Innlent

Kosningar í Banda­ríkjunum og utan­ríkis­ráð­herra ræðir Rússa

Árni Sæberg skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður farið yfir kosningar dagsins í Bandaríkjunum með sérfræðingi. 

Reykjavíkurborg kynnti í dag fjárhagsáætlun fyrir næstu fimm ár. Rætt verður við borgarstjóra. 

Maðurinn sem er meðákærður í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur í umfangsmiklu umsáturseinelti játaði að hafa farið á heimili brotaþola og makað saur á hurðarhúna. Hann neitar hins vegar að hann hafi tekið þátt í meintu umsáturseinelti.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir viðbrögð rússneska sendiráðsins á Íslandi við ummælum hennar í pontu Alþingis í gær vera tilraun Rússa til að beina athygli frá stríðsverkum þeirra í Úkraínu

Þetta og margt fleira í hádegisfréttum á slaginu 12.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 3. október 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×