

Eftir gífurlega fótboltaveislu síðustu daga er aðeins rólegra um að litast hjá okkur í dag en þó nóg af fótbolta sem og golfi.
Topplið Breiðabliks skoraði sjö mörk annan leikinn í röð í kvöld. Liðið er enn með fullt hús stiga á toppi Pepsi Max deildarinnar í fótbolta og hefur ekki enn fengið á sig mark.
Ótrúlegt gengi Breiðabliks heldur áfram í Pepsi Max deild kvenna.
Fylkir og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í Pepsi Max deild kvenna í Árbænum í kvöld.
Breiðablik styrkti stöðu sína á toppi Pepsi Max deildar kvenna þegar liðið gjörsigraði Þór/KA, 7-0, í kvöld. Blikar eru með fullt hús stiga og hafa ekki fengið á sig mark eftir fyrstu níu leikina í mótinu.
Fylkiskonur eru fimm sætum ofar í Pepsi Max deild kvenna í fótbolta í dag en þær ættu að vera samkvæmt markalíkunum í leikjum þeirra. Tölfræði Wyscout segir sína sögu um mikilvægi kornungs markvarðar liðsins.
Breiðablik getur í kvöld orðið fyrsta liðið í sögu úrvalsdeildar kvenna til að spila fyrstu níu leiki tímabilsins án þess að fá á sig mark.
Unnið er að því hörðum höndum að fá botn í það hvort að landsleikir og Evrópuleikir í fótbolta geti farið fram hér á landi þrátt fyrir reglur um sóttkví. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn er bjartsýnn á að það gangi upp og segir málið skýrast á næstu dögum.
Þegar KR-konur skoruðu síðast framhjá Söndru Sigurðardóttur þá var Ólafur Ragnar Grímsson enn forseti Íslands, íslenska karlalandsliðið hafði aldrei spilað á stórmóti og hú-ið var ekki orðið heimsfrægt.
Knattspyrnukonan Guðrún Karítas Sigurðardóttir er gengin í raðir Fylkis frá Íslandsmeisturum Vals. Hún skrifaði undir samning sem gildir út leiktíðina 2022.
Valur vann KR með einu marki gegn engu í eina leik dagsins í Pepsi Max deild kvenna í kvöld.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék sinn fyrsta leik fyrir Val í kvöld er liðið lagði KR af velli í Vesturbæ Reykjavíkur. Hún var sátt með dagsverkið.
Það er vel þekkt að íþróttafólk fari í kaldan pott til að flýta endurheimt eftir keppni en norðanstúlkur fundu nýjan vinkil á þetta í gær. Þetta kallar maður að huga út fyrir boxið.
Alls fóru fjórir leikir fram í Pepsi Max deild kvenna í dag og var nóg um að vera. Öll mörk dagsins má sjá í fréttinni.
Stjarnan og Þór/KA gerðu 1-1 jafntefli í fyrstu umferð Pepsi Max deildar kvenna eftir að deildin fór aftur af stað eftir kórónuveiruhlé.
FH sá aldrei til sólar gegn toppliði Breiðabliks í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu í dag.
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var ómyrkur í máli þegar hann ræddi um rauða spjaldið sem líklega hefði átt að fara á loft þegar Stjarnan og Þór/KA gerðu 1-1 jafntefli í Pepsi Max-deild kvenna í dag.
Alfreð Elías Jóhannsson - þjálfari Selfyssinga – átti eðlilega erfitt með að koma fyrir sig orði eftir að hafa horft upp á lið sitt nánast yfirspila Fylki frá upphafi til enda en tapa leiknum samt sem áður.
Þróttur og ÍBV mættust í mikilvægum leik í Laugardalnum en stigin eru ansi mikilvæg í botnbaráttunni.
Fótboltaveislan heldur áfram á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag en alls eru fimm leikir í beinni útsendingu í dag.
Leikmannasamtökin á Íslandi gerðu könnun meðal leikmanna í Pepsi Max deild karla og kvenna varðandi viðhorf þeirra til að byrja að spila fótbolta aftur eftir að ný bylgja kórónuveirusmita fór af stað í lok síðasta mánaðar.
Hinn þrautreyndi kanadíski markvörður, Erin McLeod, mun leika með Stjörnunni út tímabilið.
Það verður sannkölluð fótboltaveisla á Stöð 2 Sport og Vísi um helgina nú þegar íslenski boltinn byrjar að rúlla að nýju eftir hlé vegna kórónuveirufaraldursins.
KSÍ sendi frá sér skilaboð til síns fólks í gær og þar kemur meðal annars fram að allir þurfi nú að snúa bökum saman og sýna að íslenka knattspyrnufjölskyldan sé traustsins verð.
Boltinn byrjar aftur að rúlla í Pepsi Max-deild karla í fótbolta þar sem segja má að Stjarnan sé næst titlinum. Breiðablik stendur vel að vígi í Pepsi Max-deild kvenna þar sem heil umferð fer fram á sunnudag og mánudag.
Ítalski framherjinn Angela Pia Caloia er komin í Garðbæinn og mun spila með Stjörnunni það sem eftir lifir sumar.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir sjálfsagt mál að knattspyrnufólk sýni ábyrgð í sínu daglega lífi, til að forðast kórónuveirusmit, í ljósi þeirra forréttinda sem það nýtur varðandi tveggja metra regluna.
Hlutirnir gerast hratt á tímum kórónuveirufaraldursins og nú er orðið ljóst að áhorfendur verða ekki leyfðir á íþróttaleikjum hérlendis á næstunni.
Áhorfendur verða ekki leyfðir á íþróttaleikjum frá og með morgundeginum þegar leyft verður á ný að stunda íþróttir með snertingu hér á landi.
Var honum boðið landliðsþjálfarastarfið eða ekki? Þorsteinn Halldórsson var ekki ánægður með símtalið frá KSÍ fyrir að verða tveimur árum síðan.