Nablinn hættur á leikskóla Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. október 2026 16:00 Andri Már Eggertsson hefur kvatt leikskólann Baug, vinnustað sinn til átta ára. Vísir/Vilhelm Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, stendur á tímamótum og er hættur að vinna á leikskólanum Baugi eftir tæplega átta ára starf. Hann ældi aðeins í tvígang yfir ótalmörgum bleyjuskiptum, hvetur stráka til að vinna á leikskólum og segir vinum sínum að hafa samband við hann glími þau við lús eða njálg.
Andri greinir frá þessum tíðindum á Fésbókinni með fallegri kveðjum og skemmtilegri myndaröð af samstarfsfélögum og skjólstæðingi. „Eftir tæplega átta ár sem starfsmaður á leikskólanum Baugi er kominn tími á að leggja bleyjuna á hilluna. Eftir svona mörg ár á frábærum vinnustað er erfitt að sleppa takinu og kveðja,“ segir Andri í færslunni. Hann sé „endalaust þakklátur“ því frábæra fólki sem hann kynntist í gegnum árin, samstarfsfólki, foreldrum og krökkum. Klifraði yfir hliðið og setti barn í krummafót „Mér finnst eins og það hafi gerst í gær þegar ég mætti á fyrsta vinnudaginn. Ég klifraði yfir grindverkið því ég kunni ekki að opna hliðið, setti barn út í krumma og sá fyrir mér að þrauka fram að sumri og snúa mér svo að einhverju öðru,“ segir hann. „Það tók þó ekki langan tíma að fatta hversu gefandi og æðislegt það væri að vinna á leikskóla og starf sem átti að vera tímabundið í nokkra mánuði eftir útskrift úr fjölbraut endaði í átta árum. Ég get ekki mælt nógu mikið með því fyrir stráka að fara og vinna leikskóla eða allavega á Baugi, þar er frábært að vera.“ Andri með samstarfskonum sínum. Fólkið sem hann kynntist á leiðinni sitji eftir. „Leikskólastjórinn, Maggý, er frábær í sínu starfi og hefur reynst mér ótrúlega vel. Þá sérstaklega þegar hún trúði því í atvinnuviðtali að ég væri með það á hreinu hvernig ætti að skipta á kúkableyjum en ég lærði það og ældi bara tvisvar af þeim fjölmörgu bleyjum sem ég skipti á,“ segir hann. „Ég gæti haldið lengi áfram af því góða fólki sem Kópavogsbær hefur verið heppið með að hafa hjá sér í vinnu í gegnum árin. Að ógleymdum litlu skjólstæðingunum mínum sem gefa engan afslátt og hika ekki við að minna mig á að ég sé að missa hárið og bíða eftir að verða stærri en ég,“ bætir hann við. „Að lokum óska ég eftir því að ef einhver vina minna fær njálg eða lús þá má senda mér tölvupóst. Ég á eftir að sakna þess að fara klæja um leið og einhver nefnir að slíkt sé að ganga,“ segir hann að lokum. Andri var í einlægu viðtali hjá Dóru Júlíu á Vísi fyrr á árinu þar sem hann ræddi um leikskólastarfið, uppvöxtinn og sorgina sem hann gekk í gegnum þegar hann missti frænda sinn sviplega. „Mér finnst að allir strákar ættu að prófa að starfa á leikskóla því þetta herðir mann ekkert smá mikið. Ég kunni varla að reima eigin skó þegar ég byrjaði og hef lært alveg ótrúlega mikið síðustu sjö árin,“ sagði hann þar.
Tímamót Kópavogur Vistaskipti Leikskólar Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira