Akureyri

Akureyri

Mannfjöldi: 20.050 (2025). Flatarmál: 136 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Akureyri, Hrísey, Grímsey.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Skilur eftir minningar al­veg eins og leikurinn

Tvö þúsund strákar í fimmta flokki í fótbolta munu keppa á N1-mótinu á Akureyri um helgina. Mótið hófst í dag og bærinn er fullur af fólki. Framkvæmdastjóri íþróttafélagsins KA segir mótið fara mjög vel af stað og minningarnar verði ekki síður til utan vallar.

Fótbolti
Fréttamynd

Fram­tíð mennta­stofnana á Akur­eyri varðar okkur öll

Á þessum árstíma fyllast samfélagsmiðlar af færslum og myndum af útskriftum og fagnaðarstundum. Þá minnir einnig Júbilantahátíð Menntaskólans á Akureyri okkur árlega á þann mikilvæga sess sem menntun hefur í sögu bæjarins og lífi þúsunda Íslendinga.

Skoðun
Fréttamynd

BSO-stöðin komin á nýtt heimili

Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar, BSO, er komið á nýjan stað. Húsið stendur nú á bílaplani Jólagarðsins og fær varanlegan stað í garðinum á næstu mánuðum. Eigandi hússins segir það fá að halda sinni upprunalegu mynd. 

Innlent
Fréttamynd

Hjartaljósin ekki sloppin

Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvað verður um hjartalaga umferðarljós Akureyrarbæjar. Málið er komið aftur á borð Vegagerðarinnar eftir ósk innviðaráðuneytisins um heimild til notkunar hjartalaga ljósops í rauðum umferðarljósum í reglugerð. 

Innlent
Fréttamynd

Ekki hafi verið á­setningur um að bana sam­býlis­konunni

Hæstiréttur hefur mildað refsingu Þorsteins Hermanns Þorbjörnssonar sem banaði sambýliskonu sinni á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl 2024 og sakfellir hann fyrir stórfellt gáleysi sem leiddi til andláts og stórfellt brot í nánu sambandi en ekki manndráp. Hann er í Hæstarétti dæmdur til fjórtán ára fangelsis. 

Innlent
Fréttamynd

Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak

Íbúar Lögmannshlíðar, annars tveggja hjúkrunarheimila sem Heilsuvernd rekur á Akureyri, fengu óvenjulega og að sögn forstöðumanns einstaklega ánægulega heimsókn þegar komið var með hestana Baug og Hörpu í húsgarðinn. Þrír íbúanna skelltu sér á bak, aðrir klöppuðu hestunum og gáfu þeim brauð en heimsóknin vakti mikla lukku.

Menning
Fréttamynd

Sér­sveitar­maður lagði hné á háls manns

Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu hefur sent erindi til héraðssaksóknara vegna framgöngu sérsveitarmanns sem er sakaður um að hafa lagt hné á háls manns við handtöku fyrir utan skemmtistað á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Sérsveitaraðgerð á Akur­eyri

Lögreglan á Norðurlandi eystra og sérsveit Ríkislögreglustjóra réðust í aðgerð á Akureyri í kvöld. Ungur maður er sagður hafa verið handtekinn.

Innlent
Fréttamynd

Hátt á þriðju milljón á mánuði

Berglind Ósk Guðmundsdóttir nýr bæjarstjóri hefur gert ráðningarsamning við Akureyrarbæ. Föst dagvinnulaun eru rúmlega 1,8 milljónir króna en við það bætist 45% stjórnendaálag. Alls nema launin rúmum 2,6 milljónum króna.

Innlent
Fréttamynd

„Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“

Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason og fjölskylda hans týndu „enn og aftur“ tuskudýrinu Sæta Stebba á ferðalagi um Norðurland. Ævintýralemúrinn hefur einstakt lag á að týnast, tvívegis verið grafinn lifandi og varði nokkrum á golfvellinum í Öndverðarnesi.

Lífið
Fréttamynd

Aðal­steinn Berg­dal er látinn

Aðalsteinn Bergdal, leikari og leikstjóri, er látinn, 76 ára gamall, eftir baráttu við krabbamein. Leikferill Aðalsteins spannaði ríflega fimmtíu ár og á annað hundrað sýninga í atvinnuleikhúsunum þremur. Hann var einna þekktastur fyrir leik sinn sem trúðurinn Skralli sem skemmti Íslendingum í hálfa öld.

Menning