
„Þakklátur fyrir að konan sé tilbúin að leyfa mér að upplifa þetta“
Arnar Guðjónsson hefur verið ráðinn þjálfari Tindastóls í karlakörfuboltanum en félagið greindi frá þessu á blaðamannafundi nú síðdegis.
Arnar Guðjónsson hefur verið ráðinn þjálfari Tindastóls í karlakörfuboltanum en félagið greindi frá þessu á blaðamannafundi nú síðdegis.
Körfuknattleiksdeild Tindastóls stóð fyrir blaðamannafundi á Hótel Varmahlíð fyrir norðan í dag. Þar var nýr þjálfari liðsins kynntur en Arnar Guðjónsson tekur við liðinu.
Þór Þorlákshöfn hefur gengið frá samningum við þrjá leikmenn fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla.
Besti ungi leikmaður Bónus-deildar karla hefur samið við Álftanes. Hann vill taka þátt í þeirri uppbyggingu sem er í gangi hjá félaginu.
Hjörtur Sigurður Ragnarsson er nýr aðstoðarþjálfari Lárus Jónssonar í Þorlákshöfn.
Álftnesingar hafa styrkt lið sitt fyrir næsta tímabil í körfuboltanum en hinn tvítugi Hilmir Arnarson er genginn í raðir Álftnesinga og hefur samið við félagið til næstu tveggja ára.
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur framlengt samninga við tvo leikmenn liðsins, fyrirliðann Halldór Garðar Hermannsson og framtíðarmanninn Hilmar Pétursson.
Bikarmeistarar Vals hafa endurnýjað samninga við nokkra af helstu lykilmönnum sínum í körfubolta. Taiwo Badmus virðist hins vegar hafa leikið sinn síðasta leik fyrir liðið.
Benedikt Guðmundsson er hættur sem þjálfari Tindastól. Hann segir að ákvörðunin hafi ekki verið hans og hann hafi viljað halda áfram með liðið.
Valur Orri Valsson mun ekki spila með Grindavík á komandi leiktíð í Bónus deild karla í körfubolta. Frá þessu greindi Körfuknattleiksdeild Grindavíkur á Facebook-síðu sinni.
Benedikt Rúnar Guðmundsson og Tindastóll hafa ákveðið að fara í sitthvora áttina. Hann stýrði liðinu til úrslita á nýafstaðinni leiktíð en þar máttu Stólarnir þola tap gegn Stjörnunni í hörkurimmu.
Daníel Guðni Guðmundsson verður næsti þjálfari karlaliðs Keflavíkur í körfubolta. Hann segir starfið sé stórt og því fylgi alltaf ákveðin pressa.
Daníel Guðni Guðmundsson hefur skrifað undir samning við körfuknattleiksdeild Keflavíkur og verður þjálfari karlaliðsins næstu tvö árin.
Íslandsmeistarinn Ægir Þór Steinarsson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppni karla í körfubolta þar sem Stjarnan stóð uppi sem Íslandsmeistari eftir magnað úrslitaeinvígi. Hann settist niður með Körfuboltakvöldi að leik loknum.
Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, getur ekki sagt til um það á þessum tímapunkti hvort lykilleikmenn Íslandsmeistaraliðsins, Orri Gunnarsson og Hilmar Smári Henningsson verði á mála hjá liðinu á næsta tímabili. Þeir séu báðir með gæði til að spila í sterkri deild úti í heimi, til að mynda efstu deild Þýskalands.
Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari nýkrýndra Íslandsmeistara Stjörnunnar í körfubolta, finnur nú fyrir létti þegar að titillinn sem hann hefur elt svo lengi er í höfn og að baki „algjört andlegt rugl“ í úrslitakeppni deildarinnar.
Einum lengsta og magnaðasta ferli íslensks íþróttamanns lauk í gær þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari eftir sigur á Tindastóli í oddaleik á Sauðárkróki. Hlynur Bæringsson setti þar punktinn aftan við tæplega þrjátíu ára meistaraflokksferil sem fékk draumaendi í gini úlfsins.
„Ferillinn er stolt. Ferillinn er vonbrigði og eftirsjá vegna þess sem ég hefði getað gert betur. Tekið betri ákvarðanir. En ég er stoltur og glaður að hafa farið í þetta. Flestir af þeim sem ég þekki í dag eru tengdir körfubolta. Ég á ofboðslega góðar minningar af þessum ferli.“
Stjarnan varð í gær Íslandsmeistari í körfubolta karla í fyrsta sinn eftir sigur á Tindastóli, 77-82, í gær. Gleði Garðbæinga í leikslok var ósvikin.
Benedikt Guðmundsson var gríðarlega sár og svekktur eftir tap Tindastóls gegn Stjörnunni í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Hann segir liðið hafa lagt sig vel fram en klikkað á allt of mörgum mikilvægum skotum. Spurningum um framtíðina var hann ekki tilbúinn að svara.
Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði Stjörnunnar, var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar en vaggaði fingri þegar hann tók við verðlaununum.
„Alsæla. Ég á hreinlega ekki orð“ sagði Íslandsmeistarinn Hlynur Bæringsson eftir sigur í oddaleik gegn Tindastóli. Þetta var hans síðasti leikur á löngum ferli, sem endar með fyrsta Íslandsmeistaratitli í sögu Stjörnunnar.
Stjarnan er Íslandsmeistari karla í körfubolta í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 77-82 sigur gegn Tindastól í oddaleik sem fór fram í Síkinu á Sauðárkróki.
Shaquille Rombley, miðherji Stjörnunnar, sést hita upp með liðinu í aðdraganda oddaleiksins og er skráður á leikskýrsluna í leiknum gegn Tindastóli sem fer fram í Síkinu í kvöld. Hann staðfesti í viðtalið við Andra Má Eggertsson að hann væri klár í slaginn í kvöld.
Spennuþrungið andrúmsloft er ríkjandi á Sauðárkróki. Úrslitin í Bónus deildinni í körfubolta ráðast þar í kvöld í oddaleik úrslitaeinvígis Tindastóls og Stjörnunnar. Formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir fólk á þeim bænum ekki í vinnuhæfu ástandi, allir séu með hugann við leik kvöldsins.
Það er ljóst að margfalt færri komast að en vilja, á oddaleik Tindastóls og Stjörnunnar í úrslitaeinvígi Bónus-deildar karla í körfubolta annað kvöld.
„Ég er búinn að eignast áttatíu nýja vini hér í Garðabæ,“ sagði Hilmar Smári Henningsson, landsliðsmaður og lykilmaður Stjörnunnar í körfubolta, eftir sigurinn sem færði liðinu oddaleik gegn Tindastóli á Sauðárkróki næsta miðvikudag.
Þjálfari Stjörnunnar gerir ekki ráð fyrir því að Shaquille Rombley, leikmaður liðsins, verði með í oddaleik úrslitaeinvígis Bónus deildarinnar í körfubolta en sá var fluttur af velli á sjúkrahús í gær og undirgengst frekari rannsóknir í dag.
Benedikt Guðmundsson þjálfari Tindastóls gat verið svekktur með úrslit leiksins þegar lið hans laut í gras fyrir Stjörnunni í leik nr. 4 um Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn endaði 91-86 fyrir Stjörnuna og Benni þarf að gíra liðið sitt upp fyrir oddaleik.
Jase Febres var einn af þeim sem leiddu áhlaupið sem skiluðu sigri Stjörnunnar í leik númer fjögur í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Hann skoraði 24 stig, hvert öðru mikilvægara, en þau komu öll í seinni hálfleik til að skila sigri Stjörnunnar 91-86 gegn Tindastól.