Skoðun

Tvö­falt á­lag – frjó­semi á vinnusta

Sigríður Auðunsdóttir skrifar

Dagana 2.–8. nóvember fer fram árleg evrópsk vitundarvakning um ófrjósemi. Í ár er sjónum beint að því hvernig ófrjósemi fylgir fólki inn á vinnustaðinn og hvernig atvinnurekendur geta veitt stuðning. Frjósemisvandi verður ekki eftir heima þegar fólk mætir til vinnu.

Frjósemisvandi snertir marga og reikna má með að einn af hverjum sex starfsmönnum á barneignaraldri glími við slíkan vanda. Þótt umræðan hafi orðið opnari á síðustu árum veigra margir sér enn við að ræða eigin reynslu, meðal annars við yfirmenn og samstarfsfólk.

Frjósemisvandi og meðferðir við honum geta haft mikil andleg, líkamleg og fjárhagsleg áhrif. Ferlið getur verið langvarandi og einkennst af óvissu, kvíða og vonbrigðum. Hormónameðferðir og önnur inngrip geta aukið álagið, auk þess sem kostnaður getur verið verulegur. Að sinna vinnu samhliða þessu getur því verið krefjandi.

Enginn velur sér þessa vegferð. Þess vegna skiptir miklu máli að fólk finni fyrir skilningi og stuðningi í umhverfi sínu. Þar gegna atvinnurekendur og samstarfsfólk mikilvægu hlutverki.

Við í Tilveru, samtökum um ófrjósemi, hvetjum atvinnurekendur til að viðurkenna að frjósemisvandi og meðferðir við honum séu raunverulegt viðfangsefni á vinnustöðum. Stuðningur getur meðal annars falist í því að tryggja starfsfólki fjarveru vegna meðferða án skerðingar á orlofi eða launum, bjóða sveigjanlegt vinnufyrirkomulag þar sem því verður við komið og standa vörð um friðhelgi einkalífs. Fólk þarf að geta óskað eftir stuðningi án þess að þurfa að deila viðkvæmum upplýsingum umfram það sem nauðsynlegt er.

Þótt réttur til fjarveru vegna tæknifrjóvgunarmeðferða sé þegar tryggður í sumum kjarasamningum heyrum við hjá Tilveru því miður enn frásagnir af fólki sem fær ekki nægan stuðning eða sveigjanleika á vinnustað meðan á meðferð stendur.

Við viljum að þessum frásögnum fækki og að stuðningur við fólk með frjósemisvanda verði sjálfsagður hluti af vinnustaðamenningu. Með skilningi, sveigjanleika og virðingu geta vinnustaðir létt undir með fólki á krefjandi tímum.

Höfundur er stjórnarmaður í Tilveru, samtökum um ófrjósemi.




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×