Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar 31. október 2026 14:32 Fyrir einhverjum árum var hugmyndakassi í Grófinni þar sem gestir gátu sett hugmyndir sínar á miða um það hvernig nýtt aðalsafn gæti litið út. Þó mér þyki undurvænt um það útibú þá er það alveg vel komið til ára sinna. Að utan lítur byggingin sérstaklega illa út, upplituð klæðningin farin að hrynja af svo hún er skellótt og berstrípuð á köflum. Samt hef ég aldrei komið að tómum dyrum. Þegar ég sá fyrrnefndan hugmyndakassa fór ímyndunaraflið á fullt. Ég sá fyrir mér bókasafn í takt við Dokk1 í Århus sem er glæsilegt mannvirki við höfnina. Það er ekki aðeins bókasafn heldur menningarhús með frábærri leikaðstöðu bæði inni og úti, með flottri vinnuaðstöðu fyrir námsmenn eða aðra sem vilja ró og næði, ásamt fundarherbergjum og hópvinnurýmum. Þar eru einnig kaffihús, sýninga- og viðburðaaðstaða, borgaraþjónusta og ýmis menningarstarfsemi. Dokk1 er því gott dæmi um að almenningsrými þurfi ekki að vera skipulagt í kringum eina fyrirfram ákveðna athöfn. Í sömu byggingu er gert ráð fyrir að fólk geti verið eitt, verið með öðrum, leikið sér, lært, hvílt sig og tekið þátt í viðburðum. Bókasöfnin okkar gera margt af þessu vel þrátt fyrir að vera sniðinn þröngur stakkur. Arkitektar bókasafnsins í Århus lögðu áherslu á að byggingin yrði lýðræðislegt rými, aðgengilegt fólki á ólíkum aldri og með ólíkar þarfir. Þess vegna tók almenningur þátt í mótun hennar á hönnunarstigi. Innblásin af Dokk1 hélt ég í einfeldni minni að nú ætti loksins að gefa bókasöfnum borgarinnar það vægi sem þau eiga skilið. En borgarstjórn heldur áfram að blása köldu lofti yfir samfélagsþjónustu borgarinnar. Fyrsta haustlægðin skók frístundaheimili og frístundamiðstöðvar. Nú er appelsínugul viðvörun á bókasöfnum borgarinnar. Það eru ekki mörg rými í borginni þar sem fólk á öllum aldri getur fundið eitthvað við sitt hæfi, óháð stétt, stöðu og uppruna. Fyrir utan sundlaugarnar eru bókasöfnin sá staður þar sem fólk getur farið til þess að fá frið frá áreiti hversdagsins. Þangað geta námsmenn og fólk sem vinnur sjálfstætt farið og unnið án þess að þurfa að kaupa sér kaffi, aðstaðan er ókeypis og kaffið á könnunni líka. Foreldrar leita þangað með börn á öllum aldri og ólíkir hópar sækja þangað margvíslega viðburði. Nú þegar hefur hlutverk bókasafnanna þróast út í það að vera fjölbreytt menningar- og samfélagsrými. Þar eru að finna hljóðver, hringrásarsafn, listaverkaleigu, saumastofu og saumavélar til útláns, fræsafn, hlaðvarpsstúdíó og margt fleira. Þessu eigum við hugmyndaríku og metnaðarfullu starfsfólki safnanna að þakka. Þessi þjónusta verður ekki mæld í útlánafjölda og borgarstjórn virðist ekki ætla að blása til sóknar í bókasafnsmálum heldur halda áfram að feykja þeim um koll. Verði útlána fjöldi meginstoð í verðmætamati bókasafnanna þá hvet ég borgara til þess að spila varnarleik og leigja eins mikið af bókum og þeim er unnt til þess að rífa þessar tölur upp. Safnahúsið, Hús Vigdísar og Þjóðarbókhlaðan gefa ágætar vísbendingar um hvaða vægi bækur hafa haft fyrir þjóðina. Þrátt fyrir hrakandi lesskilning þá virðist stór hluti Íslendinga enn vilja standa vörð um bókina og bókasöfnin. Þessar raddir eru mín vonarglæta um að einn daginn eignumst við okkar Dokk1. Höfundur er umsjónarkennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bókasöfn Börn og uppeldi Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun