

Bílar
Nýjustu fréttir, fróðleikur og skemmtileg myndbönd sem tengjast bílum.

Toyota á Íslandi lætur kolefnisjafna alla nýja Hybrid-bíla
Toyota á Íslandi og Kolviður hafa gert með sér samning þess efnis að allir nýir Hybrid-bílar frá Toyota og Lexus, seldir eftir 1. Janúar 2019 verði kolefnisjafnaðir.

Fá rafmagnið úr bæjarlæknum
Bændurnir í Fagradal í Mýrdal nota bæjarlækinn til að knýja heimilisbílinn. Hann er nefnilega rafmagnsbíll og orkan kemur frá lítilli heimarafstöð.

Binni Löve skíthræddur með Benna á Opel Ampera-e
Binni Löve, samfélagsmiðlastjarna, mætti á Kvartmílubrautina með Benedikt Eyjólfssyni, Benna í Bílabúð Benna, til að prufa 100% rafmagnsbílinn Opel Ampera-e. Benni leyfði Binna að finna hversu öflugur bíllinn er.

Háværir ökufantar gera íbúum Akureyrar lífið leitt
Þorvaldur Bjarni er búinn að fá nóg af hávaða tengdum Bíladögum.

Segir tollaramma blendingsbíla of þröngan: Hækkar um milljón í verði vegna eins gramms
Framkvæmdastjóri bílasölu þurfti að afpanta hybrid bíla sem knúnir eru bæði með bensíni og rafmagni þar sem tollaramminn er of þröngur að hans mati. Hann segir að rýmka þurfi rammann enn frekar svo raunverulegur hvati myndist til að flytja inn rafbíla.

Hættu við risasamruna Fiat Chrysler og Renault
Stjórnendur Fiat Chrysler kenna franskri pólítík um að viðræður um samrunann hafi farið út um þúfur.

Samgöngustofa útskýrir hvers vegna Procar var ekki svipt leyfi
Stofnunin óskaði eftir upplýsingum og gögnum frá öllum ökutækjaleigum með starfsleyfi en þær eru alls 127 talsins.

Segir niðurstöðu í máli Procar sýna að í lagi sé að svindla á Íslandi
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að niðurstaða Samgöngustofu í máli bílaleigunnar Procar þess efnis að hún haldi starfsleyfi sínu feli í sér skýr skilaboð um að í lagi sé að svindla á Íslandi.

Stórátak í loftslagsmálum: Viðskiptavinum býðst að kolefnisjafna eldsneytiskaup
Einu stærsta átaki sem ráðist hefur verið í til að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda hér á landi verður ýtt úr vör í dag að sögn stjórnarformanns Votlendissjóðs.

Tólf starfsmönnum sagt upp hjá Heklu
Bílaumboðið Hekla sagði í dag upp tólf starfsmönnum. Uppsagnirnar eru þvert á deildir í fyrirtækinu en Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, segir að ástæða uppsagnanna sé samdráttur í bílasölu síðustu misseri.

Velta Toyota dróst saman um meira en tvo milljarða
Velta TK bíla ehf., sem sér um sölu á Toyota-bílum og tengdum vörum og þjónustu á Íslandi, nam um 14,4 milljörðum króna í fyrra. Til samanburðar nam veltan 16,8 milljörðum á árinu 2017 og var samdrátturinn því 14 prósent á milli ára.

Nýliðinn Skúli Kristjánsson heimsmeistari í torfæru
Norðurlandamótið í torfæru fór fram um helgina í Noregi en mótið jafngildir heimsmeistaramóti. Skúli Kristjánsson stóð uppi sem sigurvegari eftir tveggja daga keppni.

Funda um sameiningu Renault og Fiat Chrysler
Ítalsk-ameríski bílarisinn Fiat Chrysler hefur stungið upp á sameiningu við franska bílaframleiðandann Renault. Frá þessu var greint í morgun en ef áformin ganga eftir verður um að ræða þriðja stærsta bílaframleiðanda heims.

Reyna að halda stærsta bílastæðahúsinu opnu sem lengst
Framkvæmdir eru hafnar við endurgerð á neðri hluta Hverfisgötu. Lokað hefur verið fyrir umferð upp Hverfisgötuna en girðingar afmarka svæðið sem nær frá Ingólfsstræti í áttina að Smiðjustíg.

Vara við því að fólk hlaði rafbíla í heimilistenglum að staðaldri
Venjulegir heimilistenglar eru ekki gerðir fyrir svo mikla og langa notkun og þá sem þarf til að hlaða rafknúnar bifreiðar.

Góð endurkoma Camry
Toyota Camry hefur snúið aftur eftir 15 ára fjarveru og leysir af Avensis sem Toyota hættir að framleiða.

Fulltrúar Tesla funduðu með íslenskum embættismönnum um rafbílavæðingu
Fulltrúar bandaríska rafbílaframleiðandans Tesla áttu fundi með íslenskum embættismönnum í stjórnkerfinu og á sveitarstjórnarstiginu áður tekin var ákvörðun um að opna útibú á Íslandi og auglýsa fimm lausar stöður.

Stilliró ónóg í Polo
Hekla hefur innkallað nýlegar Volkswagen Polo-bifreiðar vegna galla í handbremsu.

Svekkt með sekt án tillits til áralangrar hefðar íbúa
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði nokkra tugi bíla í Auðarstræti í Norðurmýrinni í Reykjavík í nótt fyrir að leggja bílum sínum uppi á gangstétt.

Hafa ekki hugmynd um hvernig Kim kom höndum yfir eðalvagnana
Forsvarsmenn þýska bílaframleiðandans Daimler segjast ekki hafa átt í nokkrum viðskiptum við Norður-Kóreu enda fer sala lúxusvara eins og þessara bíla gegn viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum Sameinuðu þjóðanna gagnvart Norður-Kóreu.

VÍS hættir útleigu á barnabílstólum
Tryggingafélagið VÍS ætlar að hætta útleigu á barnabílstólum en félagið hefur boðið viðskiptavinum sínum bílastóla til útleigu fyrir börnin sín undanfarin 25 ár.

Fengu uppsagnarbréf með páskaegginu frá Bernhard
Meirihluta starfsmanna Bernhard ehf. var sagt upp í liðinni viku í tengslum við kaup Öskju á þeim hluta reksturs Bernhard sem fer með Honda umboðið á Íslandi.

Askja kaupir Hondu-umboðið á Íslandi
Bílaumboðið Askja ehf. og Bernhard ehf. hafa undirritað kaupsamning um kaup Öskju á þeim hluta reksturs Bernhard ehf. sem fer með Honda umboðið á Íslandi.

Myndband af Teslu 3 sýnir sjálfkeyrandi bíl í umferðinni
Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur sent frá sér kynningarmyndband fyrir Teslu 3 sem mun greinilega hafa þá eiginleika að vera sjálfkeyrandi.

Tesla rannsakar sprengingu í Model S
Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur sent rannsóknarteymi til Sjanghæ í Kína til þess að rannsaka ástæður þess að sprenging varð í kyrrstæðum bíl af gerð Model S í bílastæðahúsi á dögunum.

Allt að 160 prósent verðmunur á dekkjaskiptum
Verðkönnun Alþýðusambands Íslands á þjónustu við dekkjaskipti sýnir mikinn verðmun.

Innkalla nýlega Mercedes Benz X-Class
Bílaumboðið Askja hefur innkallað fimmtán Mercedes Benz X-Class bifreiðar af árgerðum 2017 og 2018.

Slökktu í logandi bíl með bílaeldvarnarteppi
Um sýnikennslu var að ræða fyrir þátttakendur á námskeiði Brunavarna Árnessýslu og Mannvirkjastofnunar um hættur þegar bílar brenna, ekki síst rafmagnsbílar,

Gísli Einars fer um sveitir á sínum uppgerða forna Land Rover
"Það tók aðallega tíma að koma sér að verki og ég var í raun búinn að gefa þetta upp á bátinn,“ segir sjónvarpsmaðurinn góðkunni Gísli Einarsson sem fékk eldri Land Rover í fertugsafmælisgjöf 26.janúar 2007. Gísli deilir skemmtilegu myndbandi á Facebook þar sem hann fer yfir viðgerðarferlið og nú loksins er bifreiðin klár.

Carlos Ghosn mættur á Twitter og „boðar sannleikann“ í málinu
Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Nissan, hefur skráð sig til leiks á samfélagsmiðlinum Twitter. Hann hefur boðað til blaðamannafundar og segist forstjórinn fyrrverandi vera að undirbúa sig undir það að segja sannleikann um hvað sé "að gerast“.