Lífið

Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir fagnaði nýrri bók með pomp og prakt.
Katrín Jakobsdóttir fagnaði nýrri bók með pomp og prakt. Sigurjón Ragnar

Margt var um manninn í Hafnarhúsinu á dögunum þegar Katrín Jakobsdóttir fagnaði útgáfu á glæpasögu sinni, Vorblóti. Meðal gesta voru leikkonan Svandís Dóra Einarsdóttir og eiginmaður hennar Sigtryggur Magnason, forstöðumaður miðlunarsviðs Samtaka atvinnulífsins, Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrum innanríkisráðherra og borgarstjóri, og Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri RÚV.

Þetta er fyrsta glæpasagan sem Katrín sendir frá sér ein en áður hefur hún skrifað Reykjavík og Franska spítalann með Ragnari Jónassyni.

Vorblót fjallar um Vigdísi Magnúsdóttur sem hefur gefist upp á doktorsnámi í heimspeki og ákveður að hasla sér völl í hugleiðslu og öðrum andlegum málefnum. Hún auglýsir helgarnámskeið í ríkmannlegri villu fyrir utan Hveragerði þar sem kynna á „fjölbreyttar leiðir til að öðlast innri ró og næra andann“. Allt gengur að óskum – þangað til framið er morð.

Hér má sjá vel valdar myndir frá fjörinu:

Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins og Ármann Áki Gunnarsson, sonur Katrínar.Sigurjón Ragnar
Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Illugi Gunnarsson fyrrum mennta- og menningarmálaráðherra.Sigurjón Ragnar
Lísa og Lára Björg.Sigurjón Ragnar
Karl og Tinna. Sigurjón Ragnar
Egill Eðvarðsson og Páll.Sigurjón Ragnar
Katrín Jakobsdóttir áritar bók fyrir Svamdísi Svavarsdóttur fyrrverandi ráðherra og flokksystur Kötu úr Vinstri grænum og Torfa Hjartason, eiginmann Svandísar og lektor.Sigurjón Ragnar
Jón Ingi og Gunnar brosmildir.Sigurjón Ragnar
Vigdís, Halla Oddný og Jakob Falur í glæsilegum gír.Sigurjón Ragnar
Katrín og Hanna Birna brostu í bókateitinu.Sigurjón Ragnar
Sólveig, Halla og Svandís.Sigurjón Ragnar
Anna Margrét, Pála og Stína.Sigurjón Ragnar
Reynir, Brynhildur og Berglind.Sigurjón Ragnar
Tómas, Gunnar og Jakob ferskir.Sigurjón Ragnar
Hanna og Ragnheiður nældu sér í bók.Sigurjón Ragnar
Katrín bauð gesti velkomna.Sigurjón Ragnar
Katrín í upplestrarham.Sigurjón Ragnar
Svandís Dóra og Sigtryggur mættu með soninn.Sigurjón Ragnar
Snædís, Jakob og Ásta Dís.Sigurjón Ragnar
Nafnarnir Birgir og Birgir.Sigurjón Ragnar
Stefán Eiríks, Hafsteinn og Lilja Afreðs.Sigurjón Ragnar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.