vegna veðurs.
Leik Njarðvíkur og Hattar, sem var á dagskrá Subway deildar karla í körfubolta í kvöld, hefur verið frestað vegna veðurs.
Blikinn Hrafnkell Freyr Ágústsson var gestur Stefáns Árna Pálssonar og Tómasar Steindórssonar í nýjasta þættinum af Subway Körfuboltakvöldi Extra þar sem var spáð í spilin fyrir þriðju umferð Subway deildar karla.
Subway Körfuboltakvöld Extra heldur áfram að hita upp fyrir komandi umferð í deildinni og fastur liður í þættinum er að fara yfir svörin sem Tómas Steindórsson fékk eftir að hafa sent leikmönnum deildarinnar spurningalista.
Troðsla Kristófers Acox í leik Vals og Hamars rifjaði upp gamlar og óþægilegar minningar hjá Ómari Erni Sævarssyni, sérfræðingi Subway Körfuboltakvölds.
Callum Reese Lawson er mikils metinn af sérfræðingum Körfuboltakvölds en farið var yfir mikilvægi leikmannsins í síðasta þætti.
Hvað er besta lið sögunnar síðan úrslitakeppni karla í körfubolta var tekin upp 1984? Því ætla sérfræðingarnir í Körfuboltakvöldi að komast að í þáttunum í vetur. Fyrsta viðureignin er farin í gang.
Ómari Erni Sævarssyni, sérfræðingi Subway Körfuboltakvölds, finnst Remy Martin, leikmaður Keflavíkur, vera eigingjarn.
Everage Richardsson var besti maður Breiðabliks sem tapaði fyrir Hetti í Subway-deildinni á fimmtudag. Everage hélt áfram að spila þrátt fyrir að hafa farið úr lið á fingri.
DeAndre Kane lék sinn fyrsta leik í búningi Grindavíkur gegn Álftanesi í Subway-deildinni á fimmtudag. Mikil eftirvænting hefur verið fyrir komu Kane en efasemdaraddir höfðu verið uppi um hvort hann myndi yfirhöfuð mæta til leiks í vetur.
Ríkjandi Íslandsmeistarar Tindastóls í körfubolta karla unnu sannfærandi 105-88 sigur gegn Keflavík þegar liðið lék sinn fyrsta heimaleik í Subway deild karla þetta tímabilið þegar að Keflvíkingar mæta í heimsókn á Sauðárkrók í annarri umferð deildarinnar. Bæði lið hófu tímabilið á sigri.
Tómas Steindórsson var í setti í Subway Körfuboltakvöld Extra síðastliðinn þriðjudag þar sem hann og Stefán Árni Pálsson fara yfir allt tengt Subway-deild karla á léttu nótunum.
„Þetta var spennandi, það er orðið sem kemur fyrst upp í huga“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness, léttur í lund eftir fyrsta sigur liðsins í Subway deild karla. Álftanes lagði Grindavík að velli 86-79 í leik sem bauð upp á mikla spennu undir lokin.
Ívar Ásgrímsson, þjálfari liðs Breiðabliks í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, lýsti ánægju með framfarir síns liðs í annarri umferð tímabilsins þótt liðið tapaði 80-73 fyrir Hetti á Egilsstöðum í kvöld. Í fyrstu umferðinni steinlá liðið gegn Haukum, 83-127 á heimavelli.
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, var ánægður með að hafa unnið Breiðablik 80-73 á Egilsstöðum í kvöld þótt frammistaða liðsins væri ekki góð. Höttur spilaði vel fyrsta kortérið og var þá komið með 10 stiga forskot en hrökk síðan í baklás. Það bjargaði sér svo í síðasta leikhluta.
Maté Dalmay, þjálfari Hauka, var að vonum ósáttur eftir tap síns liðs gegn Njarðvík í kvöld en hann kallar eftir betri viðbrögðum frá sínu liði þegar á móti blæs.
Höttur vann sinn annan leik í röð í úrvalsdeild karla í körfuknattleik þegar liðið hafði betur 80-73 gegn Breiðabliki á Egilsstöðum í kvöld. Leikurinn var ekki áferðafallegur en Höttur marði sigurinn fyrir rest.
Þór Þorlákshöfn vann fjögurra stiga útisigur gegn Stjörnunni 80-84. Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, var ánægður með sigurinn.
Njarðvíkingar unnu góðan átta stiga sigur er liðið heimsótti Hauka í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 86-94.
Þór Þorlákshöfn vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu gegn Stjörnunni í Garðabænum. Leikurinn var í járnum alveg þangað til um miðjan fjórða leikhluta þar sem Þórsarar voru skrefi á undan og unnu að lokum fjögurra stiga sigur 80-84.
Álftanes vann sinn fyrsta leik í Subway deild karla þegar liðið mætti Grindavík í Forsetahöllinni. Þetta var orðið ansi tæpt en góður endasprettur tryggði sigurinn að lokum.
Valur kjöldró Hamar á heimavelli í 2. umferð Subway-deildar karla. Jafnræði var með liðunum eftir fyrsta fjórðung en heimamenn settu upp flugeldasýningu í öðrum leikhluta og litu aldrei um öxl og unnu að lokum 36 stiga sigur 100-64.
Valur vann sannfærandi sigur gegn Hamri 100-64. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var ánægður með sigurinn.
Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi, sagði það sér að þakka að Tindastóll varð Íslandsmeistari síðastliðið vor. Hann sagði leiðbeiningar sínar til liðsins hafa skilað þeim sigrinum þegar hann ræddi málið í útvarpsþættinum FM95BLÖ.
Í kvöld hefur göngu sína nýr þáttur á Stöð 2 Sport. Sá heitir Subway körfuboltakvöld Extra og er í umsjón þeirra Stefáns Árna Pálssonar og Tomma Steindórs.
Subway deild karla í körfubolta er farin af stað en fyrstu umferðinni lauk á Álftanesi á sunnudagskvöldið. Körfuboltaáhugamaðurinn Gunnar Freyr Steinsson hitaði upp fyrir komandi tímabil með því að fá gervigreindina með sér í lið.
Olnbogaskot Tindastólsmannsins Adomas Drungilas í æfingarleik á móti Stjörnunni var til umræðu í Subway Körfuboltakvöldi en afleiðingin af því var að Stjörnumaðurinn Kevin Kone lá á eftir tvíkjálkabrotinn.
Stefán Árni Pálsson, stjórnandi Körfuboltakvölds, fór og hitti körfuboltadómarann Davíð Tómas Tómasson, Dabba T, í síðasta þætti og ræddi um nýhafið tímabil í Subway-deild karla.
Pavel Ermolinskij, þjálfari Tindastóls, var afar ánægður með sigurinn og þá sérstaklega varnarleikinn.
Íslandsmeistarar Tindastóls unnu nauman fimm stiga sigur er liðið heimsótti Álftanes í fyrstu umferð Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 65-70.
Ragnar Ágúst Nathanaelsson átti góðan leik þegar Hamar fékk Keflavík í heimsókn í 1. umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Keflavík vann á endanum leikinn en lenti svo sannarlega í vandræðum með nýliðana. Frammistaða Ragnars var til umræðu í Körfuboltakvöldi.