

Arnar Grétarsson og KA hafa komist að samkomulagi um að hann stýri liðinu áfram á næsta tímabili.
Gísli Eyjólfsson verður í þeirri erfiðu stöðu að þurfa að fylgjast með samherjum sínum í Breiðabliki úr stúkunni í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar. Morgundagurinn verður viðburðarríkur fyrir Gísla en hann er einnig í framboði til Alþingis þótt hann sé ekki beint í baráttusæti.
Víkingur verður Íslandsmeistari í knattspyrnu á morgun ef liðið vinnur lokaleik sinn á móti Leikni. Það hafa Víkingar þó aldrei afrekað áður í sögunni í deild þeirra bestu.
Segja má að Fossvogurinn sé á yfirsnúningi fyrir morgundeginum og það tengist ekki á nokkurn hátt Alþingiskosningum. Karlalið Víkings á risastóran möguleika á að tryggja sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í þrjátíu ár með sigri á Leikni á heimavelli sínum í Víkinni klukkan 14.
Íslandsmeistarabikarinn fer annað hvort á loft á Víkingsvelli eða Kópavogsvelli. Á meðan leikjunum í lokaumferðinni í Pepsi Max-deild karla verður bikarinn í vörslu starfsmanns KSÍ á miðlægum stað.
Fyrirliði Leiknis er uppalinn hjá Breiðabliki og er vel meðvitaður um að hans gamla félags þarf á hjálp Leiknismanna að halda til verða Íslandsmeistari.
Það er búist við troðfullri Vík á morgun þegar Víkingar geta tryggt sér fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn í þrjátíu ár.
Framarar eru komnir aftur upp í Pepsi Max deild karla í fótbolta eftir frábært tímabil í Lengjudeildinni í sumar en formaðurinn er nú á krossgötum.
Stjarnan tekur á móti KR í 22. og síðustu umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta á laugardaginn og þar mun einn maður eiga hug og hjörtu stuðningmanna Stjörnunnar.
Víkingar geta orðið Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í þrjátíu ár um næstu helgi og miklu fleiri vilja komast á leikinn en miðar í boði. Víkingar tóku upp hraðpróf til að geta fjölgað áhorfendum upp í 1500 manns.
Kjartan Henry Finnbogason, sóknarmaður KR, og Þórður Ingason, varamarkvörður Víkings, hafa verið dæmdir í þriggja leikja bann af aganefnd KSÍ eftir að sauð upp úr undir lok leiks þegar að liðin mættust í Pepsi Max deild karla í vikunni.
Víkingar munu geta tekið á móti 1.500 fullorðnum áhorfendum auk barna á laugardaginn, þegar þeir gætu mögulega orðið Íslandsmeistarar í fótbolta karla í fyrsta sinn í þrjátíu ár.
Þrjú lið gætu endað alveg jöfn eftir lokaumferðina í Pepsi Max deildinni en aðeins eitt þeirra myndi falla. Vísir hefur skoðað reglugerðina yfir hvað ræður úrslitum þegar lið enda með jafnmörg stig og sömu markatölu.
„Þetta er það sem að maður myndi kalla ástríðu,“ sagði Þorvaldur Árnason dómari þegar hann útskýrði af hverju hann taldi ekki rétt að refsa Arnari Gunnlaugssyni, þjálfara Víkings, fyrir að hlaupa inn á völlinn og fagna sigurmarkinu gegn KR í Pepsi Max-deildinni á sunnudag.
Valgeir Valgeirsson var búinn að bíða mjög lengi eftir marki þegar hann tryggði HK lífsnauðsynlegan sigur í Kórnum í gærkvöldi.
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson segist hafa tekið rétta ákvörðun þegar hann gaf Birni Snæ Ingasyni sitt annað gula spjald fyrir leikaraskap í leik HK og Stjörnunnar í Pepsi Max-deild karla í gær.
Þorvaldur Árnason dómari viðurkennir að hægt hefði verið að spjalda fleiri leikmenn en þá Kjartan Henry Finnbogason og Þórð Ingason, eftir stimpingarnar undir lok leiks KR og Víkings í Pepsi Max-deildinni í fótbolta.
Þorvaldur Árnason, dómarinn í miklum hitaleik KR og Víkings á sunnudaginn, mætti í heimsókn til Rikka G og fór yfir stærstu atvikin í leiknum. Vítið sem hann dæmdi á Víkinga í lokin var vegna þess að Kári Árnason handlék boltann.
Máni Austmann Hilmarsson var ekki í leikmannahópi Leiknis Reykjavíkur er liðið mætti Keflavík í Pepsi Max deild karla um liðna helgi. Keyrt var aftan á bíl Mána nýverið og verður hann frá æfingum næstu tvo mánuðina hið minnsta.
Birnir Snær Ingason var rekinn af velli í gríðarlega mikilvægum 1-0 sigri HK á Keflavík í fallbaráttu Pepsi Max deildarinnar í kvöld. Fékk hann sitt annað gula spjald fyrir það sem dómari leiksins taldi vera leikaraskap.
HK vann lífsnauðsynlegan sigur á Stjörnunni í Kórnum í kvöld. Valgeir Valgeirsson gerði eina mark leiksins á 79. mínútu. Rétt fyrir mark Valgeirs fékk Birnir Snær Ingason sitt annað gula spjald og þar með rautt. Þessi úrslit þýddu að Fylkir er fallið úr efstu deild.
HK vann lífsnauðsynlegan 1-0 sigur á Stjörnunni og lyfti sér úr fallsæti. Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, var afar létt eftir leik.
„Ég skal bara viðurkenna það að manni líður bölvanlega,“ sagði Þorvaldur Árnason, dómari leiks KR og Víkings í Pepsi Max deild karla er hann ræddi tilfinningar sínar að leik loknum. Allt sauð upp úr í leik liðanna þar sem Víkingur van dramatískan 2-1 sigur og tyllti sér á topp deildarinnar.
Víkingar vinna nú að því að sem flestir eigi þess kost að vera viðstaddir þegar þeir freista þess að landa sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í fótbolta í þrjátíu ár, á laugardaginn. Hugsanlegt er að leikur Víkings og Leiknis verði fyrsti „hraðprófaviðburðurinn“ á Íslandi.
Valsmenn eru stigalausir í síðustu fjórum Pepsi Max deildarleikjum sínum. Það hefur aðeins gerst tvisvar áður hjá Hlíðarendafélaginu á þessari öld.
„Ég var ekki að sveifla hnefanum eða kýla neinn í andlitið. Stundum sér maður rautt en ég ætlaði mér bara að hrinda honum í burtu og gerði það óvarlega, ásamt fleirum í þessu atviki,“ segir Kjartan Henry Finnbogason um sinn þátt í ryskingunum í lok leik KR og Víkings í gærkvöld.
„Maður veit einhvern veginn aldrei hvað gerist á Hlíðarenda. Það gætu verið teknar stórar ákvarðanir þar,“ sagði Reynir Leósson í Pepsi Max-stúkunni þegar talið barst að liði Vals sem átt hefur vonbrigðatímabil á þessu fótboltasumri.
Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, hefur beðist afsökunar á framferði sínu í gær undir lokin á tapi liðsins gegn Víkingi í Pepsi Max-deildinni í fótbolta.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, var tekinn í viðtal strax eftir sigurinn á KR á Meistaravöllum í gær og þetta viðtal bætist í hóp margra góðra sem hafa verið tekin við Arnar.
KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason fékk rauða spjaldið undir lokin í leik KR og Víkings í gær en eftirmálarnir gætu verið meira en eins leiks bann.